Hreyfing hefur forspárgildi um hvað við getum í framtíðinni

Dr. Hannes Hrafn­kels­son heim­il­is­læknir segir hreyf­ingu nauð­syn­legan hluta af þeim lífs­stíl sem allir eigi að hafa, einkum ef fólk vill við­halda sæmi­legum lífs­gæðum á efri árum, geta ferð­ast og búið lengur við sjálf­stæði. Hann segir hreyf­ingu geta seinkað sjúk­dómum, og jafn­vel komið í veg fyrir að fólk fái ein­hverja þeirra, en leggur áherslu á að hreyf­ing sé aðeins einn af mörgum þáttum í með­ferð margra sjúk­dóma og að hún þurfi að vera í rútínu okkar.

Hreyfing hefur forspárgildi um hvað við getum í framtíðinni

Hannes Hrafn­kels­son heim­il­is­læknir segir hreyf­ingu eitt það mik­il­væg­asta sem við getum gert til að við­halda virkni lík­am­ans, og að gott úthald og þol auki líkur á lang­lífi og góðri heilsu á efri árum. Áhrif úthalds- eða þol­þjálf­unar eru þekkt sem for­vörn fyrir svo­kall­aða lífs­stíls­sjúk­dóma, eins og hjarta- og æða­sjúk­dóma, heila­bil­un­ar­sjúk­dóma og syk­ur­sýki teg­und 2. Styrkt­ar­þjálfun er ekki síður mik­il­væg viljum við halda lífs­gæðum sem lengst. Embætti land­læknis ráð­leggur full­orðnum ein­stak­lingum ákveðna hreyf­ingu sem eru byggðar á ráð­lagðri hreyf­ingu Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, WHO. Reglu­bundin hreyf­ing hefur auk þess jákvæð áhrif á svefn og kvíða og félags­lega er hreyf­ing oft mik­il­væg því hún er gjarnan stunduð í góðra vina hópi eða hópum sem mörg íþrótta­fé­lög standa fyrir og allir geta sótt. 

Hreyfing er nauðsynlegur hluti af lífsstílnum  

Hversu mik­il­væg er hreyf­ing? „Hreyfing er eitt það mik­il­væg­asta sem við getum gert til að við­halda heilsu og virkni lík­am­ans, má segja á öllum sviðum, hvort sem …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mikilla upplýsinga en aldrei verið óupplýstari
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mik­illa upp­lýs­inga en aldrei verið óupp­lýst­ari

Geir Gunnar Mark­ús­son nær­ing­ar­fræð­ingur segir að aukin tíðni lífs­stíls­sjúk­dóma kalli á heil­næmara fæði, meiri hreyf­ingu, nægan svefn og streitu­minni lífs­stíl. Hann telur að fæða okkar í dag sé að mörgu leyti verri en fyrir um 30 árum og að við höfum flækt matar­æðið. Þrátt fyrir mikið magn upp­lýs­inga þá gæti mik­illar upp­lýs­inga­óreiðu þegar kemur að nær­ingu. Geir Gunnar vill að fólk borði morg­un­mat til að stuðla að jafn­ari blóð­sykri og orku út dag­inn en morg­un­mat­ur­inn er á veru­legu und­an­haldi.
Hollt mataræði lykilatriði að góðri heilsu
FréttirGrunnstoðir heilsu

Hollt matar­æði lyk­il­at­riði að góðri heilsu

Axel F. Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur í hjarta­lækn­ingum, hefur skoðað tengsl fæðu og lífs­stíls við sjúk­dóma, einkum hjarta- og æða­sjúk­dóma. Talað hefur verið um að lífs­stíls­sjúk­dómar séu stærsta ógnin við heilsu fólks og heil­brigð­is­kerfi til næstu ára­tuga. Axel segir að fólk geti breytt miklu með hollu matar­æði og hreyf­ingu. Félags­leg tengsl séu líka mik­il­væg. Hann ráð­leggur hreina fæðu til að sporna við kvillum.
Eini Íslendingurinn til að hlaupa maraþon með tvö ígrædd líffæri
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Eini Íslend­ing­ur­inn til að hlaupa mara­þon með tvö ígrædd líf­færi

Kári Guð­munds­son fékk grætt í sig nýra og bris fyrir átta árum. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið tvö líf­færi og náð að hlaupa heilt og hálf mara­þon eftir líf­færa­ígræðsl­una og það oftar en einu sinni. Kári hafði í raun mjög lítið hreyft sig í gegnum árin en nú hleypur hann og lyftir til að fá aukið úthald og styrk og seg­ist aldrei hafa verið í betra formi, það sýni allar mæl­ingar.
Það er eitthvað í samfélaginu sem ýtir undir kulnun
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Það er eitt­hvað í sam­fé­lag­inu sem ýtir undir kulnun

Streita er vax­andi vandi í nútíma­sam­fé­lagi og ekki óal­gengt að fólk fari í kulnun. Dr. Ólafur Þór Ævarsson er sjálf­stætt starf­andi geð­læknir og stofn­andi Streitu­skól­ans sem er hluti af heild­stæðri vel­ferð­ar­þjón­ustu Heilsu­verndar. Hann segir að for­varnir og fræðsla séu mik­il­vægir þættir til að fólk verði betur með­vitað um eigin heilsu og geti tekið ábyrgð og spornað við streitu en hún getur haft víð­tæk áhrif á fólk bæði lík­am­lega og and­lega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár