Alþjóðadómstóllinn segir byggðir Ísraels í Palestínu ólöglegar

Byggðum Ísraels á landi Palest­ínu er við­haldið í bága við alþjóða­lög, segir í úrskurði Alþjóða­dóm­stóls­ins í Haag. Máli Suður-Afríku þar sem Ísrael er sakað um þjóð­ar­morð er ekki lokið.

Mótmæli við Alþingi
Mótmæli við Alþingi Hernaði Ísraels á Gaza hefur verið mót­mælt á Íslandi eins og víðar um heim. Mynd: Golli

Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag hefur úrskurðað að vera Ísraels í Palest­ínu sé ólög­leg og að henni eigi að ljúka „eins fljótt og auðið er“.

Þetta kemur fram í úrskurð­inum sem Nawaf Salam, for­seti dóm­stóls­ins, las upp í dag. Úrskurð­ur­inn er ráð­gef­andi og ekki bind­andi og byggir á máli sem Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna setti fram árið 2022.

Salam sagði Ísrael brjóta Gen­far­sátt­mál­ann með fram­ferði sínu en þar segir að her­námslið skuli ekki flytja óbreytta borg­ara sína yfir á það svæði sem hernumið hefur verið.

„Byggðir Ísraels á Vest­ur­bakk­anum og í Austur-Jer­úsalem, og stjórnin sem fylgir þeim, hafa verið settar upp og er við­haldið í bága við alþjóða­lög,“ las Salam upp úr nið­ur­stöðu 15 manna dóm­stóls­ins, að því fram kemur á Al Jazeera.

Hann bætti því við að stefna Ísraels á svæðum Palest­ínu væri ígildi inn­limunar svæð­anna og að Ísrael mis­mun­aði palest­ínsku fólki á svæð­unum.

Beðið eftir þjóðarmorðs-málinu

Suður-Afríka rekur annað mál fyrir dóm­stólnum þar sem því er haldið fram að Ísrael fremji þjóð­ar­morð með hern­aði sínum á Gaza. Bráða­birgð­ar­nið­ur­staða hefur þegar verið birt í mál­inu og skip­aði dóm­stóll­inn Ísrael að koma í veg fyrir þjóð­ar­morð og tryggja það að hjálp­ar­gögn ber­ist íbúum Gaza.

Þá skip­aði dóm­stóll­inn Ísrael að stöðva inn­reið sína í Rafah vegna hættu fyrir þau hund­ruð þús­unda Palest­ínu­manna sem leita skjóls í borg­inni, sem er stað­sett syðst á Gaza. Árásir Ísrael á Gaza hafa þó haldið áfram og sýndi rann­sókn í fræði­rit­inu Lancet að yfir 186.000 dauðs­föll hafi orðið vegna hern­að­ar­ins í Gaza síð­ustu miss­eri.

„Auðvitað eru þetta stríðs­glæpir. Auðvitað eru þetta brot á alþjóða­lögum.“

Árásunum hefur verið mót­mælt á Íslandi und­an­farin miss­eri. Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, sagði í mars að atburð­irnir væru „hrylli­legir“ og nýkjör­inn for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir sagð­ist fyrir for­seta­kosn­ingar vera hrygg­brotin yfir því sem væri að ger­ast á Gaza.

„Þetta er að kremja í mér hjartað og ég held að okkur líði öllum alveg ótrú­lega illa út af þessu,“ sagði Halla. „Auðvitað eru þetta stríðs­glæpir. Auðvitað eru þetta brot á alþjóða­lögum.“

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Þetta er löngu vitað og mín skoðun er sú að yfirgangur og ólögleg landtaka ísraelskra harðlínu og öfgatrúarhópa er undirliggjandi rót þess ofbeldis sem ríkir á þeim slóðum.
    Ekki bætir þar úr að hamas sem ætti að vera málsvari palestínumanna er bara skósveinn Irans og hefur sem markmið að valda upplausn og skapa píslarvotta.
    ESB hefur lagt bann á vörur sem eru framleiddar af ísraelskum fyrirtækjum á svæðum Palestínu en seldar undir "made in Israel". M.a. eru það Sodastream tæki sem eru svo vinsæl meðal íslendinga ...
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár