Það er eitthvað í samfélaginu sem ýtir undir kulnun

Streita er vax­andi vandi í nútíma­sam­fé­lagi og ekki óal­gengt að fólk fari í kulnun. Dr. Ólafur Þór Ævarsson er sjálf­stætt starf­andi geð­læknir og stofn­andi Streitu­skól­ans sem er hluti af heild­stæðri vel­ferð­ar­þjón­ustu Heilsu­verndar. Hann segir að for­varnir og fræðsla séu mik­il­vægir þættir til að fólk verði betur með­vitað um eigin heilsu og geti tekið ábyrgð og spornað við streitu en hún getur haft víð­tæk áhrif á fólk bæði lík­am­lega og and­lega.

Það er eitthvað í samfélaginu sem ýtir undir kulnun
Nútíminn segir til sín Streitu­ein­kenni hafa vaxið sam­hliða auk­inni tækni og skjá­notkun. Mynd: Golli

Streita fer vax­andi með marg­vís­legum auknum kröfum í nútíma­sam­fé­lagi, en talið er að við­var­andi streita geti meðal ann­ars stuðlað að þróun hjarta- og æða­sjúk­dóma, hækkað blóð­þrýst­ing, veikt ónæm­is­kerfið, valdið melt­ing­ar­trufl­unum og höf­uð­verkjum, sjón­trufl­unum, auk ann­arra þátta sem hafa trufl­andi áhrif á ein­stak­linga. Sálræn áhrif hennar geta líka verið alvar­leg eins og svefn­vandi, kvíði, þung­lyndi og skap­breyt­ingar. Góðu frétt­irnar eru þær að streita er með­höndl­an­leg í nær öllum til­fellum og miklir mögu­leikar fel­ast í for­vörnum, að sögn Ólafs. 

Starfsemi heilans getur raskast við alvarlega streitu

Ólafur segir að skipta megi streitu í þrjú stig eftir alvar­leika hennar og að lík­am­leg ein­kenni geti verið marg­breyti­leg í öllu ferl­inu. „Það er hægt að skipta þessu í þrennt: fyrst er talað um streitu sem er þýð­ing á orð­inu stress og það er eðli­legt fyr­ir­bæri sem við finnum fyrir jafn­vel dag­lega en ein­kennin eru þreyta sem hverfur við hvíld hvort sem það er í pásu …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Vonleysið er algjört. Sjálftökuliðið hjá bæði ríki og borg er meira en meðalmanneskjan getur þolað.
    Ég vil einnig að sjalfskipað fólk í stjórnarstöður allra góðgerðarstarfsemi á Íslandi verði skoðuð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mikilla upplýsinga en aldrei verið óupplýstari
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Lifum á tímum mik­illa upp­lýs­inga en aldrei verið óupp­lýst­ari

Geir Gunnar Mark­ús­son nær­ing­ar­fræð­ingur segir að aukin tíðni lífs­stíls­sjúk­dóma kalli á heil­næmara fæði, meiri hreyf­ingu, nægan svefn og streitu­minni lífs­stíl. Hann telur að fæða okkar í dag sé að mörgu leyti verri en fyrir um 30 árum og að við höfum flækt matar­æðið. Þrátt fyrir mikið magn upp­lýs­inga þá gæti mik­illar upp­lýs­inga­óreiðu þegar kemur að nær­ingu. Geir Gunnar vill að fólk borði morg­un­mat til að stuðla að jafn­ari blóð­sykri og orku út dag­inn en morg­un­mat­ur­inn er á veru­legu und­an­haldi.
Hollt mataræði lykilatriði að góðri heilsu
FréttirGrunnstoðir heilsu

Hollt matar­æði lyk­il­at­riði að góðri heilsu

Axel F. Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur í hjarta­lækn­ingum, hefur skoðað tengsl fæðu og lífs­stíls við sjúk­dóma, einkum hjarta- og æða­sjúk­dóma. Talað hefur verið um að lífs­stíls­sjúk­dómar séu stærsta ógnin við heilsu fólks og heil­brigð­is­kerfi til næstu ára­tuga. Axel segir að fólk geti breytt miklu með hollu matar­æði og hreyf­ingu. Félags­leg tengsl séu líka mik­il­væg. Hann ráð­leggur hreina fæðu til að sporna við kvillum.
Hreyfing hefur forspárgildi um hvað við getum í framtíðinni
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Hreyfing hefur for­spár­gildi um hvað við getum í fram­tíð­inni

Dr. Hannes Hrafn­kels­son heim­il­is­læknir segir hreyf­ingu nauð­syn­legan hluta af þeim lífs­stíl sem allir eigi að hafa, einkum ef fólk vill við­halda sæmi­legum lífs­gæðum á efri árum, geta ferð­ast og búið lengur við sjálf­stæði. Hann segir hreyf­ingu geta seinkað sjúk­dómum, og jafn­vel komið í veg fyrir að fólk fái ein­hverja þeirra, en leggur áherslu á að hreyf­ing sé aðeins einn af mörgum þáttum í með­ferð margra sjúk­dóma og að hún þurfi að vera í rútínu okkar.
Eini Íslendingurinn til að hlaupa maraþon með tvö ígrædd líffæri
ViðtalGrunnstoðir heilsu

Eini Íslend­ing­ur­inn til að hlaupa mara­þon með tvö ígrædd líf­færi

Kári Guð­munds­son fékk grætt í sig nýra og bris fyrir átta árum. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið tvö líf­færi og náð að hlaupa heilt og hálf mara­þon eftir líf­færa­ígræðsl­una og það oftar en einu sinni. Kári hafði í raun mjög lítið hreyft sig í gegnum árin en nú hleypur hann og lyftir til að fá aukið úthald og styrk og seg­ist aldrei hafa verið í betra formi, það sýni allar mæl­ingar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár