Kaffikarlar ræða Dostojevskíj

Þegar blaða­maður var á leið í vinn­una rakst hún á þrjá karla að ræða Fjodor Míkhajlovítsj Dostojev­skíj.

Kaffikarlar ræða Dostojevskíj
Í mann­vits­brekkunni Árni Snævarr, Runólfur Ágústs­son og Eiríkur Bergmann ræða heims­bók­menntir í morg­unsárið. Mynd: Auður Jóns­dóttir

Jólaljós blöktu í kaldri golu þegar und­ir­rituð var á leið í vinn­una. Á Skóla­vörðu­stígnum rakst hún á þrjá karla fyrir utan Kaffi­fé­lagið sem stóðu saman í hnapp og voru að ræða rúss­neskar bók­menntir. Einhver nostal­gía lúrði í sam­tal­inu þegar rifj­aðar voru upp afbragðs þýð­ingar Ingi­bjargar Har­alds­dóttur á rúss­neskum bók­menntum fyrri tíma.

Þarna röbbuðu karl­arnir af ástríðu um Glæp og refs­ingu – jú og fleiri bækur skálds­ins. En þá mundi und­ir­rituð eftir að hafa eitt sinn hitt ein­hvern sem varð skot­inn í ein­hverjum af því að við­kom­andi hafði líkt sér við Raskolnikov, aðal­sögu­per­sónu áður­nefnds verks.

„Við erum öll sek,“ varð und­ir­rit­aðri að orði og fann skyndi­lega svörun í þess­ari heitu umræðu úti í kuld­anum. Þess má geta að meist­ara­verk Fjodors Dostojev­skís, Glæpur og refs­ing, hefur verið talin ein besta skáld­saga sem skrifuð hefur verið. Hún ger­ist í Rúss­landi fyrir bylt­ingu og lýsir eymd, ömurð og grimmum til­finn­ingum í sál­ar­lífi og umhverfi. …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár