Allir verða sósíalistar fyrir kosningar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.

Hlustaðu · brot35:52 · Formannaviðtöl

Órétt­læti og ójöfn­uður er það fyrsta sem Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista, nefnir þegar hún er spurð hvað sé að íslensku sam­fé­lagi. Skattar hafi verið lækk­aðir á hátekju­fólk og stór­eigna­fólk og gatið sem það hefur skilið eftir sig í rík­is­kass­anum hafi leitt til skertrar þjón­ustu og auk­ins kostn­aðar á venju­legt fólk. 

„Það er verið að rukka almenn­ing um eitt­hvað sem kost­aði áður ekki. Skattar hafa verið hækk­aðir á almenn­ing. Einu sinni voru lág­marks­laun, það voru ekki greiddir skattar af þeim. Núna eru greiddir skattar af þeim,“ segir hún. Það hafi komið í hlut almenn­ings að fylla upp í þetta skatta­gat. „Það bitnar á almenn­ingi með hærri gjald­töku, hærri sköttum og við sjáum einmitt útvistun og einka­væð­ingu og við sjáum það síðan skila sér í auknum hagn­aði til þeirra sem fengu skatta­lækk­anir til að byrja með. Það þarf að leið­rétta þetta skatt­kerfi, gera það rétt­látt.“

Til að gera kerfið …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

Tími jaðranna er ekki núna
ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár