Rætt um umræðu vegna forsetaframboðs Katrínar

Heim­spek­ing­ur­inn Jón Ólafsson og rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir rök­ræða gagn­rýni hvors ann­ars vegna fram­boðs Katrínar Jak­obs­dóttur til for­seta. Sér­stakur siða­meist­ari rök­ræðn­anna er Jón Trausti Reyn­is­son, blaða­maður og fram­kvæmda­stjóri Heim­ild­ar­innar.

Rætt um umræðu vegna forsetaframboðs Katrínar
Framboð Nokkrar konur buðu sig fram til for­seta Íslands. Mynd: Golli

Heim­spek­ing­ur­inn Jón Ólafsson, pró­fessor við hug­vís­inda­svið HÍ, og blaða­mað­ur­inn og und­ir­rituð (Auður) voru ósam­mála um álita­mál varð­andi hlut­verk og aðkomu blaða­manna og fræði­manna í kosn­inga­bar­áttu Katrínar Jak­obs­dóttur, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, til for­seta. Bæði skrifuðu greinar í aðdrag­anda kosn­inga; Auður gagn­rýndi birt­ing­ar­mynd og aðstæður fram­boðs­ins en Jón skrif­aði grein þar sem hann var­aði við kven­fyr­ir­litn­ingu í gagn­rýni á téðan fram­bjóð­anda. 

Auður skrif­aði aðra grein og taldi Jón hafa áður tengt hags­muni sína við fram­bjóð­and­ann og gæti því ekki birst sem hlut­laus sér­fræð­ingur í málum sem þessum. En Katrín hefði sem for­sæt­is­ráð­herra beðið Jón um að leiða starfshóp um traust á stjórn­málum auk þess að hann hefði áður leitt verk­efnið Lýð­ræð­is­leg stjórn­ar­skrár­gerð – sem fékk 150 milljóna króna önd­veg­is­styrk frá Rannís yfir 3 ára tíma­bil á sama tíma og til stóð að end­ur­skoða stjórn­ar­skrá Íslands í sam­starfi allra flokka, sam­kvæmt áætlun for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar. En eitt af við­fangs­efnum verk­efn­is­ins var …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Jón Ólafsson er afskaplega kurteis maður.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Það verður gaman og fróðlegt að fylgjast með debati ykkar Jón Ó, Auður J og Jón T.
    1
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Mér finnst lélegt hjá Jóni að segja að gagnrýni á Katrínu sé vegna undirliggjandi kvenhaturs, Það er kvenhatur í þjóðfélaginu það er satt og bæði Katrín og Agnes hafa báðar áreiðanlega fengið að finna fyrir því, en það er ekki hægt að skauta fram hjá þeirri gagnrýni sem Katrín fær vegna verka sinna, hún hafi svikið málstað sem hún barðist einu sinni fyrir (að það skipti máli hvernig kökunni sé skipt ekki bara skreytingarnar). Í tíð hennar ríkisstjórnar hafi ísl. samfélag stórlega breyst til hægri og líf öryrkja og eldri borgara orðið við og undir fátæktarmörk. Ég gagnrýni Katrínu harðlega en ég er sannanlega ekki með kvenhatur.
    7
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Finar umræður, takk.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár