Gjör­brunnið Íbúinn í hjól­hýs­inu vakti Geirdísi upp úr klukkan fjögur í nótt, fékk lánað slökkvi­tæki og bað hana að hringja á 112. Eldurinn læsti sig í hús­bílnum við hlið­ina. Mynd: Golli

Heimilislaus eftir hjólhýsabrunann: Missti föður sinn í eldsvoða sem barn

Þrír íbúar hjól­hýsa­hverf­is­ins á Sæv­ar­höfða eru heim­il­is­lausir eftir að eldur kom upp í einu hýsanna í nótt. „Hann stóð bara úti og grét,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir um við­brögð nágranna síns sem missti hús­bíl sinn. Sjálf missti hún heim­ili sitt í brun­anum en Geirdís hefur tvisvar áður á ævinni misst allt sitt í elds­voða. Í þeim fyrsta lést pabbi hennar.

„Sá sem bjó í hýs­inu við hlið­ina á mér var færður á sjúkra­hús til skoð­unar, mögu­lega með reyk­eitrun. Hinn var ekki heima. Sem betur fer. Við vorum skít­hræddar um að hann væri inni í bílnum.“ Þetta segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir í sam­tali við Heim­ild­ina en ein hliðin á hjól­hýs­inu sem hún hefur búið í bráðn­aði vegna hit­ans frá eld­tung­unum í hjól­hýs­inu sem brann í nótt.

Eldurinn kom upp í hjól­hýsa­hverf­inu við Sæv­ar­höfða en Geirdís vakn­aði upp úr klukkan fjögur í nótt við það að nágranni hennar úr hjól­hýs­inu við hlið­ina bank­aði hjá henni, sagði að það væri kviknað í og bað hana að hringja í 112. 

Geirdís og tíkin Tinna fengu inni í hjól­hýs­inu hjá Bebbu, nágranna þeirra, í nótt.

Eldurinn læsti sig einnig í hús­bíl sem stendur vestan við hýsið sem eld­ur­inn kom upp í og er hús­bíll­inn gjör­ó­nýtur. „Ég fór og ég barði bíl­inn allan að utan og hróp­aði nafnið hans,“ segir Geirdís en íbúi hús­bíls­ins var kom­inn út á flug­völl, á leið til Póllands, þegar kvikn­aði í. „Ég er rétt að jafna mig í lóf­unum, ég barði svo svaka­lega utan á bíl­inn,“ segir hún. 

Geirdís fór síðan um nótt­ina til Bergþóru Páls­dóttur, Bebbu, sem býr í hjól­hýs­inu austan við hennar og þar hefur hún fengið að vera síðan, ásamt tík­inni Tinnu, sem er blanda af íslenskum fjár­hundi og Border Collie, en Geirdís og Tinna eru nú heim­il­is­lausar. 

Hitinn frá hjól­hýs­inu sem brann í nótt náði að bræða hlið­ina á hjól­hýsi Geir­dísar þannig að hún getur ekki búið þar lengur.

Geirdís er for­maður Samtaka hjóla­búa, félaga­sam­taka sem berj­ast fyrir þeim sem vilja búa á hjólum – í hjól­hýsum og hús­bílum. Hún bjó áður í hjól­hýsa­byggð­inni í Laug­ar­dal en sum­arið 2023 var íbú­unum þar gert að flytja á Sæv­ar­höfð­ann, á óhirt iðn­að­ar­plan við hlið 40 metra sílóa þar sem gamla sem­ents­stöðin var áður til húsa.

Þar var komið upp raf­magnstenglum fyrir þau og borga þau 15 þús­und krónur á mán­uði fyrir aðgang að raf­magn­inu. Aðra þjón­ustu er þar ekki að fá. Hópurinn, tæp­lega tutt­ugu manns, flutti á Sæv­ar­höfð­ann með vil­yrði frá Reykja­vík­ur­borg um að það yrði aðeins tíma­bundin ráð­stöfun. Síðan er liðið rúm­lega hálft annað ár. 

„Ég get alveg full­yrt það að ef að Reykja­vík­ur­borg hefði staðið við það sem þau lof­uðu í  upp­hafi – að við fengjum almenni­legt svæði þar sem hægt væri að hafa almenni­legt bil á mili tækja – þá hefði þetta aldrei gerst. Þannig að mér finnst þeir bera stóra ábyrg í þessu máli. Það er bara svo­leiðis,“ segir Geirdís en hún er enn­fremur vara­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista.

„Það eru þrír heim­il­is­lausir út af þessu,“ segir hún .

Hjól­hýsið er gjör­brunnið og hús­bíll­inn vestan við það er einnig ónýtur eftir brun­ann.

Hún segir atburða­rás­ina hafa verið hraða þegar hún vakn­aði í nótt. „Sá sem býr í hýs­inu sem brann fór strax í að reyna að hafa sam­band við fólk hérna á svæð­inu og ég var sú fyrsta sem svar­aði honum. Klukkan var tutt­ugu mín­útur yfir fjögur þegar ég hringdi í Neyð­ar­lín­una,“ segir Geirdís. Þá var hún búin að lána nágrann­anum slökkvi­tæki. 

„Ég hljóp hérna út, á nátt­föt­unum og ber­fætt í inni­skónum og var þannig alveg þangað til slökkvi­liðið var langt komið með að slökkva eld­inn. Þá skaust ég inn til að sækja úlpuna mína og kulda­skóna,“ segir Geirdís sem náði varla að nema kuld­ann fyrr vegna áfalls­ins við að horfa upp á hjól­hýsi nágrann­ans brenna og hennar eigin hjól­hýsi bráðna vegna hit­ans. „Það eina sem ég hugs­aði var að ég von­aði að vind­áttin myndi ekki breyt­ast,“ segir hún, en í nótt stóð vind­ur­inn frá hennar hýsi og að því sem brann. 

Þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar hitti Geirdísi og Bebbu í hjól­hýsi þeirrar síð­ar­nefndu um hádeg­is­bilið í dag hafði Geirdís ekki náð að fara inn í sitt hýsi til að skoða stöð­una eða sækja neitt. Hún var bæði skjálf­hent og tárað­ist reglu­lega. 

„Ég er búin að missa fullt, en ég missti ekki allt – það voru tveir sem gerðu það, þeir misstu allt. Það er bara ömur­legt. En ég er tvisvar sinnum á ævinni búin að missa allt í bruna.“ Minn­ing­arnar hellt­ust yfir Geirdísi þegar hún horfði á eld­inn í nótt. 

„Í nótt hugs­aði ég: Ekki einu sinni enn. Ekki einu sinni enn.“
-Geirdís Hanna

„Í fyrra skiptið var ég tæp­lega fjög­urra ára gömul, og þá misstum við pabba minn líka. Ég var á leik­skól­anum þegar það gerð­ist. Eins og ég segi, við misstum allt. Mamma stóð uppi ein með sex börn. Í seinna skiptið kvikn­aði í blokk sem ég bjó í á Akureyri og eld­ur­inn byrj­aði í her­bergi á hæð­inni fyrir neðan okkur, beint fyrir neðan her­bergið mitt. Her­bergið mitt fór verst í það skiptið. Í nótt hugs­aði ég: Ekki einu sinni enn. Ekki einu sinni enn.“

Hún seg­ist varla skilja hvernig henni tókst að halda haus þegar lög­reglan kom í nótt. „Unga lög­reglu­konan sem tal­aði við mig  hafði orð á því hvað ég væri róleg og yfir­veguð, en þegar maður er búinn að verða fyrir svona mörgum áföllum í gegnum tíð­ina þá er sjokk­stuð­ull­inn orð­inn ansi hár,“ segir Geirdís. Síðan þá hafa þær Bebba verið saman, fengið sér kaffi og svarað þeim fjöl­mörgu sem eru búnir að hringja í þær til að athuga hvort það sé í lagi með þær. 

Þrjú heim­ili Hjólhýsi Geir­dísar er hér lengst til vinstri, hjól­hýsið sem eld­ur­inn kom upp í er fyrir miðju, og hús­bíll­inn sem eld­ur­inn læsti sig einnig í er ónýtur.

Í síð­asta mán­uði fjall­aði Heim­ildin ítar­lega um aðbúnað fólks­ins sem býr í hjól­hýsa­hverf­inu á Sæv­ar­höfða. Þeim var upp­haf­lega sagt að þau þyrftu að flytja úr Laug­ar­dalnum og á Sæv­ar­höfð­ann þar sem byggðin yrði í 8 til 12 vikur en síðan yrði þeim fund­inn annar staður til að búa á. Íbú­arn­ir héldu þar sín önn­ur jól fyrir skemmstu og vita ekk­ert hvert fram­hald­ið verð­ur.

Engin rétt­indi fylgja þessu búsetu­formi – að búa í hjól­hýsi eða hús­bíl; þau geta ekki skráð lög­heim­ili sitt þar sem þau búa, eiga þar af leið­andi ekki rétt á heim­il­is­upp­bót, geta ekki fengið póst, hafa ekki aðgang að rusla­tunnum og þegar frystir er aðeins hægt að fá renn­andi vatn inni í gömlu steypu­stöð­inni. Þarna eru alla jafna 17 til 20 hýsi og íbú­arnir eru lang­þreyttir á að fá engin svör frá borg­inni um fram­tíð sína. 

„Hann stóð bara úti og grét“
-Geirdís Hanna
lýsir við­brögðum nágranna síns sem missti heim­ili sitt

Þrátt fyrir að hafa ekki brunnið er hjól­hýsi Geir­dísar ónýtt. Hún seg­ist þó vera heppin miðað við þá sem bjuggu í hjól­hýs­inu og hús­bílnum sem brunnu. „Ég á eftir að fara inn og skoða hversu stórt tjónið þar er; hvað ég á eftir af heilum rúm­fötum og fötum. Ég var þarna áðan og það er súr bruna­lykt, þetta er allt ógeðs­legt,“ segir hún. Geirdís náði þó að bjarga því dýrasta í krónum talið, tölv­unni sinni til dæmis.  

Maðurinn sem býr í hús­bílnum kom aftur heim í leigu­bíl af flug­vell­inum eftir að hann frétti af brun­anum. Bebba og Geirdís segja hann hafa brotnað niður þegar hann sjá hús­bíl­inn sinn, heim­ilið sitt ónýtt. „Hann stóð bara úti og grét,“ segir Geirdís. 

Þær segj­ast enn ekk­ert vita um hvernig eld­ur­inn kom upp, það eigi eftir að rann­saka. 

Allt sem gat brunnið brann

Geirdís seg­ist hafa hringt í trygg­inga­fé­lagið sitt í morgun, um leið og opn­aði, en hún er alls­endis óviss um hvað hún fær bætt. „Hýsið mitt er það gam­alt að það er óvíst að ég fái alla trygg­ing­ar­upp­hæð­inga greidda út, og sú upp­hæð sem það er tryggt fyrir dugar ekki fyrir nýju hýsi. Af því ég er ekki með skráð lög­heim­ili neins staðar þá get ég ekki fengið lán. Þetta verður því mikið púslu­spil á næst­unni.“

„Þó að ég sé tíma­bundið heim­il­is­laus þá missti ég ekki allt“
-Geirdís Hanna

Margir hafa þegar haft sam­band og boðið henni að gista þangað til hún er komin með nýtt heim­ili, hvernig eða hvar sem það verður. „Við eigum mikið af góðu fólki sem ég veit að mun halda utan um okkur,“ segir hún og kjáir framan í tík­ina Tinnu sem hefur fylgt henni í fjögur ár. „Hún er svona rescue-hundur. Ég fékk hana í gegnum Dýra­hjálp þegar hún var rúm­lega tveggja ára,“ segir Geirdís. 

Þrátt fyrir skjálft­ann og tárin sem reyna að brjót­ast fram þá reynir hún að líta á björtu hlið­arnar. „Þó að ég sé tíma­bundið heim­il­is­laus þá missti ég ekki allt. Dýrið mitt bjarg­að­ist. Við slös­uð­umst ekki. En fyrir mann­eskju með flókna áfallastreituröskun þá er þetta ekki auð­velt. Ég hef samt verið dug­leg í gegnum árin að safna í verk­færakistil­inn minn, og ég á góða að,“ segir Geirdís, og snýr sér að Bebbu: „Við erum búnar að vera vin­konur síðan við spil­uðum keilu saman á Akureyri. Bebba er nátt­úru­lega bara dásam­leg.“

Og það var til hennar sem Geirdís leit­aði í nótt. 

„Ég spurði hvort ég mætti vera inni hjá henni í nótt, bara koma mér fyrir í horn­inu en við náðum svo ekk­ert að sofna aftur. Nú er bara að meta stöð­una og ganga í það sem þarf að ganga í.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans
FréttirHjólhýsabyggðin

Íbúi telur borg­ina bera ábyrgð vegna brun­ans

Kona sem missti heim­ili sitt vegna elds­voð­ans á Sæv­ar­höfða í vik­unni segir Reykja­vík­ur­borg bera mikla ábyrgð. Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar hefði verið lofað að þeir fengju almenni­legt svæði en ekki hefði verið staðið við það. „Maður bara veltir fyrir sér hvað þurfi eig­in­lega að ger­ast til að menn vakni,” segir vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.
„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár