Viðvarandi alþjóðlegur óstöðugleiki

Staða heims­mál­anna núna lítur ekki vel út að mati Ingi­bjargar Sólrúnar Gísla­dóttur. Það birt­ist, að hennar sögn, í átök­unum í heim­inum sem við horfum van­máttug upp á. Þá nefnir hún sér­stak­lega feðra­veldið sem valda­fyr­ir­bæri á hinu póli­tíska sviði – alls staðar í heim­inum.

Viðvarandi alþjóðlegur óstöðugleiki

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir fyrrum for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, borg­ar­stjóri, þing­maður og ráð­herra verður sjö­tug í árs­lok og var í ítar­legu við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar sem helgað var alþjóða­málum og kom út nú rétt fyrir jól.

Farið er yfir alþjóð­legan starfs­feril Ingi­bjargar Sólrúnar eftir að póli­tískum ferli hennar lauk fyrir fimmtán árum. Hann nær yfir þrjár stjórn­un­ar­stöður alþjóð­legra stofn­ana á sviði jafn­rétt­is­mála, lýð­ræð­is­upp­bygg­ingar og mann­rétt­inda í Kabúl í Afganistan, Istanbúl í Tyrk­landi og Varsjá í Póllandi auk þess að vera sér­stakur sendi­full­trúi aðal­rit­ara Sam­ein­uðu þjóð­anna í Bagdad í Írak.

Alþjóð­leg mál­efni og staða þeirra eru ein af stærstu áskor­unum sam­tím­ans og því við­eig­andi að fá sjón­ar­horn Ingi­bjargar Sólrúnar á málin, en að auki eru í blað­inu tíu greinar eftir sér­fræð­inga og fræði­menn á mis­mun­andi sviðum. Nánari upp­lýs­ingar um það má lesa hér að neðan. Í við­tal­inu fer Ingi­björg Sólrún gagn­rýnum orðum um alþjóða­stofn­an­irnar sem upp­lifa má sem mátt­lausar nú á ögur­stundum. Nefnir hún sem dæmi Örygg­is­ráðið hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum og hið póli­tíska stjórn­kerfi stofn­ana eins og í kringum aðal­rit­ar­ann þar. Hún kallar eftir kerf­is­breyt­ingum.

Vissu­lega séu gagn­legar álykt­anir og stefnu­skjöl sem frá alþjóða­stofn­unum komi – en það er fram­kvæmda­hlut­inn sem að ekki virki nægi­lega vel. Þetta megi til dæmis sjá varð­andi Par­ís­ar­sátt­mál­ann um lofts­lags­mál­efnin – mark­miðin séu góð en við ekki að ná þeim.

Staða heims­mál­anna núna lítur ekki vel út að mati Ingi­bjargar Sólrúnar, líkt og fleirri sem til þekkja á því sviði. Það birt­ist, að hennar sögn, í átök­unum í heim­inum sem við horfum van­máttug upp á. Þá nefnir hún sér­stak­lega feðra­veldið sem valda­fyr­ir­bæri á hinu póli­tíska sviði – alls staðar í heim­inum. Það sé þessi eitr­aða karl­mennska sem magni upp hætt­una sem við búum við nú um stundir.

Umræða um Evrópu 

Í við­tal­inu er komið inn á sög­una bak við atkvæða­greiðsl­una á Alþingi um EES, samn­ing­inn um evr­ópska efna­hags­svæðið. Ingi­björg Sólrún segir alveg ljóst að sam­ing­ur­inn hafi alltaf verið skref í átt­ina að aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Þegar samn­ing­ur­inn um evr­ópska efna­hags­svæðið var sam­þykktur fyrir þrjá­tíu árum var Ingi­björg Sólrún þing­kona Kvenna­list­ans. En Kvenna­list­inn var á móti EES og þing­konur hans greiddu atkvæði gegn sam­þykkt samn­ings­ins á Alþingi, en Ingi­björg sat hjá!

Hún hefði að sögn viljað sam­þykkja samn­ing­inn en þar sem full­veld­is­fram­salið sem í honum fólst var ekki við­ur­kennt við laga­setn­ing­una þá sat hún frekar hjá. Full­veld­is­fram­salið var ekki ástæða fyrir að hafna skyldi samn­ingnum að mati Ingi­bjargar Sólrúnar heldur væri mik­il­vægt að Alþingi við­ur­kenndi með­vitað það fram­sal. Það að láta eins og ekki væri um að ræða fram­sal á full­veld­inu með samn­ingnum sé ekki rétt. Hún telur víst að sama hafi átt við um Vigdísi Finn­boga­dóttur for­seta á þessum tíma, það hafi ekki verið and­staða við samn­ing­inn sjálfan heldur við það að full­veld­is­fram­salið væri ekki með­vitað við­ur­kennt við lög­fest­ingu samn­ings­ins.

Umræðan um Evr­ópu­sam­bandið gæti breyst á næstu árum að mati Ingi­bjargar Sólrúnar, en erfitt sé að skilja hvers vegna við eigum svona erfitt að eiga sam­tal í sam­fé­lag­inu um Evr­ópu­málin.

Í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar er einnig að finna annað við­tal, við Clöru Gans­landt sendi­herra Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi auk tíu greina, meðal ann­ars eftir Þorvald Gylfason pró­fessor í hag­fræði um Evruna og Sigrúnu Dav­íðs­dóttur blaða­mann um Bretland eftir Brexit. Leiðara ára­móta­blaðs­ins með heild­stæðu efn­is­yf­ir­liti má lesa hér á opna hluta vefs Vís­bend­ingar.


Viðtalið við Ingi­björgu Sólrúnu mál lesa í heild sinni hér á vef Vís­bend­ingar. Áskrift að Vís­bend­ingu má kaupa hér.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vísbending

Mest lesið

4
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár