VÍS borgaði 2,7 milljarða króna yfirverð fyrir Fossa vegna vörumerkis og viðskiptavildar

Eitt af stóru trygginga­félögum landsins, VÍS, keypti fjár­festinga­bankann Fossa í fyrra fyrir alls 4,7 milljarða króna í fyrra. Endanlega verðið var nokkuð frá því sem áður hafði verið í umræðunni og í nýbirtum ársreikningi kemur fram að stærsti hluti kaup­verðsins hafi verið svokallað yfirverð. Verð sem greitt var fyrir eitthvað annað en virði eigna Fossa. Í þessu tilfelli vörumerki og viðskipta­vild.

Trygginga­félagið VÍS, sem var og er í meirihluta­eigu íslenskra lífeyris­sjóða, keypti fjár­festinga­bankann Fossa í fyrra, Ritað var undir kaup­samning í maí, stjórn VÍS samþykkti þau í júní og gengið var endanlega frá kaupunum í byrjun október það ár. Ekki var eining á meðal stærstu hluthafa um kaupin. Gildi lífeyris­sjóðir, sem er þriðji stærsti hluthafi félagsins með 8,23 prósent hlut í dag, lagðist til að mynda gegn kaupunum á þeim forsendum að honum þætti uppgefið kaupverð, 4,2 milljarðar króna, allt of hátt.

Davíð Rúdólfsson, sem í dag er framkvæmda­stjóri Gildis, sagði á þeim tíma við Heimildina að sjóðurinn hefði „verulegar efasemdir um að þetta sé ásættanlegt verð sem verið er að greiða fyrir hlutinn.“ Auk Gildis kusu Lífsverk og Almenni lífeyris­sjóðurinn gegn kaupunum.

Í gær var svo greint frá því að móður­félag hins sameinaða félag hefði fengið nýtt nafn, Skagi. Það verður, héðan í frá nafnið sem félagið verður þekkt sem í Kauphöll. Í frétta­tilkynningu sem send var út vegna þessa sagði að um nýtt afl á fjármála­markaði væri að ræða og að nafnið væri „innblásið af íslenskri náttúru, styrk hennar og samspili við líf fólksins í landinu.“

Lán, aukning og hlutabréf

Sama dag, í gær, birtist ársreikningur VÍS vegna ársins 2023. Þar var meðal annars fjallað um kaupin á Fossum. Þar kemur fram að endanlegt kaupverð trygginga­félagsins á fjár­festinga­bankanum hafi verið hærra en áður var talið, eða tæplega 4,7 milljarðar króna. Kaup­verðið var greitt með þrennum hætti. Í fyrsta lagi var einn milljarður króna greiddur sem nýtt hlutafé inn í Fossa áður en að sameiningunni varð. Í öðru lagi hafði VÍS lánað Fossum 364 milljónir króna í formi víkjandi láns sem síðar var breytt í hlutafjár­aukningu í Fossum. Í þriðja og síðasta lagi var greitt með 210 milljón hlutum í VÍS, að andvirði 3,3 milljörðum króna, sem nam um ellefu prósent hlut í sameinuðu félagi. Þau hlutabréf fóru til þáverandi eigenda Fossa. Af þeim bréfum fór stór hluti til Haraldar Þórðar­sonar, fyrr­verandi forstjóra Fossa og nú forstjóra Skaga (sjá á aðalmynd með umfjölluninni), og Steingríms Arnars Finns­sonar, forstjóra Fossa, og hjónanna Sigurbjörns Þorkels­sonar og Aðal­heiðar Magnúsdóttur, sem voru stærstu hluthafar Fossa. 

Umfang hluta­bréfa sem hluthafar Fossa fengu fyrir fjár­festinga­bankann dróst reyndar sífellt saman frá því að tilkynnt var um undir­ritun kaup­samnings. Fyrst átti að borga með 13,3 prósent hlut í sameinuðu félagi, og svo 12,62 prósent. Á endanum var greitt kaupverð ellefu prósent hlutur.

Eignir metnar á rúmlega 1,9 milljarða króna

Í ársreikningnum er fleira rakið. Þar kemur til að mynda fram hvað var raun­verulega keypt þegar Fossar, sem voru stofnaðir sem verðbréfa­miðlun árið 2015 af áður­nefndum Haraldi, Steingrími og Sigur­birni og Aðalheiði, voru innlimaðir í VÍS-samstæðuna. 

Í skýringum með ársreikningnum kemur fram að skammtímalán Fossa við kaupin hafi verið rúmlega 8,8 milljarðar króna. Helstu eignir voru skulda­bréf sem verðmetin voru á 5,2 milljarða króna, verðbréf til áhættu­varna sem metin voru á tæplega 1,8 milljarða króna og handbært fé upp á rúmlega 2,6 milljarða króna. Þegar búið var að draga allar skuldir frá virði eigna var nettó­virði keyptra eigna rúmlega 1,9 milljarðar króna. Það þýðir að VÍS greiddi rúmlega 2,7 milljarða króna í yfirverð fyrir kaupin á Fossum. Þar er um að ræða annars vegar vöru­merkið Fossa og hins vegar viðskipta­vild. 

Úr árs­reikn­ingi VÍS 2023Nettó virði keyptra eigna var rúm­lega 1,9 millj­arðar króna og yfir­verð var rúm­lega 2,7 millj­arðar króna.

Félag Haraldar og eiginkonu hans á í dag 2,9 prósent hlut í sameinuðu félagi sem metinn er á um einn milljarð króna. Félag Steingríms á um 1,9 prósent hlut sem metinn er á rúmlega 630 milljónir króna og félag Sigurbjörns og Aðal­heiðar á 4,82 prósent hlut sem metinn er á rúmlega 1,6 milljarð króna. Öll eru þau á lista yfir 20 stærstu eigendur hins sameinaða félags.

Stórir einkafjárfestar fyrirferðamiklir

Trygginga­félög eru stórtækir leikendur á fjár­festinga­markaði á Íslandi. Margar tryggingar eru lögbundnar, sem þýðir að fólk og fyrirtæki verða að kaupa þær. Því safnast miklir peningar saman inni í trygginga­félögum sem þarf svo að ávaxta til að geta staðið skil á útgreiðslu til tryggðra þegar á reynir. 

Vegna þessa hefur það lengi þótt eftirsóknar­vert hjá fjár­festum að eignast trygginga­félög. Það veitir þeim miklu meiri fyrirferð og bolmagn til að hafa áhrif á markaði. 

Íslenskir lífeyris­sjóðir eru stórir eigendur í VÍS/Skaga líkt og í nær öllum öðrum skráðum félögum á markaði. Af tíu stærstu hluthöfum félagsins eru sex lífeyris­sjóðir. Þar er þó líka að finna þrjá stóra einka­fjárfesta. Einn er áðurnefnt félag Sigurbjörns og Aðal­heiðar, Klettar fjár­festingar ehf. Næst stærsti eigandinn er svo Skel fjár­festinga­félag, sem er í meirihluta­eigu hóps í kringum Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar­formanns félagsins, með 8,23 prósent hlut. Jón Ásgeir var síðast í slíkri stöðu innan Glitnis fyrir bankahrun, þegar félög sem hann leiddi stýrðu þeim banka síðustu metrana áður en hann féll í október 2008. Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, situr í stjórn VÍS/Skaga í krafti þess eignar­hlutar.

Þá á Sjávarsýn, í eigu Bjarna Ármans­sonar sem fyrr á öldinni var banka­stjóri Glitnis, 7,88 prósent hlut í félaginu.

Dýrt að skipta um forstjóra

VÍS/Skagi hagnaðist um 1,8 milljarða króna í fyrra. Einskiptis­liðir skiptu þar miklu en án þeirra hefði hagnaðurinn verið 2,8 milljarðar króna. Þar spilaði stærsta rullu niður­færsla hugbúnaðar upp á 805 milljónir króna en auk hans kostuðu sameiningin við Fossa, forstjóra­skipti hjá VÍS og undir­búningur þess að færa trygginga­rekstur í dóttur­félag samanlagt 191 milljónir króna. 

Forstjóra­skiptin áttu sér stað 11. janúar. Þá var Helga Bjarna­syni sagt upp störfum og Guðný Helga Herberts­dóttir tók við starfi hans. Þrátt fyrir að hafa einungis unnið þriðjung af mánuði á árinu 2023 greiddi VÍS Helga 69,1 milljónir króna, eða um 5,8 milljónir króna að meðaltali á mánuði yfir árið. Guðný Helga fékk svo 64,4 milljónir króna í laun og mótframlag í lífeyris­sjóð, eða um 5,4 milljónir króna að meðaltali á mánuði og Haraldur Þórðarson, sem hóf störf sem forstjóri samstæðu í október, fékk alls 15,1 milljónir króna fyrir þriggja mánaða vinnu, eða fimm milljónir króna á mánuði að meðaltali. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

VÍS og Fossar

FréttirVÍS og Fossar

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“

Kaup Vátrygginga­félags Íslands á Fossum í fyrra voru umdeild og lögðust þrír lífeyris­sjóðir í hluthafa­hópnum gegn þeim. Ársreikn­ingur Fossa fyrir árið 2023 sýnir félag í rekstrar­vanda. Ólafur Sigurðsson hjá Birtu segir að ársreikn­ing­urinn sýni að mögulega hefði hægt að semja betur við Fossa en að of snemmt sé að dæma viðskiptin sem mistök.
FréttirVÍS og Fossar

Söluverð Fossa fjórfalt hærra en það ætti að vera miðað við mat félagsins sjálfs

Vátrygginga­félagið VÍS og Fossar eru í mótsögn við fyrra mat Fossa á forsendunum sem verðmeta ætti félagið á. Til stendur að almennings­hluta­félagið VÍS kaupi Fossa á 4,2 milljarða og byggir það verðmat á framtíðar­tekjum félagsins og mögu­leikum. Í dómsmáli árið 2019 töldu Fossar hins vegar að félagið ætti að vera verðmetið út frá bókfærðu virði eiginfjár.
FréttirVÍS og Fossar

Gildi telur verðmæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félaginu að óbreyttu

Á miðviku­daginn tekur hluthafa­fundur trygginga­félagsins VÍS afstöðu til þess hvort kaupa eigi fjár­festingar­bankann Fossa fyrir um 4,2 milljarða. Davíð Rúdolfsson, forstöðu­maður eigna­stýringar Gildis, segist ekkert botna í verðmati félagsins. Verð fjár­festingar­bankans Fossa er einnig ofmetið samkvæmt greiningu bandaríska fjár­festingar­bankans Goldman Sachs á sambærilegum fyrir­tækjum. VÍS er í meirihluta­eigu lífeyris­sjóða og þar með almennings.

Mest lesið undanfarið ár