Sigmundur Davíð ver Musk með hæpnum samanburði

Á meðan að öfga­menn og nýnas­istar víða um heim upp­lifa vald­efl­ingu og við­ur­kenn­ingu og fagna ankanna­legri kveðju Elons Musks spyr fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands hvort íslenskir fjöl­miðlar ætli í alvöru að flytja þá fals­frétt að handa­hreyf­ing sem leit út eins og nas­ista­kveðja, frá manni sem veitir öfga­fullum sjón­ar­miðum vængi flesta daga, hafi verið nas­ista­kveðja.

Sigmundur Davíð ver Musk með hæpnum samanburði
Nas­ista­kveðja Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins kom rík­asta manni heims til varnar eftir að frétta­vef­ur­inn mbl.is birti mynd­skeið af und­ar­legri kveðju hans og sagði í fyr­ir­sögn að Musk hefði heilsað að nas­istasið. Mynd: Samsett / Heimildin

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kom ankanna­legum handa­hreyf­ingum Elons Musks til varnar á sam­fé­lags­miðl­inum X í morgun. „Ætla íslenskir fjöl­miðlar að láta plata sig í að flytja þessa fals­frétt?“ skrif­aði Sig­mundur.

Hann deildi skjá­skoti af frétt á mbl.is með fyr­ir­sögn­inni: Mynd­skeið: Musk heils­aði að nas­istasið og um leið annarri mynd, sam­settri, af þeim Barack Obama, Hillary Clinton og Kamölu Harris með eina hönd pinn­stífa á lofti. Fyr­ir­sögn frétt­ar­innar á mbl.is var síðar breytt í Mynd­skeið: Kveðja Musk vekur athygli.

NasistarObama, Clinton og Harris hafa öll gerst sek um að lyfta hönd­unum á sér upp í loftið. Af hverju eru þau ekki kölluð nas­istar?

En er þetta svipað?

Sig­mundur hefur, eins og raunar margir aðrir sem hafa deilt sam­bæri­legum myndum til varnar Musk, verið spurður að því af hverju hann deili ekki líka mynd­skeiðum af handa­hreyf­ingum demókratanna þriggja sem sjást á …

Kjósa
83
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    En segjum sem svo að þetta sé rómversk kveðja eins og sumir vilja halda fram - en Illugi Jökulsson hér í Heimildinni sýnir fram á að er ekki: kveðja hvers Rómverja á það þá að vera?
    Kannski kveðja Cesars sem fór með (einka)her sinn í trássi við lögin yfir Rubicon og breytti lýðveldinu í einræðisríki?
    0
  • ingibjorg skrifaði
    Sigmundur er greinilega vel lesinn í Astrix bókunum.
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Nothing to do with Hitler (Nazi), or Mussolini (Fascist) nor Franco (Francist). It has all to do with the US's White Supremacy Movement.
    1
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Greinileg "hundablístru" aðferð. Kveðjan ratar til sinna.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár