Spurningaþraut Illuga 8. nóvember 2024: Hvaða kattartegund er þetta? og 16 fleiri spurningar

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 8. nóv­em­ber.

Spurningaþraut Illuga 8. nóvember 2024: Hvaða kattartegund er þetta? og 16 fleiri spurningar
Fyrri mynd: Af hvaða teg­und telst þessi köttur vera?
Seinni mynd:Hver er karl þessi? Á flestum myndum sem þið sjáið af honum er hann aðeins eldri en þetta.

Almennar spurningar:

  1. Hvað hét fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna?
  2. Hvað hét annar for­seti Banda­ríkj­anna?
  3. Og þá liggur beint við að spyrja, hvað hét þriðji for­seti Banda­ríkj­anna?
  4. Einn fram­bjóð­andi til for­seta í Banda­ríkj­unum á dög­unum var Jill Stein sem raunar hefur boðið sig fram áður. Fyrir hvaða flokk?
  5. Hvaða íslenski jök­ull var í fyrnd­inni kall­aður Klof­a­jök­ull?
  6. Hvað er spænska orðið yfir hund?
  7. Í mann­kyns­sög­unni er talað um að járnöld hafi haf­ist rúmum 1.000 árum fyrir Krists burð. Hvaða öld er talað um á undan henni?
  8. Hvaða íslenski fót­bolta­leik­ari hefur náð bestum árangri í kosn­ing­unni um besta fót­bolta­mann Evrópu, eða Gull­bolt­ann?
  9. Hvað kall­ast á íslensku fljótið sem borgin Prag stendur við?
  10. Frægur rit­höf­undur fædd­ist í Prag og ól mest­allan sinn aldur. Hann var lítt þekktur meðan hann lifði enda vann hann mest­alla sína tíð á skrif­stofu trygg­inga­fé­lags. Og hann hét ... hvað?
  11. Annar rit­höf­undur búsettur í Prag skrif­aði fræga sögu um óbreyttan her­mann í fyrri heims­styrj­öld­inni. Hvað hét her­mað­ur­inn?
  12. Hvað eru margir lítrar í hektólítra?
  13. Árið 2007 hófu þau Kolbrún Berg­þórs­dóttir og Páll Bald­vins­son til­tekið starf sem vakti á þeim heil­mikla athygli. Páll hefur nú látið af starf­inu fyrir all­nokkru en Kolbrún er enn að. Hvaða starf var þetta?
  14. Kon­stant­ínus mikli, keis­ari Róma­veldis, er í sög­unni kunnur fyrir eitt umfram annað. Hvað er það?
  15. Hve margir ein­stak­lingar hafa gegnt starfi for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi á 21. öld­inni?

Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er Bengal-köttur en Franklin Roosevelt Banda­ríkja­for­seti ungur að árum er á seinni mynd­inni.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Washington.  —  2.  Adams.  —  3.  Jeffer­son.  —  4.  Græn­ingja.  —  5.  Vatna­jök­ull.  —  6.  Perro.  —  7.  Bronsöld.  —  8.  Glódís Perla.  —  9.  Moldá.  —  10.  Kafka.  —  11.  Svejk.  —  12.  Hundrað.  —  13.  Þau gerð­ust bóka­gagn­rýnendur í Kiljunni.  —  14.  Hann leyfði kristni í rík­inu.  —  15.  Átta. Ef þið finnið bara sjö eruð þið að gleyma Sigurði Inga.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár