Hrærður, gráhærður og þakklátur andstæðingunum

Bjarni Bene­dikts­son, frá­far­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þakk­aði and­stæð­ingum sínum sér­stak­lega í setn­ing­ar­ræðu sinni á 45. lands­fundi flokks­ins fyrr í dag. Hann sagði mót­stöð­una hafa gert úr sér „póli­tískt dýr.“

Hrærður, gráhærður og þakklátur andstæðingunum

Bjarni Bene­dikts­son, frá­far­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, setti 45. lands­fund flokks­ins í Laug­ar­dals­höll síð­degis í dag. Í setn­ing­ar­ræðu sinni sagð­ist hann sáttur við þá ákvörðun sína að hætta á þingi og sem for­maður.

„Í dag ávarpa ég ykkur í síð­asta sinn sem for­maður. Nú stend ég hér hrærður og grá­hærður,“ sagði hann og vís­aði þar til ummæla sinna árið 2009 þegar hann var fyrst kjör­inn for­maður um að hann væri hrærður eins og skyr. Að ræð­unni lok­inni kom Þóra Margrét Bald­vins­dóttir eig­in­kona hans upp á svið og „leiddi hann af hinu póli­tíska sviði.“ 

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Guðrún Haf­steins­dóttir berj­ast nú um að verða arf­taki Bjarna.

Hvatti sjálfstæðismenn að standa að baki nýjum formanni

Bjarni sagði að eftir að hafa eytt jóla­há­tíð­inni með fjöl­skyld­unni hefði hann áttað sig á því að nú væri rétti tím­inn til að hætta eftir 22 ár á þingi og næstum 16 ár sem for­maður flokks­ins. Honum hefði fund­ist rétt að nýtt fólk tæki við for­yst­unni. 

„Mér finnst flokk­ur­inn hein­lega vera að springa úr krafti. Það er sönn ánægja að sjá tvær geysiöflugar konur bjóða sig fram til að taka við kefl­inu af mér. Sama hvor þeirra sigrar er ljóst að kona mun leiða flokk­inn okkar í fyrsta sinn í sög­unni,“ sagði Bjarni og hvatti flokks­menn til að standa þétt við bakið á sig­ur­veg­ar­anum.  

Bjarni sagði þó að flokk­ur­inn gæti ekki verið ánægður með úrslit síð­ustu alþing­is­kosn­inga þar sem hann hlaut lægra fylgi en nokkru sinni fyrr. „Þar vík ég sjálfum mér hvergi frá ábyrgð,“ sagði Bjarni en nefndi hvernig vel hefði tek­ist að há kosn­inga­bar­átt­una, meðal ann­ars með spjall­menn­inu BjarnaAI.  

„Á þessum lands­fundi erum við aftur komin í stjórn­ar­and­stöðu. Ég kall­aði eftir kosn­ingum og nið­ur­stöður liggja fyrir. Aldrei höfum við í Sjálf­stæð­is­flokkum tekið því sem sjálf­sögðum hlut að vera ávallt í rík­is­stjórn,“ sagði Bjarni en bætti við að sjálf­stæð­is­menn þyrftu að búa sig undir að taka við stjórn­ar­taumunum á ný, í það minnsta að fjórum árum liðnum. 

Þá væri styttra í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sem flokk­ur­inn yrði til­bú­inn fyrir. „Hér í höf­uð­borg­inni er aldeilis þörf fyrir ræki­lega upp­stokkun. Þörf á því að leyfa vindum sjálf­stæð­is­stefn­unnar að blása ræki­lega um borg­ina.“

Þóra Margrét leiðir Bjarna af svið­inu.

Erfiðleikar bjóða ekki upp á hugmyndafræðilegar flugeldasýningar

Í ræð­unni fór Bjarni um mjög víðan völl. Hann tal­aði um upp­haf sitt í flokknum, það sem knúði hann til að taka þátt í starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og það sem hefði áunn­ist og gengið vel undir stjórn flokks­ins á síð­ustu árum.

Hann minnt­ist einnig á að ýmis­legt hefði komið upp á sem vinna þurfti bug á. Til dæmis hefði fall WOW-air, heims­far­aldur kór­óna­veirunnar, stríðs­á­tök í Evrópu og eldsum­brot sett strik í reikn­ing­inn.

„Við slíkar aðstæður er hlut­verk rík­is­stjórn­ar­innar að bjóða ekki stöðugt upp á hug­mynda­fræði­lega flug­elda­sýn­ingu,“ sagði Bjarni, heldur að þá væri fyrst og fremst mik­il­vægt að mæta í vinn­una og takast á við verk­efnin. 

Gagnrýndi ríkisstjórnina

Bjarni skaut föstum skotum á rík­is­stjórn Íslands í máli sínu, einkum Flokk fólks­ins. „Inga Sæland [félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra] hafði verið ráð­herra í 13 klukku­stundir og 18 mín­útur þegar hún var farin að ráð­ast á fjöl­miðla. Skammaði þá fyrir að spyrja spurn­inga,“ sagði Bjarni.

Þá ávítaði hann Ingu fyrir að hafa hringt í skóla­sjóra út af skóm barna­barns síns og sagði að hún hefði jafn­vel minnt á Don Corleone úr kvik­mynd­inni Guð­föð­urnum.

Þá minnt­ist Bjarni á ummæli Sig­ur­jóns Þórð­ar­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, um Morg­un­blaðið, sem hann kall­aði aðför að frelsi fjöl­miðla, auk þess sem hann gagn­rýndi Eyjólf Ármannssson, sam­göngu- og sveit­ar­stjórna­ráð­herra, fyrir að styðja Bókun 35 sem hann hafði áður kallað brot á stjórn­ar­skrá. 

Gagn­rýnin beind­ist þó ekki aðeins að Flokki fólks­ins, en Bjarni skaut einnig á Sam­fylk­ing­una og Viðreisn. „Sam­fylk­ingin og Viðreisn virð­ist ekki trúa á getu þjóð­ar­innar að stjórna eigin málum sjálf,“ sagði Bjarni og átti þá við mögu­leik­ann á inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið. Hann sagði að eitt mik­il­væg­asta verk­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins yrði að berj­ast gegn því.

Andstæðingarnir búið til pólitískt dýr

Bjarni þakk­aði sér­stak­lega Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, vara­for­manni flokks­ins, Vil­hjálmi Árnasyni rit­ara og Hildi Sverr­is­dóttur þing­flokks­for­manni. Þá þakk­aði hann einnig póli­tískum and­stæð­ingum sínum og þeim sem gerðu honum erfitt fyrir í áranna rás. „Ég ætla að þakka sér­stak­lega þeim sem gerðu mér þetta erfitt. Þeim sem sáðu efa­semda­fræjum sem maður var að reyna að ná til. Blaða­mönnum sem eltu mig í öll þessi ár. Bara takk.“ 

En Bjarni sagði að með því að gera honum erf­ið­ara fyrir hefði sann­fær­ing hans meit­l­ast og and­stæð­ingar hans búið til úr honum póli­tískt dýr sem ent­ist lengi.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Heimildin orðin málpípa Bjarna Ben? leyniaðdáandi?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár