„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Hlustaðu · brot42:32 · Formannaviðtöl

Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, er að leiða flokk­inn í kosn­inga­bar­áttu í fyrsta sinn. Staðan er gjör­breytt frá síð­ustu kosn­ingum þegar flokk­ur­inn fékk 12,6 pró­sent greiddra atkvæða og end­ur­nýj­aði rík­is­stjórn­ar­sam­starfið með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Gengið hefur á ýmsu á kjör­tíma­bil­inu og fylgi flokks­ins hefur verið í frjálsu falli frá alþing­is­kosn­ing­unum haustið 2021 og hefur lægst mælst 3,3 pró­sent sam­kvæmt Þjóð­ar­púls Gallup, í maí á þessu ári. Fylgið mælist það sama, 3,3 pró­sent, í nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar og Baldurs Héð­ins­sonar, sem er upp­færð reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

En Svandís er bjart­sýn, það er hennar drif­kraftur í stjórn­málum þessa dag­ana. „Þessi kosn­inga­bar­átta mun ekki snú­ast um aug­lýs­ingar eða ein­hver pall­borð úti í bæ heldur miklu frekar um það að við tölum saman og tölum hvert við annað og það er okkar plan í VG að heyra í fólki, tala við fólk, tala við gras­rót­ina okkar, okkar eigin félaga …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.

13 mín. lestur

ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.

14 mín. lestur

ViðtalFormannaviðtöl

Síðasta til­raun Ingu Sæland

Flokkur fólks­ins var stofn­aður til að útrýma fátækt á Íslandi, sem Inga Sæland, for­maður flokks­ins, þekkir af eigin raun. Hún boðar nýtt hús­næð­is­kerfi með fyr­ir­sjá­an­leika og nið­ur­skurð í öllu því sem heita aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum. Grænasta land í heimi eigi að nota pen­ing­ana í heil­brigð­is­kerfi og aðra inn­viði sem standi á brauð­fótum.

16 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár