Trump ákærður í annað sinn, fyrstur forseta

Full­trúa­deild Banda­ríkja­þings hefur sam­þykkt að ákæra Donald Trump for­seta fyrir að hvetja til upp­reisnar. Tíu repúblikanar sam­þykktu ákæruna.

Umræður í fulltrúadeildinni Bein útsending frá umræðum í fulltrúadeildinni.

Sögu­legar umræður í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings um ákæru á hendur Donald Trump fyrir alvar­lega glæpi og mis­gjörðir end­uðu með því að ákæra var sam­þykkt rétt í þessu.

Trump er fyrsti Banda­ríkja­for­set­inn til þess að verða ákærður fyrir þing­inu tvisvar.

Nú þegar Af 435 þing­mönnum í full­trúa­deild­inni sam­þykktu 232 að ákæra Trump - þar af 10 þing­menn repúblik­ana. 197 þing­menn repúblik­ana höfn­uðu því að ákæra for­set­ann. 

„For­set­inn verður að verða ákærður og ég trúi því að for­set­inn verði dæmdur af öld­unga­deild­inni, með stjórn­ar­skrár­bundnu úrræði sem mun tryggja lýð­ræð­inu öruggt skjól frá þessum manni sem er alger­lega stað­ráð­inn í að rífa niður það sem okkur er kært og sam­einar okkur. Það færir mér enga ánægju að segja þetta. Það brýtur í mér hjartað,“ sagði Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deild­ar­innar fyrir hönd demókrata, í umræð­unum í kvöld.

Adam Schiff, demókrati frá Kali­forníu sem leiddi fyrra ákæru­ferlið í full­trúa­deild­inni, sem kom til vegna til­rauna Trumps til nota hern­að­ar­að­stoð til Úkraínu sem vog­ar­afl til þess að fá þar­lend yfir­völd til að rann­saka Joe Biden og son hans, Hunter, sagði Banda­ríkin hafa „gengið í gegnum borg­ara­stríð, heims­styrj­aldir, heims­far­aldra, McCarthyisma, og nú trumpíska upp­reisn hvítra þjóð­ern­is­sinna“. „En samt lifir lýð­ræðið af. Það lifir vegna þess að við hver vega­mót, á öllum lyk­il­stundum, þegar illt ógnar stöðu hins góða, stíga þjóð­hollir Banda­ríkja­menn fram og segja „nóg komið“. Þetta er eitt af þessum augna­blikum.“

Reyndi að framkalla kosningasvik

Í ákærunni segir að Trump hafi egnt múg fólks til upp­reisnar gegn Banda­ríkj­unum. Hann er einnig ákærður fyrir sím­tal sitt til inn­an­rík­is­ráð­herra Georg­íu­ríkis, þar sem hann „mis­not­aði vald emb­ættis síns með því að hóta kjörnum full­trúa með óljósum afleið­ingum ef hann hlýddi ekki ósönnum ásök­unum og reyndi að þvinga kjör­inn full­trúa til að fremja umboðs­svik“.

Í stjórn­ar­skrá er kveðið á um að hver sá sem tekið hafi þátt í upp­reisn gegn Banda­ríkj­unum sé úti­lok­aður frá opin­beru emb­ætti. „Með fram­ferði sínu sem for­seti Banda­ríkj­anna og í bága við stjórn­ar­skrár­bundna skyldu hans til að sinna emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna af heil­indum og við­halda, vernda og verja stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna, og í bága við stjórn­ar­skrár­bundna skyldu sína að tryggja að lögum sé fram­fylgt af heil­indum, mis­not­aði Donald John Trump vald sitt sem for­seti í því skyni að espa upp ofbeldi og stýra valda­ránstil­raun gegn landi okkar.“

Nany PelosiMúgurinn sem braust inn í þing­húsið fyrir viku leit­aði meðal ann­ars að for­seta full­trúa­deild­ar­innar, Nancy Pelosi, sem hér sést á göngum Þing­húss­ins fyrr í dag.

Trump hafi egnt múg gegn þinginu

Egningu múgsins er lýst með eft­ir­far­andi hætti í ákærunni:

„Hann egndi hóp stuðn­ings­manna sinna í Washington til þess að ráð­ast með ofbeldi gegn Þing­hús­inu í Washington meðan báðar deildir Banda­ríkja­þings héldu þing­fund, með orð­unum: „Þið munið aldrei taka land okkar aftur með veik­leika. Þið verðið að sýna styrk og þið verðið að vera sterk“. Eftir að þessir stuðn­ings­menn höfðu ruðst inn í Þing­húsið með ofbeldi, sendi hann frá sér aðra yfir­lýs­ingu og end­ur­tók ósannar full­yrð­ingar um kosn­inga­svik og sagði með­limum múgsins: „Við elskum ykkur, þið eruð mjög sér­stök.“

Í ræðu sinni undir yfir­skrift­inni Save America, fyrir umræður á þing­inu 6. jan­úar, sagði Trump stuðn­ings­mönnum að for­seta­kosn­ing­unum væri stolið af sér og þeim. Hann hafi unnið kosn­ing­arnar „með yfir­burðum“. Hann sagði að „aðrar reglur“ giltu. Þá sagði hann: „Ef Mike Pence [vara­for­seti] gerir hið rétta, vinnum við kosn­ing­arnar.“ Hann hvatti hóp­inn til að berj­ast. „Ef þið berj­ist ekki af fullu afli [e. like hell], munið þið ekki lengur eiga land.“

Á einum tíma­punkti sagð­ist hann í ræðu sinni búast við að hóp­ur­inn myndi mar­sera að Þing­hús­inu og láta í sér heyra „frið­sam­lega“ og „af föð­ur­lands­ást“.

„Hann sagði hópnum nákvæm­lega að mót­mæla frið­sam­lega og af föð­ur­lands­ást. Og mik­ill meiri­hluti þeirra gerði það. En í öllum hreyf­ingum er geð­bil­aður jaðar,“ sagði repúblikan­inn Tom McClintock frá Kali­forníu. 

Bæði sonur hans, Donald Trump jr, og lög­fræð­ingur, Rudy Giuliani, við­höfðu það orð­færi að þyrfti að berj­ast. Þannig sagði Giuliani að „bar­daga“ þyrfti til að skera úr um málið.

Segja ákæruna draga úr samstöðu

Margir þing­manna repúblik­ana hafa sagt að til­raunin til að ákæra Donald Trump komi í veg fyrir ein­ingu og sam­stöðu á við­kvæmum tímum. Þá segja þeir ákæruna gagns­lausa, enda sé aðeins rúm vika í að Trump láti af emb­ætti. Loks vara þeir við því að ákæra án rann­sóknar skapi hættu­legt for­dæmi. Jafn­framt hafa repúblikanar gagn­rýnt að tján­ing­ar­frelsið sé í hættu vegna ákvarð­ana sam­fé­lags­miðla um að loka á Trump á grund­velli þess að hann hvetji til ofbeldis.

„Ég er ekki hræddur um að missa starfið, en ég er hræddur um að landið mitt muni brotna,“ sagði Jamie Herrera Beutler úr Washingtonríki, sem var einn tíu repúblik­ana til að sam­þykkja ákæruna.

Til þess að Trump verði fjar­lægður úr emb­ætti þarf öld­unga­deild Banda­ríkja­þings, sem telur 100 þing­menn auk odda­at­kvæðis vara­for­seta Banda­ríkj­anna, að stað­festa ákæruna með auknum meiri­hluta tveimur þriðju þing­manna. Samkvæmt fréttum í helstu fjöl­miðlum í Band­ríkj­unum hefur Mitch McConnell, leið­togi repúblik­ana og þar með meiri­hlut­ans í öld­unga­deild­inni fram að valda­skipt­unum eftir rúma viku, hvatt til ákæru gegn Trump á bak­við tjöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár