Tólf manns í milljarðsklúbbnum

Þau sem voru með yfir millj­arð króna í heild­ar­tekjur í fyrra eru fámennur hópur. Það tæki meðal launa­mann­inn 520 ár að vinna sér inn þær tekjur sem sá tekju­hæsti á Íslandi græddi í fyrra.

Tólf manns í milljarðsklúbbnum
Millj­arð­s­klúbb­ur­inn Tólf til­heyra klúbbnum sem með­al­mað­ur­inn þyrfti að vinna í 110 ár til að kom­ast í. Mynd: ChatGPT / Heimildin

Á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár, sem sýnir þá 3.542 skatt­greið­endur sem mynda tekju­hæsta 1 pró­sentið á Íslandi, náðu ein­ungis þau sem voru með nokkuð vel yfir 33 millj­ónum kkróna í sam­an­lagðar launa- og fjár­magnstekjur.

Það er þó mikil mis­skipt­ing innan eina pró­sents­ins. Mann­eskjan í 3.542. sæti keppir ekki í sömu deild – hrein­lega ekki sömu íþrótt - og sú sem trónir á toppnum.

Því á toppnum eru tólf manns sem til­heyra „millj­arð­s­klúbbnum“.

Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, og fyrrum eig­in­kona hans, Helga S Guð­munds­dóttir, kæmust fjórum sinnum í millj­arð­s­klúbb­inn, enda með 4,7 og 4,6 millj­arða króna í heild­ar­laun í fyrra, hvort um sig.

Feðgarnir Árni Oddur Þórð­ar­son og Þórður Magn­ús­son í Eyri Invest eru þre­faldir með­limir með tæpa 3,9 og 3,4 millj­arða hvor. Súsanna Sig­urð­ar­dóttir, fjár­festir í Kópavogi, var rétt á eftir þeim með 3,2 millj­arða í heild­ar­tekjur.

Kjartan Ólafsson, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Arnarlax, er með tvö­falda aðild enda …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    og svo eru þessir kvóta kóngar að kvarta yfir hækkun veiðigjalda, skildu þeir vilja lifa á mínum tekjum, sem eru "allt of háar núna", er búin að taka of margar vaktir á spítalanum og verð að greiða Triggingastofnun til baka, góða summu. En það þykir allt í lagi, eða hvað.?
    1
  • Birgit Braun skrifaði
    Er nokkur heilbrigðisstarfsmaður í þessari 3542 manna deild?
    0
    • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
      Sýnilega einn lyfsali á topp tíu og ætla má, miðað við viðmiðið sem Heimildin setur sér, að þó nokkuð fleiri séu á þeim lista. Jafnvel er hugsanlegt að finna megi ritstjóra á honum.
      Kristinn á það sameiginlegt með nokkrum öðrum á topp tíu listanum að vera að draga sig út úr atvinnulífinu eftir langan farsælan feril. Við slík tímamót selja menn oft eignir og koma fjármálum ellinnar og arfi til afkomenda á hreint. Kristinn er lyfjafræðingur og slíkir teljast til heilbrigðisstétta eins og kunnugt er. Kristinn er fæddur 1944.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár