„Ég kalla þetta svítuna“

Vilberg Guð­munds­son hefur búið í hús­bíl í níu ár. Hann og þáver­andi konan hans ákváðu þá að selja íbúð­ina sína og keyptu hús­bíl á Flórída. Þau skildu síðar og hann er að fóta sig á nýjan hátt. Vilberg er einn þeirra sem býr í hjól­hýsa­byggð­inni við Sæv­ar­höfða. „Ég skil ekki af hverju við máttum ekki vera áfram í Laug­ar­dalnum,“ segir hann.

„Ég kalla þetta svítuna“
Ruggað í rok­inu Hús­bíll­inn hans Villa er sá langstærsti á svæð­inu og búinn flestum nútíma­þæg­indum, þó hann eigi til að rugga í roki. Mynd: Golli

Vilberg Guð­munds­son og þáver­andi konan hans ákváðu árið 2015 að selja íbúð sína í Breið­holt­inu og kaupa sér vand­aðan hús­bíl. „Þetta er ekki hús­bíll, þetta er ferða­svíta,“ sagði yngri systir hans hrifin þegar hún sá bíl­inn fyrst. Vilberg, eða Villi, er mjög stoltur af hús­bílnum og finnst skemmti­legt að upp­lifa það á ferða­lögum að veg­far­endur vilja fá að skoða bíl­inn nánar, bíl­inn sem einnig er heim­ili hans.

„Ég sagði við kon­una mína: Eigum við að vera í þessu í ell­inni, að gera upp blokk í Breið­holti?“

Þau hjónin áttu íbúð í Vest­ur­bergi, í húsi sem var byggt árið 1973. Þegar þau fluttu inn tóku þau allt í gegn: „Nýtt parket, nýtt bað, nýtt eld­hús, skápar, allt saman.“ Einn dag­inn fengu þau þær upp­lýs­ingar frá for­manni hús­fé­lags­ins að það þyrfti að skipta um þak á blokk­inni …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Óþolandi þegar ekki er komið til móts við vilja fólks, heldur bara ýtt út í horn eins og rusli! Til þess eru stjórnmálamenn til að þjóna en ekki segja fólki hvar og hvernig þeir eigi að lifa. Reykjavíkurborg á að koma upp hjólhýsahverfi eða útbúa slíkt í Laugardal!
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.
„Aldrei verið í boði að gefast upp“
SkýringHjólhýsabyggðin

„Aldrei verið í boði að gef­ast upp“

Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar í Laug­ar­dalnum var sagt að þau þyrftu að flytja upp á Sæv­ar­höfða í 8 til 12 vikur og síðan yrði þeim fund­inn annar staður til að búa á. Síðan eru liðnar 78 vikur. Íbúarnir halda nú þar sín önnur jól og vita ekk­ert hvert fram­haldið verður. „Ég er nátt­úr­lega brjáluð,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á svæð­inu og for­maður Samtaka hjóla­búa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár