Tókst að semja um forgangsorku og olíubruna hætt

Samn­ingar um for­gangsorku sem náðst hafa milli Orkubús Vest­fjarða og Lands­virkj­unar þýða að engri olíu eða sára­lít­illi þarf lengur að brenna til að kynda hita­veitur á Vest­fjörðum. Fyrir ári síðan voru slíkir samn­ingar sagðir ómögu­legir. For­gangsorka væri of dýr og auk þess ekki fáan­leg. En stór­bruni olíu í ár og fundur á heitu vatni hefur breytt mynd­inni.

Tókst að semja um forgangsorku og olíubruna hætt
Loksins árangur Fögnuður braust út í sumar er heitt vatn í vinn­an­legu magni fannst í Tungudal. Fund­ur­inn gæti gjör­breytt aðstæðum til hús­hit­unar á svæð­inu. Mynd: Orkubú Vestfjarða

Það sem af er ári hefur þurft að brenna 3,6 millj­ónum lítra af olíu til kynd­ingar á fjar­varma­veitum Orkubús Vest­fjarða. Það er ekki aðeins dýrt (kost­aði 550 millj­ónir króna) heldur meng­andi. Og verður á næstu árum óþarfi eftir að Orkubúið samdi nýverið við Lands­virkjun um kaup á for­gangsorku til rekst­urs veitn­anna í stað skerð­an­legrar orku áður. 

Fyrir ári síðan sögðu for­svars­menn þess­ara tveggja rík­is­fyr­ir­tækja slíka samn­inga ómögu­lega. Orku­bús­stjór­inn sagði for­gangsork­una svo dýra að rekstri fjar­varma­veitn­anna yrði sjálf­hætt ef hana þyrfti að kaupa. Upp­lýs­inga­full­trúi Lands­virkj­unar sagði að sjálf­sagt hefði Orkubúið getað samið um for­gangsorku áður fyrr en orku­skortur var sagður gera það að verkum að for­gangsorkan var upp­seld. 

„Samn­ing­ur­inn skapar þannig þrýst­ing á að fundin verði var­an­leg lausn“
Elías Jón­atans­son,
Orku­bús­stjóri

Allt virð­ist nú breytt því í vik­unni barst til­kynn­ing þess efnis að „tíma­móta­samn­ingur“ hefði verið und­ir­rit­aður milli rík­is­fyr­ir­tækj­anna tveggja um raf­orku til næstu fjög­urra ára. „Með þessum nýja samn­ingi verður …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsvá

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár