Síðasta tilraun Ingu Sæland

Flokkur fólks­ins var stofn­aður til að útrýma fátækt á Íslandi, sem Inga Sæland, for­maður flokks­ins, þekkir af eigin raun. Hún boðar nýtt hús­næð­is­kerfi með fyr­ir­sjá­an­leika og nið­ur­skurð í öllu því sem heita aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum. Grænasta land í heimi eigi að nota pen­ing­ana í heil­brigð­is­kerfi og aðra inn­viði sem standi á brauð­fótum.

Hlustaðu · brot43:23 · Formannaviðtöl

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist fljót­ari að svara því hvað sé í lagi á Íslandi en hvað þurfi að laga. „Við hljótum að átta okkur á því og það gera það allir, að grunn­stoðir okkar, allir okkar inn­viðir, standa meira og minna á brauð­fótum. Ég veit ekki eig­in­lega hvernig þessi staða mögu­lega gat teikn­ast upp en hún er ekki að ger­ast á einum degi,“ segir hún og beinir gagn­rýni sinni til frá­far­andi rík­is­stjórnar, sem hafi ekki gert neitt til að bæta stöð­una síð­ast­liðin sjö ár.

Dæmin um það séu víða í íslensku sam­fé­lagi. „Við getum litið til hús­næð­is­mál­anna, við getum litið á okur­vaxta­brjál­æðið sem ríkir í sam­fé­lag­inu þar sem fólk er hrein­lega bara … það nær ekki endum saman á milli mán­aða og fer nán­ast hver ein­asta króna af tveimur og þremur störfum í það að reyna að moka þessum fjár­munum inn í banka­kerfið sem gjör­sam­lega makar krók­inn, …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Inga á skilið að fá atkvæði og kraft til að koma sínum/okkar málum áfram.
    0
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Stórmerkilegur flokkurinn hennar Ingu Sæland. Nú streyma Seðlabankamenn og fleiri ofurlaunþegar fram og vara við "að ætla að gera allt fyrir alla" Þessi sama mantra sem þeir kyrja þegar þessi hópur á að fá launahækkun í einu ríkasta landi í heimi. Þá fer allt á hausinn! Það þarf að stokka allt kerfið upp. Þetta er síðasta hálmstráið að kjósa raunveruleg breytingaröfl!!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

Tími jaðranna er ekki núna
ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.
Allir verða sósíalistar fyrir kosningar
ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár