Fossar töpuðu hálfum milljarði árið sem VÍS keypti bankann

Fjár­fest­ing­ar­bank­inn Fossar tap­aði yfir hálfum millj­arði króna 2023. Síðla árs keypti trygg­inga­fé­lag í sem líf­eyr­is­sjóðir eiga stóran hlut í bank­ann og greiddi fyrir metfé sem að stóru leyti byggði á við­skipta­vild.

Fossar töpuðu hálfum milljarði árið sem VÍS keypti bankann
Fossar töp­uðu miklu Fjár­fest­ing­ar­bank­inn Fossar tap­aði miklum pen­ingum í fyrra en var svo keyptur á 4,7 millj­arða síðla árs í umdeildum við­skiptum. Haraldur Þórð­ar­son var for­stjóri Fossa og er nú yfir sam­ein­uðu félagi VÍS og Fossa. Mynd: Skagi

VÍS borg­aði 2,7 millj­arða króna yfir­verð fyrir Fossa vegna vöru­merkis og við­skipta­vildarFjár­fest­ing­ar­bank­inn Fossar tap­aði 550 millj­ónum króna í fyrra og jókst rekstr­ar­kostn­aður bank­ans um nokkurn veg­inn sömu upp­hæð. Árið áður hafði tap bank­ans numið tæp­lega 77 millj­ónum. Í tap­inu í fyrra var auk­inn launa­kostn­aður starfs­manna drjúgur en laun og hlunn­indi fram­kvæmda­stjórnar og stjórn­ar­manna juk­ust til dæmis um tæp­lega 55 pró­sent á milli 2022 og 2023 og stóðu í tæp­lega 230 millj­ónum. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fossa fyrir 2023 sem skilað var í maí.

Söluverð Fossa fjór­falt hærra en það ætti að vera miðað við mat félags­ins sjálfsÞá dróg­ust hreinar rekstr­ar­tekjur Fossa saman um rúm­lega 20 millj­ónir króna á milli 2022 og 2023 og end­uðu í 1.125 millj­ónum …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár