Þórdís Kolbrún var spurð út í ábyrgð hennar flokks gagnvart vandamálum heilbrigðiskerfisins. Hún hélt því til haga að fjárframlög til kerfisins hefðu verið aukin mikið undanfarin ár.
„Við höfum farið í 75 prósenta raunaukningu á framlögum til heilbrigðismála undanfarin 10 ár. Hér er talað: af hverju eruði ekki búin að laga þetta, af hverju er ekki allt í toppstandi og þessi ræða Ingu, sem ég ætla nú ekki að verja sérstökum tíma í, mér fannst hún ekki mjög stór,“ sagði Þórdís Kolbrún og vísaði til hvassrar ræðu formanns Flokks fólksins sem var með orðið á undan henni.
„Hún var frábær,“ skaut Inga inn, og uppskar hlátur úr sal.
„Nei, hún var það ekki sko, en það er gott að það er stemning fyrir gestalátum,“ svaraði Þórdís Kolbrún, en lét ekki slá sig út af laginu.
„Ég ætla bara að segja að það er ekkert samfélag sem hefur tekist að leysa heilbrigðismál að fullu. Við erum að horfa upp á breytingar á íslensku samfélagi þar sem fólk sem er 80 ára eða eldra mun fjölga um 25 prósent á næstu örfáu árum. Þannig að þau sem halda því fram að hér verði allt leyst með nýrri ríkisstjórn, smá tweaki á skattahækkunum og einhverjum örlitlum kerfisbreytingum – það getur enginn haldið því fram,“ sagði Þórdís Kolbrún.
Þórdís Kolbrún Varaformaður Sjálfstæðisflokksins sagðist hafa meiri áhyggjur af mönnun en fjármögnun heilbrigðiskerfisins.
Mynd: Golli
Hún bætti við að það þyrfti ekki bara aukið fjármagn í heilbrigðiskerfið, heldur talaði líka um að bjóða út fleiri verk.
Þórdís Kolbrún sagðist reyndar einnig hafa meiri áhyggjur af því hvernig við ætluðum að manna heilbrigðiskerfið, en fjármagna það.
Ekki nógu margir læknar væru að skila sér heim úr námi. „Ég held að við þurfum raunverulega skattalega hvata til að fá fólk aftur heim,“ sagði Þórdís Kolbrún og sagði einnig að hún teldi að það þyrfti skattalega hvata til að fá lækna til að skuldbinda sig til vinnu úti á landi.
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins talaði síðan um togstreitu í umræðu um heilbrigðiskerfið. Oft heyrðust þau skilaboð frá fólki í kerfinu að stjórnvöld væru með kröfu um að fólk ætti að hlaupa hraðar.
„Mamma mín hefur verið sjúkraliði í 50 ár, mér dettur ekki í hug að láta hana hlaupa hraðar,“ sagði Þórdís Kolbrún og bætti við að lokum að landlæknisembættið hefði reynst „þrándur í götu“ varðandi nýsköpunarlausnir í heilbrigðiskerfinu.
kuldanum 🥲