Fjögur ár frá árásinni á Bandaríkjaþing

Eftir að Donald Trump tap­aði í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í árs­lok 2020 hélt hann því ítrekað fram að svindl hafi leitt til þess að hann tap­aði. Á fundi með stuðn­ings­mönnum sínum þann 6. jan­úar 2021 sagði hann: „Við munum aldrei gef­ast upp.“ Skömmu síðar réð­ust stuðn­ings­menn hans inn í banda­ríska þing­húsið. Seinna í þessum mán­uði tekur Trump aftur við emb­ætti sem for­seti Banda­ríkj­anna.

Fjögur ár frá árásinni á Bandaríkjaþing

Fjögur ár eru síðan stuðn­ings­menn Donalds Trumps, þá frá­far­andi Banda­ríkja­for­seta, réð­ust á þing­húsið í Washington á meðan fundur beggja deilda Banda­ríkja­þings stóð yfir.

Frá því til­kynnt var að Joe Biden væri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna og yrði þar með næsti for­seti lands­ins, hafði Trump end­ur­tekið sakað and­stæð­inga sína um kosn­inga­svindl og sagt að sigrínum hafi verið rænt af sér. Þegar stuðn­ings­menn hans réð­ust inn í þing­húsið var það eitt af mark­mið­unum að koma í veg fyrir að þingið stað­festi atkvæði kjör­manna­ráðs­ins úr þá nýaf­stöðnum for­seta­kosn­ingum.

Þessi árás átti sér stað 6. jan­úar 2021. Í dag, 6. jan­úar 2025, stendur til að þingið stað­festi atkvæði kjör­manna­ráðs­ins úr nýaf­stöðnum kosn­ingum, en þar stóð Trump uppi sem sig­ur­veg­ari. Hann verður form­lega vígður í emb­ætti þann 20. þessa mán­aðar. 

Trump var ákærður fyrir aðild sína að þess­ari árás, og varð þá fyrsti Banda­ríkja­for­set­inn til að vera ákærður fyrir þing­inu tvisvar. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Og þennan endemis drullusokk kjósa Kanar til að stýra landinu. Illa er komið fyrir þessari vesalings þjóð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár