Íbúi í blokkinni væri 674 ár að vinna fyrir tekjum skattakóngsins

Tekju­hæstu ein­stak­lingar lands­ins búa í Vest­manna­eyjum. Fólkið sem býr í blokk í Áshamri í Vest­manna­eyjum svarar því hvað þeir myndu gera ef þeir fengju sömu mán­að­ar­tekjur og skatta­kóng­ur­inn.

Íbúi í blokkinni væri 674 ár að vinna fyrir tekjum skattakóngsins
Fjöl­býl­is­hús Með­al­tekjur í hús­inu, sam­kvæmt óform­legri rann­sókn Heim­ild­ar­innar, eru 688 þús­und krónur á mán­uði Mynd: Artist-freed

Fjögur af fimm efstu sætum hátekju­list­ans eru skipuð Vest­manna­ey­ingum. Þar trónir Sigurjón Ósk­ars­son á toppnum, ásamt börn­unum sínum þremur, þeim Þóru Hrönn, Viðari og Gylfa. Öll eru þau fyrr­ver­andi eig­endur útgerð­ar­innar Óss. Heils­árs­tekjur Sig­ur­jóns voru rúmur fimm og hálfur millj­arður króna. 

Háar tekjur tak­markast ekki við þessa til­teknu fjöl­skyldu. Með­al­tekjur eru háar í Eyjum, í raun hæstar allra bæj­ar­fé­laga í fyrra. Samkvæmt gögnum Hag­stof­unnar var með­al­tal heild­ar­tekna í Vest­manna­eyjum 13,9 millj­ónir árið 2023. Það gera um 1,16 millj­ónir á mán­uði. Til sam­an­burðar voru árs­tekjur á Íslandi að með­al­tali 9,23 millj­ónir, eða um 770 þús­und krónur á mán­uði.

Vinna meðalíbúa í 674 ár 

Þó má varla vera að allir í Vest­manna­eyjum séu með gríð­ar­lega háar tekjur, enda hljóta ein­hverjir að sinna lág­launa­störfum þar líkt og ann­ars staðar. Hátekju­fólkið hífir þar að auki með­al­talið tals­vert upp. 

Heim­ildin gerði óform­lega könnun á því hverjar með­al­tekjur íbúa …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár