Spurningaþraut Illuga 7. febrúar 2025: Hvaða fyrirbæri er þetta? og 16 aðrar spurningar

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 7. febr­úar.

Spurningaþraut Illuga 7. febrúar 2025: Hvaða fyrirbæri er þetta? og 16 aðrar spurningar
Fyrri mynda­spurn­ing: Hvaða fyr­ir­bæri er þetta? Svarið þarf að vera nákvæmt.
Seinni mynda­spurn­ing:Hver er þessi karl? Það leyn­ist raunar vís­bend­ing á mynd­inni, þótt ekki sé hún áber­andi.

Almennar spurningar: 

  1. Hvaða á fellur um Par­ís­ar­borg?
  2. Hver tók við af Agli Ólafs­syni sem rödd Toyota í aug­lýs­ingum?
  3. Belzec, Majdanek, Neu­engamme, Stutthof, Treblinka. Hvaða staðir eru þetta?
  4. Sturnus vulgaris heitir einn mjög algengur spör­fugl á Íslandi. Hann er dökk­leitur, fer um í hópum og margir hafa að ósekju illan bifur á honum. Hvað nefn­ist hann á íslensku?
  5. Fyrir hvaða stjórn­mála­flokk situr Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir á Alþingi Íslend­inga?
  6. Novo Nordisk heitir eitt stærsta fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum. Hvað fram­leiðir það?
  7. Hver er stærsta eyjan í Mið­jarð­ar­haf­inu?
  8. Hvað nefnd­ist ástar- og feg­urð­ar­gyðja Grikkja hinna fornu?
  9. Kasper, Jesper og ... hver?
  10. Í nóv­em­ber 1969 unnu þeir Pete Conrad og Alan Bean afrek sem engir í heim­inum höfðu unnið á undan þeim – nema reyndar tveir menn sem höfðu gert hið sama fáeinum mán­uðum fyrr. Hvað gerðu Conrad og Bean?
  11. Fyr­ir­bæri eitt ber alþjóð­legt heiti sem sumir telja að hafi upp­haf­lega þýtt „bitur drykkur“ en aðrir að mein­ingin hafi verið „heitt vatn“. Hvaða fyr­ir­bæri er þetta?
  12. Heitt vatn ein­kennir sann­ar­lega gos­hver­inn fræga Gamla Geysi sem ekki ber að rugla saman við Geysi í Haukadal. Hvar er Gamli Geysir?
  13. Fyrir hvað var Leni Riefen­sthal fræg? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.
  14. Í hvaða hafi eru Havaí-eyjar?
  15. Hvað heitir eig­in­maður Höllu Tóm­as­dóttur fullu nafni?


Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er stjörnu­þokan Andrómeda. Á seinni mynd­inni er Walt Disney. Vís­bend­ingin er hluti af eyra Mikka Músar en Disney skap­aði hann.
Svör við öðrum spurn­ingum:
1.  Signa.  —  2.  Ólafur Darri.  — 3.  Dauða­búðir þýskra nas­ista í seinni heims­styrj­öld.  —  4.  Starri.  —  5.  Flokk fólks­ins.  —  6.  Lyf.  —  7.  Sikiley.  —  8.  Afródíta.  —  9.  Jónatan.  —  10.  Gengu um á tungl­inu í Apollo 12.  —  11. Súkkulaði eða kakó, hvort tveggja telst rétt.  —  12.  Í Banda­ríkj­unum.  —  13.  Áróð­urs­myndir fyrir þýska nas­ista.  —  14.  Kyrra­hafi.  —  15.  Björn Skúlason.
Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár