Hefur ekki hitt manninn sinn í þrjú ár

Úkraínsk kona flúði til Íslands árið 2022 með fimm ára gömlum syni sínum og hefur ekki hitt eig­in­mann sinn síðan þá. Hún vonar að Íslend­ingar haldi áfram að vera kær­leiks­ríkir og hjálp­samir.

Hefur ekki hitt manninn sinn í þrjú ár
Marika Er 32 ára og býr á Íslandi ásamt syni sínum. Mynd: Eik Arnþórsdóttir

Ég heiti Marika, er 32 ára og vinn í búð. Ég er líka að læra hvernig á að vera doula. Það ákvað ég að læra eftir að ég fæddi son minn, fyrir átta árum síðan. Þá hugs­aði ég að þetta væri eitt­hvað fyrir mig. Núna vinn ég í búð­inni og er virki­lega ánægð með það. 

Ég hef verið á Íslandi í næstum þrjú ár. Mér þykir mjög vænt um landið og finnst gaman að vinna í mið­bænum. Það tekur mig bara fimm mín­útur að ganga að sjónum í hádeg­is­hléunum mínum og það veitir mér gleði. 

Ég er frá Úkraínu. Vonandi endar þetta bráðum. Við fórum eftir einn og hálfan mánuð, ég og sonur minn. Eig­in­mað­ur­inn minn varð eftir og ég hef ekki séð hann í næstum þrjú ár. Menn­irnir geta ekki farið vegna her­lag­anna. 

Ég veit ekki hvort við flytjum aftur til Úkraínu. Við vitum ekki hvernig þetta endar. Núna erum við hér. Við viljum bara að fjöl­skyldan okkar sé örugg. 

Ísland er fyrsta landið sem ég ferð­að­ist til. Það er svo öðru­vísi. Það breytir þanka­gangi þínum að koma til ann­ars lands og sjá að allt er öðru­vísi. Þú sam­þykkir menn­ing­una og sérð að hvaða leyti hlutir eru frá­brugðnir þínu heima­landi. Hér fann ég mitt teymi og mína vini. Þau eru mér eins og fjöl­skylda. 

Ég vona að fólkið hér á Íslandi haldi áfram að vera svona kær­leiks­ríkt og hjálp­samt. 

Kjósa
47
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár