Úr dómsalnum: Lögmenn Samherja lásu upp skilgreiningu á list

Lista­mað­ur­inn Odee mætti í hæsta­rétt í London með skjölin sín í Ikea bak­poka. Lög­fræði­teymi Samherja ferjaði gögnin sín inn í skjal­möppum á hjól­börum. Sif Sig­mars­dóttir, pistla­höf­undur Heim­ild­ar­innar, var í rétt­ar­salnum og fylgd­ist með máli Samherja gegn lista­mann­inum.

Úr dómsalnum: Lögmenn Samherja lásu upp skilgreiningu á list
Lista­mað­ur­inn Odee á leið í rétt­ar­sal.

Mála­rekstr­inum var rétt að ljúka síð­degis fimmtu­dag­inn 26. sept­em­ber þegar blaða­maður heyrir í pistla­höf­und­inum á Facetime. „Dómarinn sagð­ist ekki ætla að fella dóm í dag heldur leggj­ast frekar yfir málið – sem kall­ast „Reserve judgement,“ útskýrir Sif sem hefur ekki einu sinni náð að fá sér kaffi­bolla fyrir sam­talið.

Hún segir að Odee – öðru nafni Oddur Eysteinn Frið­riks­son – telji það vera góðs viti fyrir sig. „Það sýnir að málið er flókið,“ hefur hún eftir honum og segir að í rétt­ar­salnum hafi lög­fræð­ingar Samherja leit­ast við að sýna fram á að Samherji væri þekkt vöru­merki í Bret­landi, einkum meðal við­skipta­vina fyr­ir­tæk­is­ins: „ ... sem nyti góðs orðstírs ­– „good will“ kall­ast það á laga­máli – sem þyrfti að vernda,“ botnar hún.

„Í vörn sinni leit­að­ist Oddur við að sýna fram á að verk hans væri ekki „til­efn­is­laus árás á“ Samherja – „sen­sel­ess attack on the Claimant““  ... – þýðir Sif jafn­óðum –  „ ... heldur lista­verk sem ætlað var að vekja athygli á sam­fé­lags­legum vanda­málum og gagn­rýna fram­ferði stór­fyr­ir­tækja, útskýrir hún og skiptir aftur yfir í ensku: „raise awareness about social issues, and critique corporate practices“.

Þess ber að geta lög­menn Samherja fluttu mál fyr­ir­tæk­is­ins en Oddur flutti sitt mál sjálfur. Sif vitnar í þessi orð úr mál­flutn­ingi hans: „Lista­verkið kom af stað umræðu og rök­ræðum á Íslandi og víðar um spill­ingu og ábyrgð.“

„Í vörn sinni leit­að­ist Oddur við að sýna fram á að verk hans væri ekki „til­efn­is­laus árás á“ Samherja.“
Sif Sig­mars­dóttir

 „Hringleikahús fáránleikans“

Sif segir því næst að þótt lög­fræð­ingar Samherja hafi við­ur­kennt að fyr­ir­tækið hefði ekki orðið fyrir skaða vegna lista­verks­ins var talið að skaði hefði getað hlot­ist af verk­inu. Aftur á móti telji Oddur málið vera stærra en lista­verk.

„Hann segir til­gang­inn með mál­sókn­inni vera þá að kæfa opin­bera gagn­rýni,“ útskýrir Sif og segir að í sam­tali við sig hafi Oddur sagt: „Tján­ing­ar­frelsið á undir högg að sækja. Það er eitt­hvað sem lista­verkið dregur fram. Og það er eitt­hvað sem gefur lista­verk­inu meira list­rænt gildi.“

Voru þetta list­ræn rétt­ar­höld?

„Oddur lýsir því sem „hring­leika­húsi fárán­leik­ans“ að sitja í breskum rétt­ar­sal í ein­hvers konar „rit­rýni“ um eigið verk. Í til­raun til að sýna fram á að heima­síðan, sem var hluti af verki Odds, væri ekki list lásu lög­menn Samherja upp skil­grein­ingu Ensku orða­bók­ar­innar á list. Oddur velti fyrir sér hversu gáfu­lega skil­grein­ingu hann fyndi þar um orðið „lög­fræði“.“

„Lög­fræð­ingar Samherja flettu upp skil­grein­ingu Ensku orða­bók­ar­innar á list“
Sif Sig­mars­dóttir

 Stefndi: „Mér leið­ist“

Aðspurð hvernig lista­mann­inum virt­ist líða í rétt­ar­salnum segir Sif: „Frægt er þegar þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Kristján Þór Júl­í­us­son, spurði Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, hvernig honum í liði í kjöl­far þess að fjöl­miðlar fjöll­uðu um meintar mútu­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins í tengsl¬um við Namib­íu­veiðar þess. Mér fannst því rétt að spyrja Odee í rétt­ar­salnum hvernig honum liði. „Mér leið­ist,“ svar­aði hann,“ –  lýsir Sif og segir það vera til­finn­ingu sem vafa­laust fleiri í salnum hafi fundið til eftir að hafa hlýtt á lög­fræði-teymi Samherja tala af alvöru­þrung­inni lotn­ingu um vöru­merki og mark­aðs­efni fyr­ir­tæk­is­ins í tvær og hálfa klukku­stund.“

 En hvernig kom þetta þér fyrir sjónir? Geturðu lýst stað og stund?

„Oddur ver sig sjálfur gegn fimm manna teymi frá lög­fræði­skrif­stofu í London. Fyrsta morg­un­inn sat Oddur fyrir utan rétt­ar­sal­inn ásamt lög­fræði­legum ráð­gjafa sem er honum innan handar, ung kona sem styður hann „pro bono“. Hann var hvers­dags­lega klæddur í svartar galla­buxur, lit­ríka köflótta skyrtu og striga­skó, hún ægi­lega smart frönsk skvísa í flottum leð­ur­stíg­vélum. Það dimmdi yfir þegar sveimur af lög­mönnum vals­aði inn í gráum jakka­fötum. Það reynd­ist hið tröll­vaxna teymi Samherja.“

Odee ásamt lög­fræði­ráð­gjaf­anum sem heitir Andra Matei„Oddur ver sig sjálfur gegn fimm manna teymi frá lög­fræði­skrif­stofu í London. Fyrsta morg­un­inn sat Oddur fyrir utan rétt­ar­sal­inn ásamt lög­fræði­legum ráð­gjafa sem er honum innan handar, ung kona sem styður hann „pro bono“

Hún segir and­ar­takið hafa verið eins og klisju­kennd bíó­mynd um lít­il­magn­ann sem tekst á við hið illa stór­fyr­ir­tæki. „Oddur var með skjölin sín í bak­poka sem hann keypti í Ikea. Lög­fræði­teymi Samherja ferjaði gögnin sín inn í skjal­möppum á hjól­börum. Það fang­aði dálítið Davíð og Golíat stemn­ing­una í rétt­ar­salnum.“

 Var skrýtið að fylgj­ast með þessu?

„Það er aug­ljós­lega erfitt fyrir Íslend­ing að þurfa að mæta til London og verja sig svona í ókunn­ugu landi, í ókunn­ugu kerfi, á tungu­máli sem er ekki móð­ur­mál hans og það án lög­fræð­ings. Íslend­ing­ur­inn í mér vildi helst fara til hans og gefa honum knús. Þegar mál­flutn­ingi lauk í dag bauðst dóm­ar­inn til að kveða upp dóm sinn í gegnum Zoom svo að Oddur þyrfti ekki að ferð­ast aftur til London og ljúka mætti mál­inu með hraði. Þegar Oddur kvaðst heldur vilja vera við­staddur í per­sónu and­vörp­uðu lög­fræð­inga Samherja þungt. Eftir að mála­rekstr­inum lauk storm­aði dóm­ar­inn út.

Þeir sem ekki þekkja breskt dóms­kerfi vita auð­vitað lítið um það hvað ger­ist næst. Hinir jakka­fata­klæddu hrukku þá í mann­lega gír­inn og útskýrðu fyrir Oddi og lög­fræði­ráð­gjafa hans, Andra Matei, hvað tæki við í ferl­inu,“ segir Sif að lokum.  

Blaða­maður þakkar þar með pistla­höf­undi fyrir inn­sýn­ina.

Kjósa
94
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Vona að listin vinni í þessu máli!
    Held að meirihluti Íslendinga standi með Odee, gegn þessu "hrigleikjahúsi fáránleikans,,.
    15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár