Forstjóri Rapyd segir stjórnarformann sinn ekki ráðandi hluthafa

For­stjóri Rapyd Europe hf., sem einu sinni hét Valitor, segir félagið ekki tengj­ast átökum á Gaza með nokkrum hætti. Í svörum for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi og í aug­lýs­inga­her­ferð Rapyd er talað um að fyr­ir­tækið sé í raun íslenskt í eðli sínu og lítið gert úr tengslum þess við Ísrael. Aug­lýs­ingar þess efnis eru greiddar af ísra­elska móð­ur­fé­lag­inu.

Forstjóri Rapyd segir stjórnarformann sinn ekki ráðandi hluthafa
Garðar Stef­áns­son, for­stjóri Rapyd á Íslandi segir að fyr­ir­tækið sé í raun íslenskt í eðli sínu og að of mikið sé gert úr skráðu eign­ar­haldi ísra­el­skra stjórn­ar­manna fyr­ir­tæk­is­ins Mynd: Rapyd

For­stjóri Rapyd Europe hf., íslensks dótt­ur­fé­lags hins ísra­elska Rapyd, segir mis­skiln­ingur að móð­ur­fé­lagið fari með ráð­andi hlut í íslenska félag­inu. Það gerir for­stjór­inn í aðsendri grein á Vísi, þar sem hann segir mis­skiln­ings gæta varð­andi skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda í íslenskri fyr­ir­tækja­skrá.

Þar er Ariel Shtilman skráður eig­andi án þess að eign­ar­hlutar hans sé getið en hann er stjórn­ar­for­maður íslenska félags­ins. Ariel er alla jafna kall­aður Arik, og skrifar sem slíkur undir skjöl er tengj­ast Rapyd Europe hf. Hann er for­stjóri Rapyd á heims­vísu og stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins.

Styr hefur staðið í kringum fjár­tækni­fyr­ir­tækið Rapyd og starf­semi þess hér á landi eftir að Sthilman lýsti yfir stuðn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins við stríðs­rekstur Ísraela á Gaza.

Tilefni greinar­aðar Garðars Stef­áns­sonar, for­stjóra Rapyd Europe hf., er kröftug umræða um þessi ummæli Shtilman á sam­fé­lags­miðlum og þrýst­ingur á að fyr­ir­tæki og neyt­endur snið­gangi Rapyd og beini við­skiptum sínum til ann­ara færslu­hirða. Þessi þrýst­ingur hefur skilað nokkrum árangri; til að mynda sagði Rauði kross­inn á Íslandi upp samn­ingi sínum við Rapyd í síð­asta mán­uði vegna umræð­unnar og stétt­ar­fé­lagið Efling gerði slíkt hið sama. 

Önnur fyr­ir­tæki hafa þó haldið tryggð við Rapyd. Nú liggur til að mynda nú fyrir að Rík­is­kaup hafa end­ur­nýjað þjón­ustu­samn­ing sinn við Rapyd. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Sara Lind Guð­bergs­dóttir for­stjóri Rík­is­kaupa að ákveðið hafi verið að nýta heim­ild til fram­leng­ingar. „Tíminn verður nú nýttur á næstu mán­uðum til þess að und­ir­búa nýtt útboð,“ sem mun fara fram í vor.

Þá nefnir Sara að ein af ástæð­unum að baki ákvörð­un­inni hafi verið tækni­legs eðlis. „Það voru tækni­legar ástæður í sam­starfi okkar við Fjár­sýsl­una og Advania sem á kerfið,“ segir Sara.

Samn­ing­ur­inn felur í sér að fyr­ir­tækið mun sinna færslu­þjón­ustu fyrir allar A-hluta stofn­anir rík­is­ins. Það eru um 160 stofn­anir alls. 

Tekist á um þjóðerni Rapyd á Íslandi

Garðar færir í greinum sínum rök fyrir því að fyr­ir­tækið sé raun ekki ísra­elskt, heldur gam­al­gróið íslenskt fyr­ir­tæki. Hann hafnar gagn­rýn­inni sem fyr­ir­tækið hefur setið undir og segir þær ekki eiga við rök að styðj­ast.  Bendir hann á að fyr­ir­tækið sé rekið á íslenskri kenni­tölu sem stofnuð var árið 1983. Þá sé starfs­fólk Rapyd, sem er um 180 tals­ins, allt búsett hér landi.

Sömu­leiðis bendir hann á þjón­ustan sem fyr­ir­tækið býður upp sé afrakstur ára­tuga­langrar þekk­ing­ar­sköp­unar og vöru­þró­unnar sem hefur átt sér stað hér á landi. Þar á Garðar að öllum lík­indum við arf­leifð fyr­ir­tækj­anna Korta og Valitor sem sam­ein­uð­ust undir merki alþjóð­lega fjár­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd á árunum 2020 til 2022.

Gagn­rýnendur Rapyd hafa bent á að sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins eru skráðir raun­veru­legir eig­endur Rapyd á Íslandi marg­um­ræddur Shtilman,

ásamt öðrum ísra­elskum rík­is­borg­ara og einum breskum manni. Móð­ur­fé­lag Rapyd Europe hf. er líka í árs­reikn­ingi sagt ísra­elska fyr­ir­tækið Rapyd Financial Network (2016) Ltd.

Þessu hefur Garðar svarað í pistli á Vísi og sagt að eign­ar­hald félags­ins sé dreift og alþjóð­legt og að móð­ur­fyr­ir­tækið fari ekki með ráð­andi hlut í Rapyd á Íslandi. Þá telur hann gagn­rýnendur fyr­ir­tæk­is­ins oftúlka eig­enda­skrán­ing­una sökum van­þekk­ingar. 

Hins vegar er vert að benda á það að þegar Rapyd Financial Network keypti Valitor, sem síðar var end­ur­nefnt Rapyd, árið 2022 þurfti Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands að sam­þykkja að félagið væri hæft til fara með yfir 50 pró­sent eign­ar­hlut Valitor.

Í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Seðla­bank­ans segir að fjár­mála­eft­ir­litið hafi kom­ist að „þeirri nið­ur­stöðu að Ariel Shtilman, fram­kvæmda­stjóri Rapyd væri hæfur til að fara með yfir 50% óbeinan virkan eign­ar­hlut í Valitor hf.“

Auglýsingar kostaðar af móðurfélaginu

Und­an­farið hefur Rapyd staðið að aug­lýs­inga­her­ferð sem margir hafa eflaust séð á skiltum við strætó­stoppi­stöðvar og á sam­fé­lags­miðl­inum Youtube. Aug­lýs­ing­arnar bera yfir­skrift­ina „þróað á Íslandi,“ þar sem lögð er rík áhersla á arf­leifð fyr­ir­tækj­anna sem Rapyd eign­að­ist milli áranna 2020 og 2022.

Farið er yfir sögu fyr­ir­tæk­is­ins sem sögð er teygja sig aftur til árs­ins 1983. Fyr­ir­tækið byggi því á gömlum íslenskum merg og sé í raun íslenskt í eðli sínu. Glöggir net­verjar hafa þó bent á að aug­lýs­inga­her­ferðin sem birt er á Youtube er kostuð af Rapyd Financial Network sem er skráð í Ísrael.

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Áhrif heimsmála fást með peningum, það vita ísraelar manna best enda litnir hornauga víða fyrir fjárhagsleg ítök á bak við tjöldin. Í krafti auðs er hægt að útrýma miklu án þess að svara til ábyrgðar fyrir verknaðinn, hversu ógeðfeldur sem hann er.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár