Norskur hagfræðingur segir ruglingslegt að tala um „norska leið“

Claire Arm­strong, auð­linda­hag­fræð­ingur við Heim­skauta­há­skól­ann í Tromsö, seg­ist ekki hafa séð mik­inn mun á því hve mik­ill fiskur er unn­inn í Noregi eftir að byrjað var að inn­heimta veiði­gjöld í norsku lax­eldi.

Norskur hagfræðingur segir ruglingslegt að tala um „norska leið“

„Hug­myndin um „norska leið“ er dálítið rugl­ings­leg því að í Noregi greiðir útgerðin ekki skatt af auð­lind­arentu – heldur gera það olíu­iðn­að­ur­inn, vatns­afls­iðn­að­ur­inn og lax­eldið,“ segir Claire Arm­strong, pró­fessor í auð­linda­hag­fræði við Heim­skauta­há­skól­ann í Tromsö í Noregi.

Und­an­farið hefur Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) verið tíð­rætt um það sem þau kalla „norska leið“ í sjáv­ar­út­vegi. Er það einkum í sam­hengi við fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á veiði­gjöldum, en SFS vilja meina að þær feli í sér að Íslend­ingar muni taka upp fyr­ir­komu­lag að norskri fyr­ir­mynd í sjáv­ar­út­vegi.

Rétt að norska vinnslan sé með lægri heildarhagnað

Í stuttu máli gengur það sem SFS kalla norsku leið­ina út á það að í norskum sjáv­ar­út­vegi sé hátt hlut­fall fisks­ins flutturúr landi til vinnslu, ólíkt því sem tíðk­ist á Íslandi. Þetta segja SFS að sé vegna hás hrá­efn­is­verðs milli fisk­veiða og vinnslu.

„[Norðmenn] skapa því fá störf í landi, ólíkt því sem tíðkast hér á landi, og laun við veiðar og vinnslu eru mun lægri en á Íslandi. Verð­mæta­sköpun – og þar með fram­lag til hag­vaxtar og lífs­kjara – er því til muna minni í Noregi en á Íslandi,“ segir í grein eftir Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur, fram­kvæmda­stjóra SFS, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í nóv­em­ber 2024. 

„Þau [SFS] eru, eins og ég skil það, að kalla það norska leið að vinnslu­iðn­að­ur­inn fái lægri heild­ar­tekjur vegna hærri verð­lagn­ingar. Það er að sumu leyti rétt. Norski vinnslu­iðn­að­ur­inn þarf að greiða mark­aðs­verð fyrir fisk­inn sem hann kaupir frá veið­unum, því þar er tak­mörkuð lóð­rétt sam­þætt­ing,“ útskýrir Claire Arm­strong.

Hún segir að það megi vel vera að hár kostn­aður skýri lægra hlut­fall inn­lendrar vinnslu í Noregi en tíðk­ist til dæmis á Íslandi. Þessi kostn­aður feli þó ekki aðeins í sér hátt verð fiskjar. Til dæmis spili launa­kostn­aður og vinnu­afl einnig þar inn í. „Við höfum of fáar vinn­andi hendur í Noregi, í mörgum hlutum lands­ins er vinnu­afl í fisk­vinnslu meira en helm­ingur erlent,“ segir hún.

„Í ljósi þess að það er aðeins hluti auð­lind­arent­unnar sem er skatt­lagður, nema þessi renta sé notuð til að nið­ur­greiða mjög mik­inn iðnað, þá ætti það fræði­lega ekki að breyta fjár­fest­ingu í vinnslu“

Arm­strong segir að sér þyki áhuga­vert að íslenski sjáv­ar­út­veg­ur­inn gagn­rýni það ekki að not­ast verði við mark­aðs­verð frá Noregi. „Heldur frekar að tala gegn þeim afleið­ingum að þurfa mögu­lega að greiða hærra auð­linda­gjald.“

Hún bendir á að veiði­gjaldið á Íslandi verði ekki 100 pró­sent af auð­lind­arent­unni, svo iðn­að­ur­inn muni fá að halda eftir hluta hennar. „Í ljósi þess að það er aðeins hluti auð­lind­arent­unnar sem er skatt­lagður, nema þessi renta sé notuð til að nið­ur­greiða mjög mik­inn iðnað, þá ætti það fræði­lega ekki að breyta fjár­fest­ingu í vinnslu.“

Svipað fyrirkomulag í norsku laxeldi

Í Noregi er hægt að líta til þess hvernig gjald­töku í lax­eld­inu er háttað, en árið 2023 var komið á 25 pró­sent skatti á auð­lind­arentu í norsku lax­eldi.

Líkt og í sjáv­ar­út­vegi á Íslandi er í norska lax­eld­inu mikil lóð­rétt sam­þætt­ing. Því ákváðu Norðmenn að koma á til­teknu ráði sem ákvarðar verðið fyrir eld­is­lax­inn til skatt­lagn­ingar. Claire Arm­strong er einn með­lima í ráð­inu.

„Vegna þess að mikil lóð­rétt sam­þætt­ing er í þessum iðn­aði og miklar líkur á innra verð­sam­ráði ákváðu stjórn­völd að koma á þessu ráði til að ákvarða mark­aðsvirði fyrir lax,“ útskýrir hún. Norðmenn geti ekki, líkt og Íslend­ingar, litið til ann­arra mark­aða til að ákvarða þessi verð og er það því gert með því að safna upp­lýs­ingum um verð­lagn­ingu frá lax­eld­is­fyr­ir­tækj­unum sjálfum. 

Þrátt fyrir að ráðið hafi ekki verið starf­andi lengi segir Arm­strong að síðan skatt­ur­inn var lagður á lax­eld­is­iðn­að­inn hafi hún ekki tekið eftir því að það hafi haft nei­kvæð áhrif á hlut­fall inn­lendrar vinnslu í Noregi.

„Ég hef ekki séð miklar breyt­ingar, enn sem komið er, í því hve mikið lax er unn­inn í Noregi eftir að þessi 25 pró­senta skattur var lagður á auð­lind­arent­una. Svo lengi sem skatt­ur­inn er lagður á rent­una, en ekki venju­legan hagnað, er það sem er arð­bært að fjár­festa í fyrir skatt­inn – til dæmis vinnslu­stöðvar og þess háttar – einnig arð­bært að fjár­festa í eftir skatt­lagn­ing­una.“

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár