Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða fær nýjan samastað

Hjól­hýsa­hverf­inu á Sæv­ar­höfða verður fundin ný stað­setn­ing í sam­ræmi við sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu nýs meiri­hluta í Reykja­vík. Fyrri borg­ar­stjóri sagði slíkt ekki koma til skoð­unar þannig að um stefnu­breyt­ingu er að ræða. „Okkur finnst mik­il­vægt að mæta þessum hópi,“ segir for­seti borg­ar­stjórnar.

Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða fær nýjan samastað
Á óhirtu iðn­að­ar­plani Alla jafna eru 17 til 20 hjól­hýsi og hús­bílar á Sæv­ar­höfð­anum, og íbú­arnir enn fleiri. Mynd: Golli

Í sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu nýs meiri­hluta í Reykja­vík er sér­stak­lega fjallað um „heim­ili á hjólum“ í kafl­anum um hús­næð­is­mál og til stendur að finna hjól­hýsa­byggð­inni við Sæv­ar­höfða nýjan stað. „Okkur finnst mik­il­vægt að mæta þessum hópi,“ segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar og borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. 

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, for­seti borg­ar­stjórnar.

Tæp tvö ár á iðnaðarplaninu

Íbúum hverf­is­ins var til­kynnt þegar þeim var gert að flytja úr Laug­ar­dalnum að þau þyrftu aðeins að vera á Sæv­ar­höfða í tvo til þrjá mán­uði, en síðan eru liðnir 20 mán­uðir – bráðum tvö ár. Hjól­hýsa­byggðin hefur þennan tíma verið á óhirtu iðn­að­ar­plani við hlið 40 metra sílóa þar sem gamla sem­ents­stöðin var áður til húsa. Komið var upp raf­magnstenglum og borga þau 15 þús­und krónur á mán­uði fyrir aðgang að raf­magni. Aðra þjón­ustu er þar ekki að fá. Íbúar hafa síð­ustu miss­eri barist fyrir því að hjól­hýsa­byggð­inni verði fundin mann­sæm­andi stað­setn­ing og hafa þeir verið afar ósáttir við afstöðu fyrri borg­ar­stjóra.

Sanna segir að fyrsta skrefið nú sé að heyra í þeim sem búa á Sæv­ar­höfða „sem er óboð­leg stað­setn­ing, og útfæra þetta nánar í sam­ráði við hjóla­búa. Það er mjög mik­il­vægt að við finnum góða stað­setn­ingu í nálægð við helstu sam­göngur. Við sam­mælt­umst um að það þyrfti að finna betri stað­setn­ingu,“ segir hún og vísar til nýs meiri­hluta í Reykja­vík. Hann er mynd­aður af fimm flokkum; Sam­fylk­ing­unni, Pírötum, Vinstri grænum, Sós­í­alista­flokknum og Flokki fólks­ins, en full­trúar þeirra tveggja síð­ast­nefndu höfðu end­ur­tekið kraf­ist úrbóta fyrir íbúa hjól­hýsa­byggð­ar­innar en ekki fengið hljóm­grunn. Þessir flokkar komu inn í meiri­hluta­sam­starf í borg­inni í fyrsta skipti eftir að Framsókn sleit síð­asta meiri­hluta í byrjun febr­úar. 

Hjólabúar fagna

Nokkur ár eru síðan til varð lítið sam­fé­lag fólks sem býr í hjól­hýsum eða hús­bílum og hafð­ist við á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dal í Reykja­vík. Fyrst um sinn voru þau þar aðeins á vet­urna en viku fyrir ferða­mönnum á sumrin. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn geis­aði fengu þau að búa á svæð­inu allt árið um kring, og borg­uðu leigu­verð fyrir lang­tíma­stæði. Þegar ferða­þjón­ustan tók aftur við sér var ákveðið að fram­lengja ekki leigu­samn­inga þeirra og þeim vísað burt, meðal ann­ars með þeirri rök­semda­færslu að það færi ekki saman að hafa íbúa og ferða­menn á sama svæð­inu. 

Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á Sæv­ar­höfða og for­maður Samtaka hjóla­búa.

Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir, íbúi á Sæv­ar­höfða og for­maður Samtaka hjóla­búa, sem eru félaga­sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum þeirra sem vilja búa á hjólum, í hjól­hýsum eða hús­bílum, seg­ist fagna þeim fregnum að hjól­hýsa­byggð­inni verði fund­inn nýr staður. Enn hefur eng­inn fundur verið hald­inn með íbúum um málið og veit hún því ekk­ert um fram­haldið, en er von­góð. Geirdís, sem enn fremur er vara­borg­ar­full­trúi Sós­í­alista, hefur harð­lega gagn­rýnt að borgin komi ekki til móts við fólk sem reynir að bjarga sér með því að búa í hjól­hýsi, á hús­næð­is­mark­aði þar sem er bæði dýrt og erfitt að fá íbúð.

Samhljómur hjá nýjum meirhluta

Einar Þor­steins­son, þáver­andi borg­ar­stjóri, gaf ekki kost á við­tali fyrir umfjöllun Heim­ild­ar­innar um hjól­hýsa­byggð­ina í des­em­ber heldur vís­aði í fyrri orð sín um að það komi ekki til skoð­unar að finna annað svæði fyrir hjól­hýsa­byggð í borg­inni. Hann hafði meðal ann­ars beint íbú­unum á tjald­svæði í nágranna­sveit­ar­fé­lögum og sagði að það væri ekki hlut­verk borg­ar­innar að nið­ur­greiða úrræði fyrir fólk sem kjósi að búa í hjól­hýsi. 

„Það gengur ekki að þau séu þarna á Sæv­ar­höfð­anum
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir
for­seti borg­ar­stjórnar

Sanna seg­ist ekki geta svarað fyrir afstöðu fyrri meiri­hluta en mik­ill sam­hljómur sé í áherslum nýja meiri­hlut­ans vegna máls­ins: „Við sem komum að þessu sam­starfi erum sam­mála um að það þurfi að finna betri stað­setn­ingu fyrir þennan hóp. Það er mjög ánægju­legt að fara í þetta verk­efni því það gengur ekki að þau séu þarna á Sæv­ar­höfð­anum.“

Hún segir nokkrar stað­setn­ingar þegar vera til skoð­unar en ekk­ert liggi hins vegar fyrir um hvorki end­an­lega stað­setn­ingu né hvenær íbú­arnir geti flutt hýsin á nýjan stað. „En von­andi gengur þetta hratt og örugg­lega,“ segir Sanna. 

Kjósa
57
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hjólhýsabyggðin

Íbúi telur borgina bera ábyrgð vegna brunans
FréttirHjólhýsabyggðin

Íbúi telur borg­ina bera ábyrgð vegna brun­ans

Kona sem missti heim­ili sitt vegna elds­voð­ans á Sæv­ar­höfða í vik­unni segir Reykja­vík­ur­borg bera mikla ábyrgð. Íbúum hjól­hýsa­byggð­ar­innar hefði verið lofað að þeir fengju almenni­legt svæði en ekki hefði verið staðið við það. „Maður bara veltir fyrir sér hvað þurfi eig­in­lega að ger­ast til að menn vakni,” segir vara­borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins.
Heimilislaus eftir hjólhýsabrunann: Missti föður sinn í eldsvoða sem barn
FréttirHjólhýsabyggðin

Heim­il­is­laus eftir hjól­hýsa­brun­ann: Missti föður sinn í elds­voða sem barn

Þrír íbúar hjól­hýsa­hverf­is­ins á Sæv­ar­höfða eru heim­il­is­lausir eftir að eldur kom upp í einu hýsanna í nótt. „Hann stóð bara úti og grét,“ segir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir um við­brögð nágranna síns sem missti hús­bíl sinn. Sjálf missti hún heim­ili sitt í brun­anum en Geirdís hefur tvisvar áður á ævinni misst allt sitt í elds­voða. Í þeim fyrsta lést pabbi hennar.
„Þetta er eins og að búa í einbýlishúsi“
VettvangurHjólhýsabyggðin

„Þetta er eins og að búa í ein­býl­is­húsi“

Bergþóra Páls­dóttir, Bebba, hefur unun af því að fá gesti til sín í hjól­hýsið og finnst þetta svo­lítið eins og að búa í ein­býl­is­húsi. Barna­börnin koma líka í heim­sókn en þau geta ekki farið út að leika sér í hjól­hýsa­byggð­inni í Sæv­ar­höfð­anum: „Þau skilja ekki af hverju við vorum rekin úr Laug­ar­dalnum og sett á þennan ógeðs­lega stað.“
Við erum ekkert „trailer trash“
VettvangurHjólhýsabyggðin

Við erum ekk­ert „trailer trash“

Lilja Karen varð ólétt eftir glasa­frjóvgun þegar hún bjó á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum og á dög­unum fagn­aði dóttir hennar árs afmæli. Afmæl­is­veislan var haldin í hjól­hýsi litlu fjöl­skyld­unnar á Sæv­ar­höfða, þar sem þær mæðgur búa ásamt hinni mömm­unni, Frið­meyju Helgu. „Okkar til­finn­ing er að það hafi verið leitað að ljótasta staðnum fyrir okkur,“ segir Friðmey, og á þar við svæðið sem Reykja­vík­ur­borg fann fyrir hjól­hýsa­byggð­ina.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár