Rekstur Heimildarinnar sjálfbær á síðasta ári

Við­snún­ingur varð í rekstri sam­ein­aðs félags Stund­ar­innar og Kjarnans árið 2023. Markmið um sjálf­bæran rekstur náð­ist.

Rekstur Heimildarinnar sjálfbær á síðasta ári
Heim­ildin Varð til við sam­ein­ingu Stund­ar­innar og Kjarnans í árs­byrjun 2023. Fór í viku­lega útgáfu eftir gjald­þrot Frétta­blaðs­ins í apríl sama ár. Mynd: Golli

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið ehf., sem gefur út Heim­ild­ina og Vís­bend­ingu, skil­aði jákvæðri afkomu á síð­asta ári, á fyrsta rekstr­ar­ári útgáf­unnar eftir að fjöl­miðl­arnir Stundin og Kjarninn sam­ein­uð­ust í árs­byrjun 2023. 

Í skýrslu stjórnar sem fylgir árs­reikn­ingi útgáfu­fé­lags­ins kemur fram að við­snún­ingur hafi orðið í rekstri félags­ins. Rekstr­ar­hagn­aður var 17,7 millj­ónir króna fyrir fjár­magnsliði, en end­an­leg afkoma eftir fjár­magnsliði og skatta var 11 millj­óna króna hagn­aður. 

Afkoman er í sam­ræmi við yfir­lýs­ingar aðstand­enda félags­ins fyrir sam­runa í árs­lok 2022, þar sem fram kom að mark­miðið væri sjálf­bær rekstur og þar af leið­andi sjálf­stæð blaða­mennska, eins og sagði í yfir­lýs­ingu við sam­ein­ing­una í des­em­ber það ár: „Eitt af grunn­mark­miðum nýs fjöl­mið­ils er sjálf­bær rekstur til lengri tíma sem stendur undir sjálf­stæði rit­stjórnar. Rekst­ur­inn á þó í sam­keppni við stærri fjöl­miðla sem hafa fengið við­var­andi tap­rekstur nið­ur­greiddan af fjár­sterkum aðilum, meðal ann­ars eig­endum útgerða og kvóta.“

Tekju­vöxtur félags­ins milli ára var 38% sam­an­borið við sam­an­lagðan rekstur Kjarnans miðla ehf. og Útgáfu­fé­lags Stund­ar­innar ehf. Alls námu tekjur sam­ein­aðs félags rúmum hálfum millj­arði króna á árinu 2023. Með­al­fjöldi starfs­manna var 25. 

Árið 2022 höfðu bæði sam­runa­fé­lögin verið rekin með tapi. Forveri Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins, Útgáfu­fé­lagið Stundin ehf., tap­aði 39,8 millj­ónum króna á árinu 2022, að með­töldu breyttu upp­gjöri orlofs­skuld­bind­inga og áhrifum tekju­skattsinn­eignar, eftir ýmist lítið tap eða hagnað árin áður. Kjarninn miðlar, hitt sam­runa­fé­lagið, hafði tapað 11,2 millj­ónum króna árið 2022. 

Á aðal­fundi útgáf­unnar á mið­viku­dag voru end­ur­kjörin í stjórn félags­ins Elín Ragn­ars­dóttir, for­maður, Heiða B. Heið­ars­dóttir, Hjálmar Gíslason og Vil­hjálmur Þor­steins­son. Rit­stjóri Heim­ild­ar­innar er Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir og rit­stjóri Vís­bend­ingar Ásgeir Brynjar Torfason. Fram­kvæmda­stjóri útgáfu­fé­lags­ins er Jón Trausti Reyn­is­son. 

Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið er í dreifðu eign­ar­haldi og fer eng­inn eig­andi með meira en 7,6% hlut.

Í skýrslu stjórnar félags­ins kemur einnig fram að félagið starfi meðal ann­ars á dag­blaða­mark­aði, þar sem „helsti keppi­nautur félags­ins er nú í ein­ok­un­ar­stöðu á sviði prent­unar og dreif­ingar dag­blaða“. 

Þá kemur fram að blaða­menn útgáf­unnar hafi þurft að sæta langvar­andi lög­reglu­rann­sókn eftir umfjöllun um  starf­semi útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja.

„Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hóf í febr­úar 2022 rann­sókn á blaða­mönnum, þar á meðal fjórum blaða­mönnum Heim­ild­ar­innar, í tengslum við umfjöllun og gögn er varða almanna­tengsla­her­ferð útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja gegn blaða­mönnum sem fjöll­uðu um mútu­mál útgerð­ar­innar. Við útgáfu árs­reikn­ings þessa, tveimur og hálfu ári síðar, var rann­sókn­inni á blaða­mönn­unum enn við haldið án nið­ur­stöðu.“

Fyr­ir­vari um hags­muni: Fréttin fjallar beint um Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið sem gefur út Heim­ild­ina.

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JG
    Jón Guðmundsson skrifaði
    Misnotkun á sjálfbærni hugtakinu
    0
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Gott að heyra. Stöndum vörð um Heimildina.
    1
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Glæsilegt 😀
    1
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Vel gert, áfram HEIMILDIN!
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Hvað er að frétta Samherja/Namíbíu-svindlinu ? Jebs í Namíbíu eru réttarhöldin yfir mútuþegunum að hefjast í næstu viku, hér heima er rannsókninni ekki lokið eftir allan þennan tíma, saksóknarinn mætti á skrifstofu forstjóranns í samtal ekki til að yfirheyra Samherja-forstjórann og blaðamenn Heimildarinnar hafa stöðu sakborninga, svo virðist vera að lögreglustjóra-embættið í norð-austrinu sitji og standi eftir því hvernig liggur á Samherja-forstjóranum, svona birtist réttarkerfi Íslands okkur flestum.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár