Kærir Sindra fyrir fjárdrátt í Tjarnarbíó: „Ég er sjálfur í miklu áfalli“

Snæbjörn Brynjars­son, leik­hús­stjóri Tjarn­ar­bíós, seg­ist vera í miklu áfalli vegna meints fjár­drátts fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra. Tjarn­ar­bíó mun leggja fram kæru á hendur Sindra Þór Sig­ríð­ar­syni sem er grun­aður um að hafa dregið sér minnst 13 millj­ónir á nokk­urra ára tíma­bili.

Kærir Sindra fyrir fjárdrátt í Tjarnarbíó: „Ég er sjálfur í miklu áfalli“
Leik­hús­stjóri Snæbjörn Brynjars­son vonar að lög­reglu­rann­sókn á mál­inu muni gefa heild­ar­mynd af því. Mynd: Golli

„Hann er grun­aður um fjár­drátt og svo sem margt annað sem mætti skoða í hans málum. Það sem okkur grunar er að hann hafi stundað fjár­drátt hérna alveg frá lok árs 2021 og að þetta séu veru­legar upp­hæðir.“

Þetta segir Snæbjörn Brynjars­son, leik­hús­stjóri Tjarn­ar­bíós, í sam­tali við Heim­ild­ina. Leik­húsið hyggst kæra Sindra Þór Sig­ríð­ar­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra leik­húss­ins, fyrir fjár­drátt sem tal­inn er hafa átt sér stað frá árinu 2021.

Sindri Þór hafði starfað um ára­bil hjá Tjarn­ar­bíói – fyrst sem mark­aðs­stjóri og síðan sem fram­kvæmda­stjóri.

Snæbjörn segir að upp­hæðin sé meira en 13 millj­ónir en ekki er hægt að fara út í nákvæma heild­ar­upp­hæð sem stendur. „Ég er sjálfur í miklu áfalli og gátt­aður á upp­hæð­inni. Ég hafði ekki ímynd­un­ar­afl í að halda að það væri eitt­hvað glæp­sam­legt í gangi né heldur að þetta væri á þessum skala.“ 

Grunur vaknaði eftir uppsögn Sindra

Sindra var sagt upp og lét af störfum um ára­mótin, en þá hafði Snæbjörn, sem hóf störf í haust, unnið með honum í nokkra mán­uði. Eftir að Snæbjörn sneri aftur til starfa eftir jóla­frí rakst hann á und­ar­lega hluti í reikn­ingum Tjarn­ar­bíós og ákvað þá að fá end­ur­skoð­enda­skrif­stofu til að skoða málið.

„Nú hef ég verið að skoða þetta með end­ur­skoð­endum og lög­manni og við sjáum ástæðu til þess að leggja fram kæru. Ég vona að lög­reglu­rann­sókn á mál­inu muni gefa okkur ein­hverja heild­ar­mynd af þessu.“

Sindri hafði verið fram­kvæmda­stjóri leik­húss­ins frá upp­hafi árs 2021 og varð pró­kúru­hafi undir lok þess árs. „Þetta er langt tíma­bil sem þetta hefur átt sér stað á. Svo virð­ist vera alveg síðan Friðrik Frið­riks­son lét af störfum hérna. Þá var stutt milli­bils­á­stand áður en nýr leik­hús­stjóri var ráð­inn inn þar sem Sindri tók við stöðu fram­kvæmda­stjóra og sá um að greiða út laun og reikn­inga og allt annað sem við­kom rekstr­inum,“ segir Snæbjörn.

Hafnaði ekki ásökununum

Leik­hús­stjór­inn bætir því við að hann hafi fundað með Sindra og lög­manni og að þar hafi Sindri ekki neitað þessum ásök­unum.

„Hann fetti fingur út í ein­hverjar ein­stakar færslur en hann virt­ist hafa ímyndað sér að hann gæti kannski samið sig ein­hvern veg­inn út úr þessu. Ég hef fyrst og fremst haft hags­muni Tjarn­ar­bíós og lista­mann­anna hérna efst í huga. Fyrir mér er mjög mik­il­vægt að end­ur­heimta sem mest af þessum pen­ingum og það var það sem við lögðum upp með – en í ljósi þess hvað þetta eru alvar­leg brot finnst mér ég ekki geta farið aðra leið en að kæra þetta,“ segir Snæbjörn, sem býst við því að kæran verði lögð fram í fyrra­málið. 

Spurður hvaða áhrif málið muni hafa á leik­húsið, sem er lítil og óhagn­að­ar­drifin starf­semi styrkt af Reykja­vík­ur­borg, segir Snæbjörn að öllu verk­lagi verði breytt. „Við þurfum alveg að end­ur­skoða hvernig við skipum í stjórn. Við þurfum líka að tryggja að eng­inn einn aðili hafi aðgang að banka­reikn­ingum og svo­leiðis – við erum nú þegar búin að bæta úr því.“ 

Þá segir Snæbjörn að þegar fram líði stundir sé hann til­bú­inn að hitta alla lista­menn og verk­taka sem hafi verið í hús­inu á þessum tíma sem um ræðir og fara yfir með þeim það sem varði þeirra mál. „Þannig að allt sé uppi á borðum og eng­inn þurfi að vera með ósvar­aðar spurn­ingar. Ég auð­vitað harma rosa­lega þetta mál.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár