Tilnefnd sem framúrskarandi ungur Íslendingur en verður send úr landi

Til stendur að hin sýr­lenska Rima Charaf Eddine Nasr verði send úr landi. Hún var á dög­unum ein af tíu sem til­nefnd voru til verð­laun­anna Fram­úr­skar­andi ungur Íslend­ingur í ár. Til­nefn­ing­una fékk hún fyrir sjálf­boða­liða­störf sem hún hefur unnið með börnum. Hér á hún for­eldra og systk­ini en ein­ungis á að vísa Rimu og systur hennar úr landi.

Tilnefnd sem framúrskarandi ungur Íslendingur en verður send úr landi
Fram­úr­skar­andi Spurð af hverju sjálf­boða­liða­störfin heilli segir Rima að hún njóti þess að hjálpa fólki. Mynd: Golli

Mér fannst ég loks­ins vera farin að til­heyra hérna. Ég var byrjuð að byggja mér líf og taka meira og meira þátt í sam­fé­lag­inu. Mér var loks­ins farið að líða eins og ég væri örugg,“ segir hin 31 árs gamla Rima Charaf Eddine Nasr í sam­tali við Heim­ild­ina.

Rima er flótta­maður frá Sýrlandi og varð á dög­unum ein af tíu til að hljóta til­nefn­ingu til fram­úr­skar­andi ungra Íslend­inga árið 2024. Við­ur­kenn­ing­una, sem er veitt af Íslands­deild alþjóð­legu ung­menna­hreyf­ing­ar­innar JCI, fékk Rima fyrir að hafa verið mjög virk í sjálf­boða­liða­starfi – bæði fyrir Rauða kross­inn og félaga­sam­tökin Læti! Þar hefur hún meðal ann­ars lagt sitt af mörkum við að aðstoða arab­ísku­mæl­andi börn sem komu mörg hver nýlega frá stríðs­hrjáðum svæðum.

Vildi gefa aftur til Íslands

Rima skýrir fyrir blaða­manni að hún hafi kennt flótta­mönnum ensku í sjálf­boða­liða­starfi, en hún hefur lokið gráðu í enskum bók­menntum í Damaskus. Meðan hún var enn …

Kjósa
120
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (9)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Ég bara skil alls ekki hvaða forsendur Útlendingastofnun gefur sér í hverju máli fyrir sig. Þarna er ung kona að flýja nöturlegar aðstæður, er að láta mikið þarft og gott af sér leiða fyrir samfélagið og hún er hrakin burt. Hvar er blessuð rússneska stúlkan sem var flutt til Georgíu og skilin eftir þar allslaus. Kolólögleg aðgerð þar í gangi
    1
  • SS
    Sveinn Sveinbjörnsson skrifaði
    Það er engin samúð eða mennska. Talvan í Útlendingastofnun segir nei.
    1
    • IB
      Ingimundur Bergmann skrifaði
      Tölvan hefur engan ,,vilja", henni er er stjórnað af fólki sem segir henni fyrir verkum!
      0
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Hvað er að ?
    4
  • HR
    Hildigunnur Rúnarsdóttir skrifaði
    Ömurlegt!
    4
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Þvílík bilun og illmennska
    6
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Illmennska, svo ekki sé meira sagt.
    6
  • Ásta Jensen skrifaði
    Verður hún ekki bara að fara og koma aftur á eigin forsendum? Það er ennþá stríð í sýrlandi
    -6
  • GS
    Gunnar Snæland skrifaði
    drullusokkar
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár