Tími jaðranna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er á fullum snún­ingi. „Nægir ykkur hálf­tími?“ spyr Ingileif Frið­riks­dóttir, aðstoð­ar­konan hennar, rétt áður en Þor­gerður tyllir sér með blaða­manni Heim­ild­ar­innar. Hún var að koma úr við­tali og er á leið­inni á umræður hjá Kenn­ara­sam­band­inu.

„Líttu í kringum þig, þetta er bara ótrú­lega gaman,“ svarar Þor­gerður spurð að því hvernig hún nenni þessu eig­in­lega, að vera enn í stjórn­málum eftir 22 ár á þingi, ekki alveg óslitið þó. Það er svo­lít­ill hávaði í rým­inu, eins og heyr­ist á upp­tök­unni. Fram­bjóð­endur og stuðn­ings­fólk Við­reisnar, flokks Þor­gerðar, rabbar saman, hringir út, skipu­leggur næstu skref í kosn­inga­bar­átt­unni sem nú sér fyrir end­ann á.

„Ég við­ur­kenni að þessi kosn­inga­bar­átta er sú skemmti­leg­asta sem ég hef tekið þátt í. Maður finnur að fólk er for­vitið, fólk er spennt, það er ákveðin eft­ir­vænt­ing í loft­inu því fólk vill breyt­ingar,“ segir Þor­gerður. 

Fylgi Við­reisnar hefur risið veru­lega í mæl­ingum und­an­farið. Flokk­ur­inn …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

Allir verða sósíalistar fyrir kosningar
ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár