Foreldri oftast gerandinn þegar barn er myrt

Sex mál, þar sem for­eldri hefur ráðið barni sínu bana, hafa komið upp frá árinu 1970 – tvö þeirra á þessu ári. En hvers vegna á slíkur harm­leikur sér stað? Margrét Valdi­mars­dóttir afbrota­fræð­ingur segir ójöfnuð í sam­fé­lag­inu auka lík­urnar á ofbeldi gegn börnum. Sál­fræð­ingar hafa komið auga á fimm meg­in­á­stæður þess að for­eldrar ráði börnum sínum bana.

Foreldri oftast gerandinn þegar barn er myrt
Ofbeldi Langtíma streita og átök milli for­eldra eru áhættu­þættir í ofbeldi gegn börnum. Mynd: Shutterstock

Áþessu ári hafa fleiri morð verið framin en nokkru sinni áður á Íslandi. Athygli vekur hlut­fall barna sem eru á meðal fórn­ar­lamba, en þrjú af sjö þeirra eru börn. Þar af eru tvö – sex ára drengur í jan­úar og tíu ára stúlka í sept­em­ber, talin hafa verið myrt af for­eldrum sínum. 

Tilfelli þess að börn séu myrt af for­eldrum sínum er mjög sjald­gæf á Íslandi. Mann­dráps­mál þar sem for­eldri er ger­andi en barn þol­andi eru fimm í heild­ina, þar af tvö árið 2024, eftir því sem Heim­ildin kemst næst. Þó má nefna eitt mál til við­bótar – alvar­lega lík­ams­árás föður gegn fimm mán­aða dóttur sinni sem dró hana til dauða. Faðirinn hlaut ekki dóm fyrir mann­dráp, heldur var hann dæmdur fyrir stór­fellda lík­ams­árás.

Sex mál í heildina

27. apríl 2002 lést níu ára stúlka í Breið­holti eftir að móðir hennar þrengdi að hálsi hennar. Móðirin, kona á fer­tugs­aldri, var dæmd ósak­hæf í mál­inu sökum geð­ræns ástands.

31. maí 2004 beið hin 12 ára gamla Guðný Hödd Hild­ar­dóttir bana þegar móðir hennar, Hildur Árdís Sig­urð­ar­dóttir, stakk hana með hnífi meðan hún svaf. Hildur særði einnig son sinn sem náði að flýja og kalla eftir hjálp. Atburð­ur­inn átti sér stað í Vesturbæ Reykja­víkur og var þekktur sem Haga­mels­málið. Hildur var dæmd ósak­hæf og sætti örygg­is­gæslu á rétt­ar­geð­deild­inni að Sogni. 

2. júlí 2011 veitti Agné Krataviciuté, 22 ára lit­háísk kona, nýfæddum syni sínum skurð­á­verka og kyrkti hann til bana á bað­her­bergi á Hótel Frón í Reykja­vík. Dreng­ur­inn fannst stuttu síðar í ruslagámi. Hún var metin sak­hæf og hlaut þriggja ára dóm. Málsvörn Agnéar byggði á því að hún hefði enga stjórn haft á gjörðum sínum eða vit­neskju eftir óvænta fæð­ingu barns­ins. Hún hefði ekki vitað að hún væri þunguð. 

17.  mars 2013 hristi Scott James Carcary fimm mán­aða gamla dóttur sína svo harka­lega að hún hlaut blæð­ingu í heila og lést. Hann var dæmdur í fimm ára fang­elsi fyrir stór­fellda lík­ams­árás. 

Þann 31. jan­úar síð­ast­lið­inn fannst sex ára drengur lát­inn að heim­ili sínu að Nýbýla­vegi í Kópavogi. Hann hafði verið kæfður með kodda. Fimmtug móðir hans hefur játað á sig verkn­að­inn og var nýlega metin sak­hæf.

Þann 15. sept­em­ber fannst tíu ára stúlka látin í hraun­inu við Vatn­s­karðs­námu á Krýsu­vík­ur­svæð­inu. Faðir hennar er nú í gæslu­varð­haldi vegna gruns um að hafa ráðið henni bana. 

Heimilið hættulegasti staðurinn fyrir börn

Margrét Valdi­mars­dóttir, afbrota­fræð­ingur og dós­ent við Háskóla Íslands, segir erfitt að skoða svona mál á Íslandi vegna þess hve fá þau eru. Í útlöndum hafi þó sýnt sig að algeng­ast er að þegar börn séu drepin séu þar for­eldr­arnir að verki. „Það er almennt talið að hættu­leg­asti stað­ur­inn fyrir börn sé heim­ilið,“ segir hún.

Spurð hvað valdi því að þetta eigi sér stað segir Margrét að stundum séu alvar­leg and­leg veik­indi og geð­sjúk­dómar orsökin. „En það er alls, alls ekki alltaf. Það sem er algeng­ara, er að það sem að minnsta kosti teng­ist þessu sé lang­tíma álag og slæmar aðstæður.“

Hún skýrir að lang­tíma streita og átök milli for­eldra séu áhættu­þættir í ofbeldi gegn börnum. Það ýti enn undir það ef fíkni­efna- eða áfeng­is­notkun for­eldr­anna er mikil.

Margrét Valdi­mars­dóttir

Margrét tekur þó skýrt fram að ekki sé hægt að álykta um aðstæður og ástæð­urnar sem liggja að baki þeim málum sem hafa komið upp á síðkastið, og talar hún því almennt um slík mál.

Ójöfnuður auki ofbeldi

„Rann­sóknir hafa borið saman mörg lönd og skoðað hvaða sam­fé­lags­legu þættir tengj­ast hárri morð­tíðni eða hárri tíðni barna­morða. Það sem þá teng­ist því einna helst er mik­ill félags- og efna­hags­legur ójöfn­uður.“

Margrét skýrir að ójöfn­uði fylgi átök í sam­fé­lag­inu. Þá sé alls kyns streita afleið­ing þess að búa við mjög slæmar aðstæður í sam­fé­lagi þar sem margir hafi það gríð­ar­lega gott. „Ójöfn­uður ýtir undir van­traust í garð sam­borg­ara. Fólk er síður lík­legt til að hjálpa hvort öðru.“

Sé ójöfn­uður að aukast á Íslandi getur verið að slæmar afleið­ingar hlyt­ust af því, til dæmis aukin afbrot. „Þegar fólk fer að verða tor­tryggið í garð náung­ans, það er yfir­leitt afleið­ing af miklum félags­legum og efna­hags­legum ójöfn­uði.“

Margrét bendir einnig á að lít­ill aðgangur að menntun og skóla­göngu hafi slæm áhrif. Það sé þó almennt ekki vanda­mál hér á landi. Þá komi fleiri ofbeld­is­mál gegn börnum upp ef for­eldrar búa við slæmar aðstæður án þess að geta fengið aðstoð. 

Ekki endilega til marks um samfélagslegar breytingar

Á Íslandi komi svo fá mál upp að erfitt sé að draga álykt­anir út frá þeim. „Núna á örstuttum tíma hafa komið óvenju mörg mál upp. Er það ein­hver alls­herjar breyt­ing á okkar sam­fé­lagi?“ spyr hún en það þurfi ekki endi­lega að vera. Sveifl­urnar þurfi ekki að þýða stórar sam­fé­lags­legar breyt­ingar, þrátt fyrir að þær veki fólk til umhugs­unar.

„Það er nátt­úru­lega alltaf mik­il­vægt – held ég – fyrir okkur að hugsa um okkar sam­fé­lags­gerð og mik­il­vægi þess að hér sé til staðar gott vel­ferð­ar­kerfi og net sem grípur fólk sem lendir í erf­iðum aðstæðum. Af því að það hefur raun­veru­leg áhrif á svo margt annað,“ segir Margrét.

Fimm ástæður að baki slíkum morðum

Geð­lækn­ir­inn dr. Philip Resnick lýsti árið 1969 fimm meg­in­á­stæðum þess að for­eldrar réðu börnum sínum bana og hefur gjarnan verið vísað til þeirra síðan.

Ein ástæða þess að barn deyr af hendi for­eldris síns er ill með­ferð eða mis­þyrm­ing. Í slíkum til­fellum lætur barn lífið vegna ofbeldis eða van­rækslu sem hefur jafn­vel verið að eiga sér stað lengi. Þetta er algeng­asta ástæðan ef for­eldri drepur barn sitt. 

Önnur skýr­ing getur verið að for­eldrið vilji ein­fald­lega ekki barnið. Þá velur for­eldrið eigin þarfir og lang­anir yfir líf barns­ins. Þetta er algengt þegar morð á nýfæddum börnum eru ann­ars vegar. 

Þriðja skýr­ingin er hefnd. Þá er barn myrt í hefnd­ar­skyni gegn hinu for­eldr­inu – til að koma til­finn­inga­legu höggi á við­kom­andi. Þetta á það til að koma fyrir í for­sjár­deilum fólks sem stendur í skiln­aði. 

Þó það sé tals­vert óal­geng­ara, þá kemur það fyrir að for­eldrar bani börnum sínum vegna geð­sjúk­dóma. Teljast þeir þá ósak­hæfir. Tvær ástæður geta verið að baki slíkum drápum. 

Annars vegar er þegar for­eldri telur sig drepa barn í þágu barns­ins sjálfs, vegna ástar sinnar á því. Vegna ein­hvers konar hug­rofs getur for­eldri talið að ein­hver örlög, verri en dauði, séu að fara að henda barnið. For­eldrið hefur því talið sér trú um að barn­inu sé greiði gerður að drepa það blíð­lega. 

Að öðrum kosti getur algjört hug­rof verið að baki slíkum og engin rök legið að baki. Til dæmis getur for­eldri, vegna sjúk­dóms­á­stands, staðið í þeirri trú að guð hafi skipað sér að fremja morð. 

Margrét segir það mik­il­vægt að gripið sé inn í þegar ein­kenni um van­rækslu – eða eitt­hvað verra – sjá­ist á heim­ilum. „Og það sé hugsað sem stuðn­ingur. Ef inn­gripið er þannig að þetta sé ein­hvers konar refs­ing fyrir for­eldra þá er hætt við því að það sé farið í felur þegar fólk þarf hrein­lega á hjálp að halda.“

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Sorglegt að vita til þess í okkar "góða" samfélagi sé ástand víða svo tæpt að foreldri gefst upp og missir stjórn á geði/skapi og skaðar/drepur barn sitt. Við erum svo dugleg að hjálpa "öðrum" en gleymum að óöryggi, fátækt, skortur á úrræðum og viðunnandi aðstæðum við uppeldi, er stórt vandamál innanlands, sárgrætilegt en satt.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    ".. hristi ... fimm mánaða gamla dóttur sína svo harkalega að hún hlaut blæðingu í heila og lést."
    Við þessu er að segja að hristingurinn þarf í raun ekki vera mjög harkalega til að valda kornabarni skaða. Þetta kalkast á ensku "shaken baby sundrom" og er þekkt. Bak við athöfnina felst síst ásetningur að skaða barnið heldur uppgjöf eftir stanslausan grát barnsins og svefnleysi foreldris og svo vanþekkingin að hristingur geti skaðað barnið það alvarlega.
    Ég man ekki að þessi hætta hafi verið sérstaklega tekið fram í foreldrafræðslu þegar ég var að verða foreldri en ég get ímyndað mér að í samfélagi þar sem venja er að "tukta" börnin til gæti verið lægri þröskuldur í slíka gjörð.
    0
  • SA
    Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Þegar ég var nýflutt til Englands 1974 las ég í dagblaði að þar væri að meðaltali eitt barn myrt á dag af foreldri sínu. Ég man hvað mér þótti þetta í senn hryllilegt og óskiljanlegt.
    2
  • Ásta Jensen skrifaði
    Hræðilegt að heyra 😪
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár