Rapyd á Íslandi segist vera íslenskt fyrirtæki: „Djúpar rætur í íslensku samfélagi“

Rapyd á Íslandi seg­ist vera íslenskt fyr­ir­tæki í eigu alþjóð­lega fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem sé með starf­semi víða um heim.

Rapyd á Íslandi segist vera íslenskt fyrirtæki: „Djúpar rætur í íslensku samfélagi“
For­stjóri Garðar Stef­áns­son er for­stjóri Rapyd á Íslandi. Mynd: Rapyd

Fyr­ir­tækið Rapyd á Íslandi vill koma því á fram­færi að fyr­ir­tækið sé íslenskt. Þetta segir í frétta­til­kynn­ingu. 

„Vegna umfjöllun[ar] um samn­inga Rapyd á Íslandi við Fjársýsluna vill Rapyd benda á að samn­ing­ur­inn er við Rapyd á Íslandi (Rapyd Europe hf.) Stjórnendur Rapyd á Íslandi sýna því skiln­ing á fólk hafi sterkar skoð­anir á átökunum fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Allir eiga rétt að láta sína skoðun í ljós. Mik­il­vægt er hins vegar að umfjöllun sé byggð á stað­reyndum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Heim­ildin greindi frá því í síð­ustu viku að Fjár­sýsla rík­is­ins hefði gert samn­ing við Rapyd um færslu­hirð­ingu allra A-hluta stofn­ana til tveggja ára. Til A-hluta stofn­ana telj­ast á annað hund­rað stofn­ana sem sinna kjarna­verk­efnum rík­is­ins. Þeirra á meðal eru háskólar, fram­halds­skólar, rík­is­rekin söfn, sjúkra­hús, heilsu­gæslur, sýslu­manns­emb­ætti og dóm­stólar, auk fjöl­margra ann­arra.

Rapyd hefur verið sniðgengið

Fjöl­margir Íslend­ingar hafa valið að snið­ganga fyr­ir­tæki sem nýta sér færslu­hirð­ingu Rapyd vegna átak­anna fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Þetta hefur haft í för með sér að fleiri hund­ruð fyr­ir­tæki hafi skipt um greiðslu­miðlun.

Meint tengsl Rapyd við hernað á Gaza-svæð­inu komust í hámæli í októ­ber 2023 eftir ummæli for­stjóra og eins stofn­anda Rapyd, Arik Shtilman, í októ­ber 2023. En hinn ísra­elski Shtilman sagði á sam­fé­lags­miðl­inum LinkedIn að hann og fyr­ir­tækið styddu árásir Ísrael á Gaza. 

„Rapyd rekur starf­semi í land­ráns­byggðum Ísraela á Vest­ur­bakk­anum sem eru ský­laust brot á alþjóða­lögum og sam­þykktum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Stuðn­ingur Rapyd við hernað Ísraels er líka aug­ljós á Instagram reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eru myndir af ísra­elskum her­mönnum sem Rapyd bauð í grill­veislu. Þar segir að Rapyd sé stolt af stuðn­ingi sínum við hina hug­rökku her­menn ísra­elska hers­ins og ánægt með að geta gefið þeim eitt­hvað til baka,“ stendur á vef­síð­unni snið­ganga.is. 

Alþjóðlega fyrirtækið í eigu fjárfestingasjóða

Í til­kynn­ingu Rapyd á Íslandi segir: „Fyr­ir­tækið er í eigu alþjóðlega fjártækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem er að mestu í eigu alþjóðlegra fjárfest­inga­sjóða og er með starf­semi víða um heim.“. Er þar bent á að starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins byggi á eldri fyr­ir­tækj­unum Valitor og Korta sem hafi verið sam­einuð undir merkjum Rapyd.

„Fyr­ir­tækið hefur sinnt greiðslu­miðlun fyrir íslensk fyr­ir­tæki, banka og ein­stak­linga í rúmlega fjóra áratugi. Fyr­ir­tækið hefur sem slíkt verið lyk­il­stoð í inn­lendri greiðslu­miðlun og á djúpar rætur í íslensku samfélagi. Fyr­ir­tækið starfar sem íslenskt hlutafélag og er kennitala þess frá 1983. Fyr­ir­tækið er með starfs­leyfi frá Seðla­banka Íslands og greiðir skatta og skyldur á Íslandi.“

Kjósa
-12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Þetta er afskaplega einfalt, Rapyd er í eigu ZioNazista og Garðar Stefánsson er drullusokkur!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár