Á þröskuldi breytinganna

Fámennið hér­lendis er stað­reynd sem maður áttar sig betur á við að hafa starfað erlendis sam­kvæmt Ingi­björgu Sólrúnu Gísla­dóttur og segir hún okkur þurfa á því að halda að vera hluti af stærri heild sem geti stutt okkur við að efla stjórn­sýsl­una og stjórn­kerfið. Þar sé Evr­ópu­sam­bandið og krísu­stjórnun þess annað skýrt dæmi.

Á þröskuldi breytinganna
Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir fyrrum for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, borg­ar­stjóri, þing­maður og ráð­herra verður sjö­tug nú á gaml­árs­dag. Hún var í ítar­legu við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar sem helgað er alþjóða­málum og kom út þann 20. des­em­ber. Mynd: Golli

Þegar Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir lauk stjórn­mála­ferl­inum á Íslandi þá sótti hún um stöðu hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum til að verða yfir­maður UN Women í Afganistan í Kabúl þar sem hún starf­aði 2011-2013. Þaðan fór hún til að setja á fót svæð­is­skrif­stofu UN Women fyrir Evrópu og Mið-Asíu sem stað­sett er í Istanbúl í Tyrk­landi þar sem hún starfar til árs­ins 2017. Þriðja staðan sem hún sinnir næstu þrjú árin er að stýra lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­skrif­stofu Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu sem starf­rækt er í Varsjá í Póllandi. Verkefni stofn­un­ar­innar er að hafa eft­ir­lit með lýð­ræð­is­mál­efnum, eins og að sinna kons­inga­eft­ir­liti og mann­rétt­indum í lönd­unum. Loks tekur hún árið 2021 að sér fjórða verk­efnið, sem var að vera sér­stakur sendi­full­trúi António Guterres aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna í Bagdad í Írak þar sem mik­il­vægar kosn­ingar áttu sér meðal ann­ars stað á því ári. Síðustu þrjú ár hefur Ingi­björg Sólrún sinnt til­teknum verk­efnum við kosn­inga­eft­ir­lit, nú síð­ast með Evr­ópu­þings­kosn­ing­unum. 

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir fyrrum for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, borg­ar­stjóri, þing­maður og ráð­herra verður sjö­tug nú á gaml­árs­dag. Hún var í ítar­legu við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar sem helgað er alþjóða­málum og kom út þann 20. des­em­ber.

Ingi­björg Sólrún segir meðal ann­ars frá því í við­tal­inu að íslensk stjórn­völd hafi ekki viljað þiggja aðstoð við kosn­inga­lög­gjöf­ina hér­lendis frá ODIHR lýð­ræðis- og mann­rétt­inda­stofn­un­inni sem hún stýrði í Varsjá, þrátt fyrir að það væri Íslend­ingum að kostn­að­ar­lausu sem aðilar að Öryggis- og sam­vinnu­stofn­un­inni, ÖSE. Hún er einnig mjög gagn­rýnin á það að Varn­ar­mála­stofnun hafi verið lögð niður og verk­efnum hennar deilt á marga staði. Við stöndum nú verr að vígi varð­andi þekk­ingu á sviði öryggis- og varn­ar­mála – einmitt þegar að staðan í heim­inum sé þannig að mik­illar þekk­ingar og reynslu væri þörf á hér í þeim mála­flokki.

Bakslag á alþjóðavísu

Fámennið hér­lendis er stað­reynd sem maður áttar sig betur á við að hafa starfað erlendis sam­kvæmt Ingi­björgu Sólrúnu og segir hún okkur þurfa á því að halda að vera hluti af stærri heild sem geti stutt okkur við að efla stjórn­sýsl­una og stjórn­kerfið. Þar sé Evr­ópu­sam­bandið og krísu­stjórnun þess annað skýrt dæmi.

Undir lok við­tals­ins kemur Ingi­björg Sólrún síðan inn á jafn­rétt­is­málin og visst bakslag þar á alþjóða­vísu sem að hún tengir við mis­skipt­ingu og ójöfnuð. Sama eigi við hér­lendis þegar að ólík­leg­ast fólk sé farið að tala fyrir því að konur fari aftur inn á heim­ilin í hefð­bundin hús­mæðra­störf. Þegar að fjöl­skyldu­lífið veldur svo miklu álagi með erf­ið­leikum við að ná endum saman þá geti það birt­ist í því að draum­arnir verði um eitt­hvað ímyndað ein­falt líf sem fólk sjái fyrir sér í ömmum og öfum æsku sinnar.

Rit­stjóri Vís­bend­ingar óskar Ingi­björgu Sólrúnu inni­lega til ham­ingju með stór­á­fangan á þessum gamlárs­degi.


Viðtalið við Ingi­björgu Sólrúnu mál lesa í heild sinni hér á vef Vís­bend­ingar.  

Áskrift að Vís­bend­ingu má kaupa hér.

Ára­móta­blað Vís­bend­ingar telur 36 síður þar sem er að finna tíu greinar eftir sér­fræð­inga og fræði­menn á mis­mun­andi sviðum sem fjalla um stöðu alþjóða­mál­anna frá ólíkum sjón­ar­hólum, þar sem margar grein­anna koma inn á end­ur­kjör Trumps og tvær þeirra fjalla um stór­veldi Kína eftir pró­fess­or­ana Geir Sig­urðs­son og Val Ingi­mund­ar­son. Einnig er fjallað um Evruna, Bretland eftir Brexit, van­traust í stjórn Frakk­lands, vend­ingar í stjórn­málum Japans og stór­veldið sem Indland er orðið í grein eftir dr. Jón Orm Hall­dórs­son. Í blað­inu er einnig annað við­tal, við Clöru Gans­landt sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi. Ára­móta­ljóðið í Vís­bend­ingu er eftir Braga Ólafsson og heitir Frá heims­þingi esper­antista. Leiðara blaðs­ins ásamt efn­is­yf­ir­lit þess má lesa hér.


Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vísbending

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár