„Óboðlegt og hættulegt svæði“

Helga Þórð­ar­dóttir, verð­andi aðal­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, segir borg­ina ekki hafa sinnt skyldum sínum gagn­vart íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar á Sæv­ar­höfða, þar sem eldur kvikn­aði í gær. „Þetta er ekki mönnum bjóð­andi,“ segir hún.

„Óboðlegt og hættulegt svæði“

„Þetta átti að vera tíma­bundin aðgerð og þau fengu þessa aðstöðu með því lof­orði að það ætti að finna nýjan stað. Fyrir utan það hvað þetta er ömur­legur aðbún­aður – þá er þetta bara hrein­lega hættu­legt.“

Þetta segir Helga Þórð­ar­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, um aðbún­að­inn á Sæv­ar­höfða þar sem hjól­hýsa­byggð hefur verið stað­sett í eitt og hálft ár. Helga segir að borgin hafi ekki sinnt skyldum sínum gagn­vart byggð­inni þar sem upp kom eldur í fyrr­inótt með þeim afleið­ingum að þrír hjól­hýsa­búar misstu heim­ili sín. „Þetta er óboð­legt og hættu­legt svæði,“ segir hún.

Aðspurð segir Helga að hún vilji að borgin fari í það að finna íbúum sem vilja búa í hjól­hýsum nýjan stað í borg­ar­land­inu. „Þannig sé þeim sýnd sú virð­ing sem þau eiga skilið, eins og allt mann­fólk.“

Skelfileg salernisaðstaða og engin þrif

Helga, sem mun …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Er sammála athugasemdum um fólkið, sem hefur ákveðið að búa í hjólhýsi eða bíl, hvers vegna á ég að borga fyrir það ? Sá sem ákveður einhvern tímann á lífsleiðinni að lifa þannig lífi getur ekki farið fram á að ég borgi fyrir þeirra ákvörðun ? Fólk er allskonar og lifir hver sínu lífi ? Við sem ákváðum að verða eitthvað og unnum okkar vinnu, og eignuðumst húsnæði eigum ekki að gjalda þess ? Það er sem þetta fólk er að fara fram á ?
    0
  • GS
    Gísli Sveinsson skrifaði
    Hvar er þetta fòlk með lögheimili ég geri ráð fyrir að það sé ekki hægt að vera með það í hjólhýsi og hvert borga þau útsvar ef ekki til borgarinnar þá eru þaug varla á ábyrgð hennar.
    1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þegar fólk er ekki með fastan bústað í skráðu íbúðarhúsnæði er lögheimilisskráning þess oftast "óskráður í hús" í því sveitarfélagi sem það átti síðast lögheimili. Ef Reykjavíkuborg myndi taka sig saman í andlitinu og bjóða þessum hópi fólks upp á viðunandi aðstöðu væri auðvelt að búa þannig um hnútana að þau þyrftu að hafa skráð lögheimili í borginni til að njóta þeirrar aðstöðu og tryggja þannig að þau greiði borginni útsvar. Ég efast reyndar stórlega um að það séu einhverjar verulegar upphæðir.
      1
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Dagur, Einar og þeirra nánustu samstarfsmenn líta niður á þetta fólk.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans
FréttirHjólhýsabyggðin

Íbúi telur borg­ina bera ábyrgð vegna brun­ans

Kona sem missti heim­ili sitt vegna elds­voð­ans á Sæv­ar­höfða í vik­unni segir Reykja­vík­ur­borg bera mikla ábyrgð. Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar hefði verið lofað að þeir fengju almenni­legt svæði en ekki hefði verið staðið við það. „Maður bara veltir fyrir sér hvað þurfi eig­in­lega að ger­ast til að menn vakni,” segir vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.
Heimilislaus eftir hjólhýsabrunann: Missti föður sinn í eldsvoða sem barn
FréttirHjólhýsabyggðin

Heim­il­is­laus eftir hjól­hýsa­brun­ann: Missti föður sinn í elds­voða sem barn

Þrír íbúar hjól­hýsa­hverf­is­ins á Sæv­ar­höfða eru heim­il­is­lausir eftir að eldur kom upp í einu hýsanna í nótt. „Hann stóð bara úti og grét,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir um við­brögð nágranna síns sem missti hús­bíl sinn. Sjálf missti hún heim­ili sitt í brun­anum en Geirdís hefur tvisvar áður á ævinni misst allt sitt í elds­voða. Í þeim fyrsta lést pabbi hennar.
„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár