Hagfræðiprófessor segir rök SFS ekki ganga upp

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor emeritus í hag­fræði, telur íslensk stjórn­völd ekki vera að taka upp svo­kall­aða norska leið í sjáv­ar­út­vegi. Breyting veiði­gjald­anna er að hans mati til­raun til að fara eftir anda lag­anna.

Hagfræðiprófessor segir rök SFS ekki ganga upp
Hags­munir SFS hafa sagt að hækkun veiði­gjalda gæti valdið flutn­ingi fisk­vinnslu úr landi. Mynd: Golli

Mér finnst þessi rök­semda­færsla ekki ganga upp,“ segir Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor emeritus í hag­fræði, um full­yrð­ingar Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi þess efnis að hækkun veiði­gjalda leiði til flutn­ings fisk­vinnslu úr landi.

Samtökin hafa mót­mælt fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á veiði­gjaldi og halda meðal ann­ars fram að ríkið sé að taka upp „norsku leið­ina“, sem geti valdið atvinnu­missi á lands­byggð­inni. Þau telja einnig að sjáv­ar­út­veg­ur­inn „mali ekki gull“ og að veiði­gjaldið sé nú þegar hærra en nauð­syn krefur.

Arðsemi eigin fjár ekki lýsandi mælikvarði

Í mynd­böndum sem SFS birtu á sam­fé­lags­miðlum leið­réttir Birta Karen Tryggva­dóttir, hag­fræð­ingur sam­tak­anna, ýmis­legt í máli Hönnu Katrínar Frið­riks­son ráð­herra um veiði­gjöld. Hún mót­mælir meðal ann­ars full­yrð­ingum um að sjáv­ar­út­veg­ur­inn „mali gull“ og bendir á að arð­semi hans sé sam­bæri­leg annarri atvinnu­starf­semi, jafn­vel minni en í bygg­ing­ar­geir­anum og smá­sölu. Til stuðn­ings sýnir hún súlu­rit um meðal­arð­semi eigin fjár 2019–2023, en á því má sjá að sjáv­ar­út­veg­ur­inn sé með aðeins minni með­alarð­semi en smá­sala.

Þórólfur Matth­í­as­son

Þórólfur segir hins vegar arð­semi eigin fjár ekki vera lýsandi mæli­kvarða til að hrekja þá full­yrð­ingu að sjáv­ar­út­veg­ur­inn mali gull.

„Atvinnu­grein getur gengið mjög vel þótt ein­stök fyr­ir­tæki innan atvinnu­grein­ar­innar gangi ekk­ert sér­stak­lega vel sam­kvæmt bók­hald­inu. Fyrir því eru margar ástæður. Eitt er það til dæmis að rekstr­ar­fé­lög í sjáv­ar­út­vegi eru í eigu eign­ar­halds­fé­laga. Og eign­ar­halds­fé­lögin taka þá til sín tekj­urnar frá rekstr­ar­fé­lög­unum. Þau skuld­setja rekstr­ar­fé­lögin og þá þarf rekstr­ar­fé­lagið að borga stórar fúlgur í vexti til eign­ar­halds­fé­lags­ins,“ útskýrir hann. 

73 milljarða hagnaður 2023

Þetta hafi í för með sér að þrátt fyrir að hagn­að­ur­inn sé gríð­ar­lega mik­ill þá sjá­ist hann ekki í rekstr­ar­fé­lag­inu. En Þórólfur segir að töl­urnar sem SFS taki mið af séu einmitt frá rekstr­ar­fé­lög­unum, ekki eign­ar­halds­fé­lög­unum. „Þau eru bara að horfa á rekstr­ar­fé­lögin. Svo eru nátt­úr­lega alls konar leiðir til að láta bók­haldið líta vel út,“ segir hann.

Þórólfur bendir á að honum þyki besta aðferðin til að skoða heild­ar­af­komu í sjáv­ar­út­vegi vera árgreiðslu­að­ferð sem Hag­stofan not­ist við í skýrslu sinni um Hag veiða og vinnslu. Þar sé horft í gegnum eign­ar­haldið og aðferðin trufl­ist því ekki af aðgrein­ingu eign­ar­halds- og rekstr­ar­fé­laga.

Samkvæmt þess­ari aðferð Hag­stof­unnar var hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­ins 24 pró­sent af tekjum, að frá­dregnum milli­við­skiptum með hrá­efni, árið 2023. „Í fjár­hæðum talið nam hagn­að­ur­inn tæpum 73 millj­örðum króna eftir að gjald­færð hefur verið árgreiðsla að fjár­hæð rúmum 38 millj­örðum króna,“ segir í skýrslu Hag­stof­unnar frá því í jan­úar.

Kjósa
87
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    "Þetta er gráðugasta liðið í íslensku atvinnulífi" segir í grein hagfræðingsins. Og því er við að bæta, eins það hagar sér, líklegast það illskeyttasta af "albanska útkastarafélaginu" sem annast dyravöslu víða um borgina, ekki frátöldu.
    2
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Margur verður af aurum alveg úti á túni.
    0
  • TLS
    Tryggvi L. Skjaldarson skrifaði
    Allur fiskur á að fara á markað. Það er besta leiðin til að finna verðmæti beint úr sjó.
    1
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Það mætti líka nefna hér að það eru líka fiskvinnslur á Íslandi sem eiga hvorki skip né kvóta og hafa því enga útgerð til að láta niðurgreiða hráefnið fyrir sig. Þeir kaupa allt sitt hráefni á uppboðsmarkaði/fiskmörkuðum. Það er íslenska leiðin í þeirra tilvist. Þeir eru þannig í samkeppni við niðurgreiddar vinnslur stóru félaganna sem samanstanda af útgerð, vinnslu og sölufélögum þeirra.
    3
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Stórútgerðin á allt bæði í sjó og á landi og finnst það sjálfsagt.
    Svo erfist kvótinn eins og ekkert sé og enginn segir neitt.
    7
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Frábær og málefnaleg grein. Útgerðarinnar flytja nú þegar og hafa lengi að flytja óunninn fisk úr landi. Fiskurinn er gjarnan fluttur á flutngabilum landshorna á milli.
    Þessir bílar hafa undanfarin ár verið að brjóta niður íslenska vegakerfið og ekki tekur Útgerðarin þátt í því að laga eftir sig skemmdir þjóðvegum þjóðarinnar
    14
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      Enn einn kostnaðarliður fyrir samfélagið sem SFS vill ekki kannast við.
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár