Virði í gömlum verksmiðjubyggingum

Bókin Húsa­kostur og híbýla­prýði sem kom út árið 1939 var inn­blást­ur­inn að Híbýlaauði, sem er allt í senn hópur, sam­starfs­vett­vangur og verk­efni. Anna María Boga­dóttir arki­tekt segir það bæði áskorun og tæki­færi að tengja strand­byggð­ina við byggð­ina sem fyrir er í nágren­inni. Passa þurfi vel upp á sjón­línur, nátt­úru­gæði og eldri bygg­ingar, sem eru upp­lagðar til end­ur­nýt­ingar.

Virði í gömlum verksmiðjubyggingum

Hópurinn býr yfir fjöl­breyttri þekk­ingu og hefur reynslu af íbúða­þróun gegnum ólík fag­svið og það sem tengir okkur er að brenna fyrir upp­bygg­ingu góðs og vand­aðs hús­næðis. Við vitum hversu dýr­mætt það er fyrir ein­stak­linga og fyrir sam­fé­lagið í heild og það vakir fyrir okkur að skapa híbýla­auð fyrir þá sem búa í bygg­ing­unum ekki síður en þá sem byggja.  

Hvernig byrj­aði sam­starfið?

Nokkur okkar úr hópnum höfðum áður átt sam­starf í byggða- og íbúða­þró­un­ar­verk­efn­inu Hæg breyti­leg átt, sem var starf­andi á árunum 2014 og 2015. Þá unnu þver­fag­legir hópar að því að móta hug­myndir og til­lögur að vist­vænni, sam­fé­lags­með­vit­aðri, hag­kvæm­ari og fram­sækn­ari íbúð­ar­kosti í íslensku þétt­býli. Þetta var metn­að­ar­fullt verk­efni með ríku­legt sam­tal, til­lögu­gerð og miðlun. Hins vegar voru hvorki ríki né borg eða aðrir fram­kvæmd­ar­að­ilar, sem voru sam­starfs­að­ilar verk­efn­is­ins, til­búnir að greiða götu þess svo að afurð­irnar gætu vaxið og þroskast áfram á einn eða annan hátt. Það …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Eg spyr? Af hverju var Byggingarfélag verkamanna lagt niður um síðustu aldamót ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár