Ágúst barnaníðingur kominn með nýtt nafn

Ágúst Magn­ús­son fékk fimm ára dóm vegna kyn­ferð­is­brota gegn sex ungum drengjum árið 2004. Ágúst hefur nú skipt um nafn, er hvergi skráður til heim­ilis og því ekki vitað hvar hann heldur til. Yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seg­ist ekki skilja af hverju dæmdum barn­a­níð­ingum er gert það auð­velt að breyta um nafn.

Ágúst barnaníðingur kominn með nýtt nafn
„Ég bara skil ekki af hverju er dæmdum barn­a­níð­ingi gert það auð­velt að breyta um nafn,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Jóhannes Kr.

Í fyrsta þætti Á vett­vangi fjall­aði Jóhannes Kr. Krist­jáns­son um barn­a­níð­ing­inn Ágúst Magn­ús­son sem fékk fimm ára dóm vegna kyn­ferð­is­brota gegn sex ungum drengjum á aldr­inum 14 til 18 ára árið 2004. Ágúst bjó á áfanga­heim­il­inu Vernd þar sem hann var að ljúka afplánun dóms­ins þegar hann setti sig í sam­band við tál­beitu Kompáss sem sagð­ist vera 13 ára stúlka. Ágúst kom í íbúð í vest­urbæ Reykja­víkur til að hitta stúlk­una. Brota­vilj­inn var skýr því í sam­skiptum við tál­beit­una lýsti hann því hvernig hann ætl­aði að brjóta gegn henni. Sem betur fer voru það starfs­menn Kompáss sem tóku á móti Ágústi en ekki ung stúlka og eftir afhjúp­un­ina var Ágúst fluttur aftur á Litla hraun þar sem honum var gert að sitja af sér all­ann dóm­inn. Ágúst er einn þeirra barn­a­níð­inga sem reyna að fela slóð sína með nafna­breyt­ingu. Hann heitir í dag Jan T. Bergland Fann­eyj­ar­son sam­kvæmt Þjóðskrá. Og …

Kjósa
54
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Lyfjagelding dugar kannski ekkert á svona menn. Veit reyndar ekki hvort hún er lögleg. En það er lágmark að hægt sé að fylgjast með síbrotamönnum með barnagirnd. Einn verknaður og algengt er að barnið sé skaddað fyrir lífstíð.
    0
  • Blessuð börnin hvað hafa þau unnið til saka til þess að fá þá framkomu sem sumir fullorðnir kunna að sýna þeim
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár