Innlit á kosningavökur: Veldi Viðreisnar og svanasöngur Vinstri grænna

Á meðan Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir dans­aði undir tónum Qween með Retro Stefson söng Una Torfa­dóttir, dóttir Svan­dísar Svav­ars­dóttur for­manns Vinstri grænna, mögu­lega svana­söng flokks­ins. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar kíkti á kosn­inga­vökur tveggja flokka í mjög ólíkri stöðu.

<span>Innlit á kosningavökur:</span> Veldi Viðreisnar og svanasöngur Vinstri grænna
Kosn­inga­nótt Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, kom dans­andi og klapp­andi á kosn­inga­vöku Við­reisnar á Hótel Borg í nótt. Undir ómaði Qween með Retro Stefson. Verður Þor­gerður Katrín drottn­ingin í nýrri rík­is­stjórn? Mynd: Golli

Hverjum datt í hug að kjósa á þessum árs­tíma? Það er skít­kalt, niða­myrkur og vind­kæl­ingin. Maður minn! Jú, alveg rétt, það var Bjarni Bene­dikts­son. Það er samt ekki alfarið honum að kenna að hér er ég, klukkan 22 á laug­ar­dags­kvöldi á kjör­degi að mana mig upp í fara á kosn­inga­vöku Við­reisnar.

Þetta er í annað sinn sem ég fer út úr húsi þennan kjör­dag­innn, ég ark­aði í KR-heim­ilið í ljósa­skipt­unum til að greiða atkvæði. Það var ekki margt um mann­inn í Frosta­skjóli, kjör­sókn var um 50 pró­sent í Reykja­vík þegar ég hafði skilað mínu atkvæði í kjör­kass­ann. Ég mætti Silju Báru Ómars­dóttur hverfis­kjör­stjóra á, það er fáir sem elska kosn­ingar jafn mikið og hún. „Ég er orðin ansi sjóuð þessu,“ við­ur­kennir hún skæl­bros­andi. For­seta­kosn­ingar, bæði hér heima og í Banda­ríkj­unum, hafa átt hug hennar allan stóran hluta árs­ins og nú þing­kosn­ingar hér heima. Svo er hún sjálf lík­lega á leið­inni í kosn­inga­bar­áttu í rekt­ors­kjöri. En það er önnur saga. 

Aftur að kosn­inga­vökum gær­kvölds­ins. Af hverju varð Viðreisn fyrir val­inu sem fyrsti við­komu­staður? Þegar kjör­dagur rann upp var útlit fyrir að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður flokks­ins sem boðar „hægri hag­stjórn og vinstri vel­ferð“, kæm­ist í lyk­il­stöðu hvað varðar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eftir kosn­ingar (engar áhyggjur samt, Heim­ildin sótti fleiri kosn­inga­vökur). Sjálfri fannst mér líka áhuga­vert að sjá hvers konar fólk myndi sækja kosn­inga­vöku Við­reisnar, flokks sem tók flugið í skoð­ana­könn­unum eftir að boðað var til kosn­inga, úr 11,1 pró­sent fylgi 13. októ­ber í 17,6 pró­sent dag­inn fyrir kjör­dag sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup. 

Hand­gerða rósa C-iðÓfáar myndir voru teknar við hand­gerða Við­reisnar C-ið á Borginni í nótt.

Ég dúð­aði mig því upp í annað skipti og hélt út í vetr­ar­nótt­ina. Klukkan var nú reyndar bara rétt að verða 22 þannig það var ennþá kvöld. Það á samt ekki að vera dimmt á kosn­inga­nótt. Það á að vera bjart, vor í lofti og ekki skemmdi þegar pró­floka­fögnuð bar upp á sama dag og kosn­ingar. Það er hins vegar ekki raunin núna, flestir nem­endur eru enn í loka­prófum en mér sýnd­ist unga fólkið ekki láta það á sig fá. Unga fólkið var mætt á Hótel Borg þar sem app­el­sínugula við­vörun Við­reisnar breiddi úr sér með blöðru­vöndum og risa­vöxnu hand­gerðu rósa C-i sem tók einn mann allan dag­inn að full­komna, að því er skipu­leggj­andi kosn­inga­vök­unnar tjáði mér.

Við fyrstu sýn fannst mér ég hafa villst inn í tíma­vél, mér leið eins og ég væri mætt í kosn­ingap­artý Höllu Tóm­as­dóttur í Grósku. Dúndr­andi, takt­föst tón­list og mikil mann­mergð. Ungt fólk í útvíðum buxum, ungir menn með klipp­ingu sem ég á erfitt með að átta mig á og ungar konur með full­kom­lega greidd tögl (e. slicked-back). 

Það er góð og fal­leg orka í loft­inu á Borginni. „Þú verður að fá hrós, þetta er sturl­aður kjóll!“ segir við­kunna­legur ungur maður (samt ekki með þeim yngstu) þegar hann heilsar vin­konu sinni sem er í app­el­sínu­gulum rykktum kjól. Á næsta borði kemur yngri maður askvað­andi og hristir hend­urnar. „Ég lykta eins og hvítvín.“ Það reynd­ist þrautin þyngri að ferja hvítvín í gegnum mann­fjöld­ann. Vinkona hans er með lausn og spr­eyjar á hann ilm­vatni. Sætur keimur umlykur and­rúms­loftið á Borginni. 

Á BorginniBarinn á Hótel Borg var þétt­skip­aður á kosn­inga­nótt.

Unga fólkið, aðal rannsóknarlöggan, grínistinn og ríkissáttasemjari

Unga fólkið þekkir kannski ekki sögu Borg­ar­innar en inn kemur maður með glampa í aug­unum. „Ég hef ekki komið hingað inn í 30 ár.“ Hann heilsar fram­bjóð­endum, Grími Gríms­syni yfir­lö­reglu­þjóni rann­sókn­ar­lög­regl­unnar, og Aðal­steini Leifs­syni, fyrr­ver­andi rík­is­sátta­semj­ara. 

Lögga á þingGrímur Grímsson er einn af 34 nýjum þing­mönnum sem taka sæti á Alþingi þegar þing kemur saman eftir kosn­ingar.

Allir sal­irnir á Borginni eru að fyll­ast. Í fyrstu voru tveir salir í notkun en fljót­lega var sá þriðji opn­aður, mun fyrr en til stóð að sögn Söru Sig­urð­ar­dóttur, skipu­leggj­anda kosn­inga­vök­unnar. „Það er strax pakkað!“ og klukkan er bara rétt rúm­lega 22. Röðin á bar­inn leng­ist og það þarf strax að sópa upp gler­brot. 

Klukkan nálg­ast ell­efu og for­mað­ur­inn er vænt­an­leg í sal­inn. „Freedom, freedom“ ómar í hjóð­kerf­inu og þegar sést glitta í Þorgerði fer fólkið að kyrja: „Togga, Togga, Togga!“ og inn kemur dans­andi Þor­gerður Katrín sem heilsar og faðmar kjós­endur. Næsta lag tekur við og Þor­gerður dansar áfram við Qween með Retro Stefson.

Drottn­ingin er mætt. Fyrir ofan hana er fros­inn Bjarni Bene­dikts­son á stórum skjá í útsend­ingu RÚV. 

„Togga, Togga, Togga!“
kyrj­aði stuðn­ings­fólk Við­reisnar þegar for­mað­ur­inn gekk í sal­inn

Í innsta salnum er aðeins rólegri stemn­ing. Þar er kveikt á kosn­inga­vöku RÚV og engin önnur tón­list hljómar undir. Búið er að raða upp nokkrum röðum af stólum og á fremsta bekk sitja Jón Gnarr, sem skipar 2. sæti í Reykja­vík suður, ásamt Jógu eig­in­konu sinni og að minnsta kosti einum syni, mögu­lega fleirum. Það vantar bara Klaka, heim­il­is­hund­inn. 

FOMO á kosninganótt

Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, bregður fyrir á skjánum að veita við­brögð við fyrstu tölum. „Við erum að missa af þessu!“ segir enn eini ungi mað­ur­inn við hóp vina sinna sem ég stór­ef­ast um að séu með kosn­inga­rétt. Það er erfitt að þjást af FOMO (e. Fear of Missing out) á kosn­inga­nótt en Mið­flokk­ur­inn ákvað að halda sitt partý í seil­ing­ar­fjar­lægð frá mið­bænum, í Vals­heim­il­inu. 

Sjálf fékk ég smá FOMO (ekki vegna Mið­flokks­ins reyndar) en mér var líka orðið mjög heitt og ég þurfti nauð­syn­lega að pissa en nennti ómögu­lega í kló­settröð­ina. Ég ákvað að hoppa yfir í Iðnó á kosn­inga­vöku VG. Þar var engin röð á kló­settið. Áður en ég geng inn í sal­inn lít ég yfir hóp­inn sem er þarna sam­an­kom­inn. Það er fámennt miðað við Hótel Borg en þarna er alls konar fólk. Ég brosi til eldri konu með skjanna­hvítt hár í tagli (ekki slicked-back þó), hring í nef­inu, þykka silf­ur­keðju um háls­inn, klædd grænum kjól og bleikum sokka­buxum. Það er verið að lesa fyrstu tölur í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. 100 atkvæði. Það má heyra saum­nál detta. Þetta er búið. Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður VG, seg­ist samt vera bjart­sýnn. „Ég held að við merjum þetta.“ Þegar fyrstu tölur í Reykja­vík Suður voru lesnar upp hóp­uðu fram­bjóð­endur og helsta stuðn­ings­fólk sig saman á fremsta hring­borð­inu rétt eins og um leik­hlé í liðs­í­þrótt væri að ræða. Flokk­ur­inn nær ekki inn þing­manni. Það féllu tár í Iðnó. „Lýðræðið hefur talað og þjóðin,“ sagði Svandís þegar ljóst var í hvað stefndi. 

DóttirUna Torfa­dóttir söng fyrir gesti á kosn­inga­vöku Vinstri grænna í Iðnó. Mögulega í síð­asta sinn?

Vinstri græn fengu 2,4 pró­sent atkvæða þegar loka­tölu lágu fyrir og ná því ekki 2,5 pró­sent þrösk­uld­inum sem tryggir stjórn­mála­sam­tökum fjár­stuðn­ing frá rík­inu. Hvað verður um Vinstri græn sem stjórn­mála­afl? Svandís var ekki á staðnum þegar fyrstu tölur í hennar kjör­dæmi voru lesnar upp, hún var á leið­inni í leið­toga­kapp­ræður á RÚV. Una Torfa­dóttir, dóttir Svan­dísar, var enn í Iðnó, búin að syngja fyrir gesti, en baðst undan spjalli við blaða­mann, til­finn­ing­arnar voru að bera hana ofur­liði. Svandís sagði svo í Facebook-færslu sem hún birti eftir hádegi í dag að grein­ingar á póli­tískri stöðu bíða betri tíma. Við sjáum hvað setur. 

Troðið á Borginni

Ég ákvað að kíkja aftur í partýið til Við­reisnar en það reynd­ist það hæg­ara sagt en gert. Mynd­ar­leg röð var fyrir utan Borgina og hópur ung­menna (en ekki hver) til­kynnir að búið sé að loka salnum. Fleirum verður ekki hleypt inn. Klukkan var að ganga tvö.

 „Hvar er Framsókn?“ spyr einn í hópnum. Kosn­inga­vaka rót­gróna bænda­flokks­ins er á Oche, pílu- og kara­oke-stað sem er hluti af alþjóð­legri afþrey­ing­ar­keðju. Það þykir of langt að fara í Kringl­una en vina­hóp­ur­inn deyr ekki ráða­laus: „Bjór­kvöld í gamla her­berg­inu mínu!“ 

Ég brosi út í annað. Þetta er mitt merki að segja það gott á kosn­inga­nótt. Ég ætla ekki að smygla mér inn á kosn­inga­vöku Við­reisnar sem vill ekki eða getur ekki tekið við fleirum. Svo þurfti ég líka að mæta á fót­bolta­æf­ingu hjá 8. flokki KR klukkan 9 morg­un­inn eftir. Á leið­inni heim verður mér hugsað til Qween og Þor­gerðar Katrínar. Ætli það verði þrjár drottn­ingar: Þor­gerður Katrín, Kristrún Frosta­dóttir og Inga Sæland sem leiða næstu rík­is­stjórn? Eða verður það karl­mann­leg seigla sem siglir okkur inn í fram­tíð­ina?

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár