Líklegast að vera tekjuhár á Seltjarnarnesi

Úr stærri sveit­ar­fé­lögum komust hlut­falls­lega fæstir úr Reykja­nesbæ á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar. Hér er farið yfir tekjur þeirra tíu tekju­hæstu á Sel­tjarn­ar­nesi í fyrra.

Líklegast að vera tekjuhár á Seltjarnarnesi
Sel­tjarn­ar­nes Það kann að vera að Sel­tjarn­ar­nesið sé lítið og lágt, eins og segir í ljóð­inu, en fólkið sem býr þar er lík­legt til að vera tekju­hátt. Mynd: Ron Kroetz

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar sýnir tekju­hæsta 1% skatt­greið­enda á Íslandi.

Hins vegar komust 3,18% Seltirn­inga á list­ann. Þannig eru íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi hlut­falls­lega lík­leg­astir lands­manna til að til­heyra tekju­hæsta pró­sent­inu.

Garð­bæ­ingar voru líka lík­legir til að kom­ast á list­ann. 2,45% þeirra telj­ast á meðal 3.542 tekju­hæstu Íslend­ing­anna.

Í Kjós­ar­hreppi býr aðeins 301 mann­eskja en 8 skatt­greið­endur í sveit­ar­fé­lag­inu komust á Hátekju­list­ann, eða 2,66 pró­sent.

Fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið vekur athygli að 42 af 1.669 íbúum Snæ­fells­bæjar náðu á list­ann, eða 2,52% íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Átta af 389 íbúum Grýtu­bakka­hrepps, eða 2,06%, komust á list­ann.

Enginn í Bláskógabyggð

Af sveit­ar­fé­lögum lands­ins með yfir 10.000 íbúa var Reykja­nes­bær með fæsta á list­anum hlut­falls­lega. 0,32% íbúa bæj­ar­ins komust á list­ann, eða 71 af 22.499 íbúum. Íbúar Reykja­vík­ur­borgar (0,86%), Hafn­ar­fjarðar (0,77%) og Árborgar (0,47%) voru einnig ólík­legri til að kom­ast á list­ann en íbúar í hinum af fjöl­menn­ari sveit­ar­fé­lög­unum.

Í sumum …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár