Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans

Kona sem missti heim­ili sitt vegna elds­voð­ans á Sæv­ar­höfða í vik­unni segir Reykja­vík­ur­borg bera mikla ábyrgð. Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar hefði verið lofað að þeir fengju almenni­legt svæði en ekki hefði verið staðið við það. „Maður bara veltir fyrir sér hvað þurfi eig­in­lega að ger­ast til að menn vakni,” segir vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.

Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans
Óboðlegt til búsetu Vilberg Guð­munds­son og Berg­þóra Páls­dótt­ir segja að sér hafi verið afar brugðið þegar eld­ur­inn kom upp. Þau bjuggu bæði áður í Laug­ar­dalnum og hafa kallað eftir því að Reykja­vík­ur­borg standi við gefin orð um að finna hjól­hýsa­byggð­inni mann­sæm­andi stað, ann­ars staðar en á Sæv­ar­höfð­anum. Geirdís fékk að gista hjá Bergþóru nótt­ina sem brun­inn varð. Mynd: Golli

„Ég er búin að missa fullt, en ég missti ekki allt – það voru tveir sem gerðu það, þeir misstu allt. Það er bara ömur­legt,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi í hjól­hýsa­hverf­inu á Sæv­ar­höfða. Upp úr klukkan fjögur á mið­viku­dags­morg­un­inn var hún vakin af nágranna sínum í hjól­hýs­inu við hlið­ina á henni. Það var kviknað í.

Geirdís hljóp út í nátt­fötum og inni­skóm og meðan hún fylgd­ist með eld­inum eyði­leggja hýsi nágranna síns hugs­aði hún með sér: „Ekki einu sinni enn.“ Í elds­voð­anum á Sæv­ar­höfða missti Geirdís nefni­lega heim­ili sitt í bruna í þriðja skiptið á ævinni. Hjólhýsi hennar brann ekki – en ein hlið þess bráðn­aði vegna elds­ins sem geis­aði við hlið­ina á. Geirdísi tókst að bjarga sumum eigum sínum og hund­inum Tinnu en hjól­hýsið er ónýtt.

Geirdís segir að annar nágranni hennar, sem hafði verið á leið­inni úr landi þegar hann frétti af brun­anum og sneri …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Það þarf fólk að deyja til að ráðamenn vakni. Einar borgastjóri hefur obinberað mannfyrirlitningu sína í viðtölum. Dagur er stikkfrí, felur sig og ræðir ekki við nokkurn mann. Hann er þó stórsvikarinn þarna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

Heimilislaus eftir hjólhýsabrunann: Missti föður sinn í eldsvoða sem barn
FréttirHjólhýsabyggðin

Heim­il­is­laus eftir hjól­hýsa­brun­ann: Missti föður sinn í elds­voða sem barn

Þrír íbúar hjól­hýsa­hverf­is­ins á Sæv­ar­höfða eru heim­il­is­lausir eftir að eldur kom upp í einu hýsanna í nótt. „Hann stóð bara úti og grét,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir um við­brögð nágranna síns sem missti hús­bíl sinn. Sjálf missti hún heim­ili sitt í brun­anum en Geirdís hefur tvisvar áður á ævinni misst allt sitt í elds­voða. Í þeim fyrsta lést pabbi hennar.
„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár