Að ákveða framtíð Grænlands

Nú, þegar stytt­ist í þing­kosn­ingar á Græn­landi eru spurn­ingar um fram­tíð lands­ins, og hverjir eigi að ákveða hana, fleiri og áleitn­ari en oft áður. Krafa Græn­lend­inga um sjálf­stæði verður sífellt hávær­ari, ekki síst eftir yfir­lýs­ingar og, að sumra mati, hót­anir Banda­ríkja­for­seta um að Grænland verði hluti Banda­ríkj­anna.

Yfir­lýs­ing Donalds Trump árið 2019, á fyrra for­seta­tíma­bili hans, um að kaup á Græn­landi væru rétt eins og hver önnur landa­kaup vöktu mikla athygli. Ýmsir töldu að Trump hefði sagt þetta í hálf­kær­ingi en aðrir héldu því fram að honum hefði verið full alvara með orðum sínum. Nú er Donald Trump aftur orð­inn for­seti og af ummælum hans að dæma er hug­myndin um yfir­ráð Banda­ríkj­anna á Græn­landi ekki skyndi­hug­detta.

Hann hefur að minnsta kosti í tvígang eftir að hann tók við for­seta­emb­ætt­inu ítrekað þörf Banda­ríkj­anna fyrir yfir­ráð Græn­lands: „Greenland is a wonderful place, we need it for international security. I‘m sure that Denmark will come along,“ sagði Trump. 

Ekki eru allir á einu máli um hvernig bæri að túlka þessi ummæli for­set­ans en að minnsta kosti ljóst að hann stefnir að stór­auknum áhrifum á Græn­landi.

Hefur ýtt við Dönum

Ummæli Banda­ríkja­for­seta um Grænland hafa sann­ar­lega valdið titr­ingi. For­set­inn er sagður óút­reikn­an­legur og að margra mati erfitt að henda reiður á orðum hans. Dönsk stjórn­völd hafa sann­ar­lega hrokkið við, Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, hefur rætt málið á fundi með for­sæt­is­ráð­herrum Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands.

Utan­rík­is­ráð­herrar ESB-land­anna fund­uðu fyrr í vik­unni í Brussel þar sem „Græn­lands­málið“ var rætt ásamt ýmsu öðru, ekki síst hót­unum Trumps um stór­hækk­aða tolla á inn­flutn­ingi frá Evrópu til Banda­ríkj­anna. Lang­flestir danskir og græn­lenskir stjórn­mála­menn hafa lýst yfir að ekki komi til greina að Grænland verði hluti Banda­ríkj­anna. 

Meirihluti Dana vill viðhalda ríkjasambandinu

Í nýrri skoð­ana­könnun sem gerð var fyrir danska útvarpið, DR, og net­mið­il­inn alt­inget.dk kom fram að 70 pró­sent Dana vilja við­halda ríkja­sam­band­inu, rigs­fællesska­bet. Af þessum 70 pró­sentum vilja 27 pró­sent óbreytt ríkja­sam­band en 43 pró­sent vilja við­halda ríkja­sam­band­inu en auka áhrif og völd Græn­lend­inga í mál­efnum lands­ins. 17 pró­sent vilja slíta ríkja­sam­band­inu og að Grænland verði sjálf­stæð þjóð.

Skýr afstaðaKönnun DR leiddi í ljós afger­andi nið­ur­stöður á vilja Græn­lend­inga. Þeir hafa engan áhuga á að heyra undir Banda­ríkin.

Í sömu könnun sögðu 90 pró­sent nei við spurn­ing­unni um hvort Grænland ætti að verða hluti Banda­ríkj­anna, 7 pró­sent voru óákveðin eða vildu ekki svara en 3 pró­sent svör­uðu spurn­ing­unni ját­andi.

Vilja vera herrar í eigin húsi 

Meiri­hluti þing­manna á græn­lenska þing­inu (þing­menn eru 31) er hlynntur því að Grænland fái fullt sjálf­stæði en spurn­ingin sé hvenær það verði tíma­bært. „Allir óska sér auð­vitað að vera herra í eigin húsi og við viljum vita­skuld geta séð um öll okkar mál og borið á þeim ábyrgð. Fullt sjálf­stæði má ekki vera á kostnað lak­ari lífs­kjara íbúa lands­ins. Þess vegna þarf að vanda til verka og ekki hrapa að ákvörð­unum,“ sagði Mariane Paviasen, tals­maður Inuit Ataqatigiit, stærsta flokks­ins á græn­lenska þing­inu.

Sjálfstjórnarlögin

Í maí 2023 var lagt fram, á græn­lenska þing­inu, upp­kast að stjórn­ar­skrá fyrir sjálf­stætt Grænland. Síð­ast­liðið haust var skipuð nefnd sem ætlað er að ákveða næsta skref. Nefndin gengur undir nafn­inu para­graff 21 kommission, nafnið er dregið af þeirri laga­grein í sjálf­stjórn­ar­lög­unum sem fjallar um hvað sjálf­stæði Græn­lands merkir. Nefndin hefur tvö ár til að ljúka verk­efn­inu. 

Í sjálf­stjórn­ar­lög­unum segir eft­ir­far­andi um sjálf­stæði Græn­lands:

  • Ákvörð­un­ina um sjálf­stæði Græn­lands taka Græn­lend­ingar.
  • Sjálf­stæði skal ákveðið með þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á Græn­landi.

Ákvörðun um sjálf­stæði skal hljóta sam­þykki þings og rík­is­stjórnar Græn­lands og í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Græn­lend­inga. Ákvörð­unin skal enn fremur hljóta sam­þykki danska þings­ins, Fol­ket­inget.

Átak til að vinna gegn fordómum

Græn­lend­ingar hafa lengi mætt for­dómum í Danmörku. Sagt að þeir nenni ekki að vinna og vilji bara lifa á „kerf­inu“, sitji daglangt með bjór­flöskur á torgum og drekki sig gjarna útúr­fulla. Danir þekkja vel orðið grøn­lænd­er­stiv sem merkir að vera útúr­drukk­inn. Orðið, sem lengi hafði þekkst í dönsku máli, var tekið inn í dönsku orða­bók­ina árið 2017 og um þá ákvörðun urðu miklar umræður í danska þing­inu. Nú eru uppi háværar raddir um að fjar­lægja orðið úr orða­bók­inni, það sé niðr­andi og gild­is­hlaðið. Í orða­bók­inni er að finna fleiri gild­is­hlaðin og niðr­andi orð, til dæmis negermusik, sem merkir djass­tón­list eða svert­ingjatón­list og orðið perker um fólk af arab­ískum upp­runa eða frá Mið-Aust­ur­löndum.

Mánu­dag­inn 27. jan­úar kynnti danska rík­is­stjórnin sér­stakt átaks­verk­efni, í 12 liðum, sem ætlað er að vinna gegn for­dómum í garð Græn­lend­inga og er enn fremur til að hjálpa Græn­lend­ingum við að finna fót­festu í Danmörku. Meðal ann­ars að styrkja túlka­þjón­ustu fyrir Græn­lend­inga, auð­velda Græn­lend­ingum að ná valdi á dönsku og styrkja sjóði sem aðstoða atvinnu­lausa Græn­lend­inga við að fá vinnu. Enn fremur að Græn­lend­ingar fái sér­stakt vega­bréf, og fleira mætti nefna. 

Blaðaviðtal olli fjaðrafoki og kostaði ráðherrastól

Í sept­em­ber árið 2021 birti dag­blaðið Berl­ingske við­tal sem átti eftir að valda miklu fjaðrafoki á Græn­landi. Við­mæl­andi blaðs­ins var Pele Broberg, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands og for­maður Nalereaq-flokks­ins, þjóð­ern­is­sinn­aðs flokks sem hefur fimm full­trúa á græn­lenska þing­inu en á ekki lengur aðild að rík­is­stjórn­inni. Pele Broberg hefur í við­tölum verið mjög afdrátt­ar­laus stuðn­ings­maður sjálf­stæðis Græn­lands og er afar ósáttur við notkun orðs­ins rigs­fællesskab, ríkja­sam­band, sem hann vill ekki nota um sam­band Dan­merkur og Græn­lands. Þetta sé orð sem hafi verið fundið upp til að dul­búa yfir­ráð Dana yfir Græn­landi, sem hann telur að eigi að binda enda á sem allra fyrst.

Aðalefni við­tals­ins og það sem olli mestu fjaðrafoki voru ummæli hans um hverjum skyldi heim­ilt að kjósa um sjálf­stæði Græn­lands. Þótt danskir og græn­lenskir þing­menn og almenn­ingur hafi lýst því yfir að Græn­lend­ingar eigi að ákveða fram­tíð eigin lands, eins og stendur í upp­kast­inu að stjórn­ar­skránni, þykir Pele Broberg það ekki full­nægj­andi. „Einungis íbúar af græn­lenskum upp­runa eiga að kjósa um fram­tíð lands­ins,“ sagði Pele Broberg. Um þetta fór hann mörgum orðum í áður­nefndu við­tali árið 2021.

Leiðtogi Græn­lend­inga Múte Bourup Egede er for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands.

Ummælin urðu til þess að Múte B. Egede, for­maður lands­stjórn­ar­innar (for­sæt­is­ráð­herra), flutti utan­rík­is­málin frá Naleraq-flokknum og nokkrum mán­uðum síðar hætti Naleraq þátt­töku í rík­is­stjórn­inni en í stað hans kom Siumut-flokk­ur­inn inn í stjórn­ina. Stjórn­ar­flokk­arnir hafa 21 þing­mann, öruggan meiri­hluta.

Hverjir mega kjósa um sjálfstæði Grænlands?

Múte B. Egede, for­maður græn­lensku lands­stjórn­ar­innar, lýsti því yfir í kjöl­far við­tals­ins við Pele Broberg árið 2021 að allir íbúar Græn­lands hefðu sama rétt þegar kæmi að kosn­ingum um sjálf­stæði. Í sunnu­dags­út­gáfu Berl­ingske 26. jan­úar sl. birt­ist langt við­tal við Pele Broberg. Þar ítrekar hann þá skoðun sína að þegar kosið verði um sjálf­stæðið skuli ein­ungis íbúar af græn­lenskum upp­runa fá leyfi til að kjósa. „Upp­runinn á að ráða, ekk­ert annað,“ sagði Pele Broberg.

Samkvæmt núver­andi kosn­inga­lögum hafa danskir rík­is­borg­arar, sem búið hafa á Græn­landi í hálft ár, kosn­inga­rétt. „Slíkt fyr­ir­komu­lag er frá­leitt,“ sagði Pele Broberg, „Danir sem búa á Græn­landi eru ekki Græn­lend­ingar, þeir eru Danir. Munu Danir, búsettir á Græn­landi, kjósa sjálf­stæði? Ég tel það ólík­legt,“ sagði Pele Broberg og bætti við að „þessi hópur er það stór að hann gæti ráðið úrslitum í kosn­ingum“.

Íbúar Græn­lands eru nú um það bil 57 þús­und, um það bil 4 þús­und (sjö pró­sent) þeirra eru fæddir í Danmörku og um 2 þús­und íbúa Græn­lands eru erlendir rík­is­borg­arar.

Ekki ný umræða

Umræðan um að vera eða ekki vera Græn­lend­ingur er ekki ný af nál­inni. Ulrik Pram Gad, sem hefur árum saman rann­sakað sam­band Græn­lands og Dan­merkur, segir að umræðan um hver sé Græn­lend­ingur og hver ekki sé að minnsta kosti ald­ar­gömul. Hann sagði í við­tali við danska útvarpið að lík­leg­ast væri að núver­andi kosn­inga­lög verði látin gilda komi til kosn­inga um sjálf­stæði.

Til að mega taka þátt í kosn­ingum gildir nú eft­ir­far­andi:

  • Vera danskur rík­is­borg­ari (það eru Græn­lend­ingar).
  • Vera 18 ára.
  • Hafa fasta búsetu á Græn­landi og búið þar síð­ustu 6 mán­uði.
  • Fólk sem býr á Græn­landi, en er tíma­bundið erlendis, til dæmis í námi, hefur rétt til að kjósa.

Pele Broberg telur að rétta leiðin til að skera úr um hverjir séu Græn­lend­ingar og hverjir ekki sé upp­runa­skrán­ing. Þessa aðferð hafa Samar í Finn­landi notað og skrán­ing, að upp­fylltum skil­yrðum, veitir rétt til kosn­inga á þingi Sama. Nefnd á vegum græn­lensku lands­stjórn­ar­innar vinnur þessa dag­ana að því að kanna hvort þessi leið gæti hentað á Græn­landi. Nefndin á að skila áliti fyrir 19. febr­úar 2025.

Þing­kosn­ingar á Græn­landi eiga að fara fram eigi síðar en 6. apríl næst­kom­andi.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Góð grein. Allt sem skiptir máli í málinu kemur fram. Vonandi finna grænlendingar farsæla leið til framtíðar. Persónulega tel ég þá njóta verndar hjá Dönum hvað svo sem áður var en grænlendingar eiga að ráða eigin framtíð, örugglega ekki BNA. Það væri farsælast að BNA héldu áfram varnar- og efnahags-SAMSTARFI við dani og grænlendinga. Tilraunir Trömp til að þröngva fram tiltekinni útkomu til þess að komast í auðlindir eða finna öruggan stað fyrir tiltekinn hóp auðkýfinga er varhugaverð. Þetta er samningataktík Trömp og grænlendingar mættu vera meðvitaðir um það. Áhugi þessara aðila getur komið grænlendingum og dönum til góða en þeir þurfa að fara varlega í samskiptunum við Trömp teymið. Það er nokkuð víst að það hefur lítinn áhuga á velferð grænlendinga eða dana.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár