Margt sem gengur rosalega vel en enginn vill heyra það

Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ræðir um vanda­málin í íslensku sam­fé­lagi og lausn­irnar sem Framsókn býður fram í ítar­legu við­tali við Heim­ild­ina.

Hlustaðu · brot50:16 · Formannaviðtöl

Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fer í brekku inn í kosn­inga­bar­átt­una, fylgið mælist lágt eftir sjö ára setu í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Vinstri grænum. For­mað­ur­inn telur sig þó hafa góða sögu að segja. Í við­tali við Heim­ild­ina lýsir Sigurður Ingi Jóhanns­son því að honum þyki umræðan um stöðu mála í sam­fé­lag­inu skrítin.

„Það er mjög margt sem gengur rosa­lega vel en það hefur eng­inn áhuga á að heyra það,“ segir Sigurður Ingi, spurður út í dræmt fylgi Fram­sóknar og bætir við að hann telji kjós­endur pirraða út af „háum vöxtum og verð­bólgu“ eða þá að þeir séu „kannski leiðir á okkur“ og á þá við að sökum þess að sama fólkið hafi verið við stjórn­völ­inn í sam­fé­lag­inu í sjö ár sé komin upp krafa um breyt­ingar, breyt­ing­anna vegna.

„Það er lít­ill hljóm­grunnur fyrir því að ræða hlut­ina eins og þeir eru,“ segir Sigurður Ingi og ræðir, á skrif­stofu …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Kosningar eru uppgjörsmót. Þegar kemur að skuldadögum er spurt hvað menn skuldi, ekki hvað þeir kunni að hafa staðið í skilum með.
    2
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Þessi er löngu steinrunninn, burt með hann! Hann telur íslendinga pirraða? Sigurður Ingi, spurður út í dræmt fylgi Framsóknar og bætir við að hann telji kjósendur pirraða út af „háum vöxtum og verðbólgu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Formannaviðtöl

Tími jaðranna er ekki núna
ViðtalFormannaviðtöl

Tími jaðr­anna er ekki núna

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er sá stjórn­mála­maður sem miðað við fylg­is­mæl­ingar og legu flokks­ins á hinum póli­tíska ás gæti helst lent í lyk­il­stöðu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum að loknum þing­kosn­ingum. Þor­gerður boðar fækkun ráðu­neyta, frek­ari sölu á Íslands­banka og sterkara geð­heil­brigð­is­kerfi. Hún vill koma að rík­is­stjórn sem mynduð er út frá miðju og segir nóg komið af því að ólíkir flokkar reyni að koma sér saman um stjórn lands­ins.
Allir verða sósíalistar fyrir kosningar
ViðtalFormannaviðtöl

Allir verða sós­í­alistar fyrir kosn­ingar

Hug­mynda­fræði sós­í­al­ism­ans hefur ekki beðið skip­brot heldur virð­ast allir flokkar verða sós­íal­ísk­ari fyrir kosn­ingar. Þetta segir Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, leið­togi Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir kom­andi þing­kosn­ingar. Hún segir að eigin reynsla af því að alast upp við fátækt sé drif­kraftur hennar og boðar rétt­lát­ara skatt­kerfi og stefnu­breyt­ingu í hús­næð­is­upp­bygg­ingu. Þar eigi hið opin­bera að stíga inn og fjár­magna upp­bygg­ingu á félags­legum grunni.
„Kvenfrelsismál eru líka heilbrigðismál“
ViðtalFormannaviðtöl

„Kven­frels­is­mál eru líka heil­brigð­is­mál“

Staða Vinstri grænna er þung. Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna, gerir sér grein fyrir því að það sé á bratt­ann að sækja en segir mik­inn þrótt og kraft í flokks­fólki. Hún sakar Bjarna Bene­dikts­son um trún­að­ar­brest í aðdrag­anda stjórn­ar­slita sem olli því að Vinstri græn gátu ekki hugsað sér að taka þátt í starfs­stjórn. Það sé full­gild spurn­ing hvort það hafi verið of dýru verði keypt að vera í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár