Söluverð Fossa fjórfalt hærra en það ætti að vera miðað við mat félagsins sjálfs

Vátrygg­inga­fé­lagið VÍS og Fossar eru í mót­sögn við fyrra mat Fossa á for­send­unum sem verð­meta ætti félagið á. Til stendur að almenn­ings­hluta­fé­lagið VÍS kaupi Fossa á 4,2 millj­arða og byggir það verð­mat á fram­tíð­ar­tekjum félags­ins og mögu­leikum. Í dóms­máli árið 2019 töldu Fossar hins vegar að félagið ætti að vera verð­metið út frá bók­færðu virði eig­in­fjár.

Söluverð Fossa fjórfalt hærra en það ætti að vera miðað við mat félagsins sjálfs
Önnur skoðun Fyrir fjórum árum töldu Fossar að reikna ætti verð­mæti fyr­ir­tæk­is­ins út frá bók­færðu virði eig­in­fjár þess. Nú stendur til að VÍS, sem er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða, kaupi félagið á rúm­lega fjórum sinnum hærra verði en virði bók­færðs eigin fjár Fossa.

Verð­mið­inn upp á um 4,2 millj­arða króna sem settur er á fjár­fest­ing­ar­bank­ann Fossa í fyr­ir­hugðum við­skiptum við vátrygg­inga­fé­lagið VÍS er byggður á allt öðrum for­sendum en fyr­ir­tækið sjálft verð­mat sig árið 2019. Samkvæmt þeim for­sendum sem Fossar töldu eðli­leg­ast að verð­meta félagið á í dóms­máli við félög tveggja af fyrr­ver­andi starfs­mönnum Fossa ætti virði fjár­fest­ing­ar­bank­ans að vera rúm­lega 1 millj­arður króna.

„Sókn­ar­að­ili byggir á því að eðli­legra sé að horfa til bók­færðs virðis eigin fjár þegar félög á borð við sókn­ar­að­ila eru metin.“
Fossar rök­styðja verð­mat félags­ins fyrir dómi

Þetta má lesa út úr dóms­skjölum í mál­inu frá árinu 2019 þar sem Fossar og starfs­menn­irnir tveir, Þorbjörn Atli Sveins­son og Gunnar Freyr Gunn­ars­son, deildu um á hvaða verði hluta­bréf eign­ar­halds­fé­laga þeirra ættu að vera keypt þegar þeir létu af störfum hjá verð­bréfa­fyr­ir­tæk­inu. Hvor um sig átti 2,73 pró­sent í Fossum. Greint var frá þeim mála­rekstri í fjöl­miðlum á sínum tíma.

Hlut­hafa­fundur VÍS mun á morgun taka afstöðu til þess hvort vátrygg­inga­fé­lagið eigi að kaupa Fossa og greiða fyrir með 13,3 pró­senta hlut í VÍS. Þessi hlutur er um 4,5 millj­arða króna miðað við mark­aðs­gengi félags­ins. VÍS er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða sem fjár­festa fyrir iðgjöld sjóðs­fé­laga sinna - almenn­ings. VÍS er skráð á markað og er því almenn­ings­hluta­fé­lag sem er í meiri­hluteigu almenn­ings í gegnum líf­eyr­is­sjóði. 

Málið snýst því í grunn­inn um það hvort nota eigi fé trygg­inga­fé­lags sem er meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóðs og þar með almenn­ings til að kaupa nýlegan fjár­fest­ing­ar­banka á yfir­verði. 

Deildu um verð­mæti FossaÞorbjörn Atli Sveins­son, sem var þekktur fót­bolta­maður á árum áður, deildi við Fossa um verð­mæti hluta­bréfa hans í félag­inu. Hann var einn af stofn­endum Fossa en hætti hjá félag­inu árið 2018.

Mótsagnir í verðmötum

Í deil­unni við starfs­menn­ina sagði lög­maður félags­ins, fyrir þessa hönd, að miða ætti verð­mat á Fossum við bók­fært virði eig­in­fjár þegar metið væri á hvaða verði kaupa ætti hluta­bréf starfs­mann­anna tveggja. „Sókn­ar­að­ili  byggir á því að eðli­legra sé að horfa til bók­færðs  virðis  eigin  fjár  þegar  félög  á  borð við sókn­ar­að­ila eru metin.“ 

Í verð­mat­inu sem liggur til grund­vallar í fyr­ir­hug­uðum við­skiptum VÍS með Fossa er hins vegar byggt á fram­tíð­ar­mögu­leikum Fossa til að skapa tekjur. „Verðmat Fossa fjár­fest­inga­banka byggir því á vænt­ingum um fram­tíð­ar­tekjur og arð­semi til fram­tíðar,“ segir í svari VÍS til Heim­ild­ar­innar.  

Þetta mat á verði Fossa er í algjörri mót­sögn við það hvernig Fossar töldu að verð­meta ætti félagið árið 2019. Afleið­ingin af því að verð­meta Fossa með þeim hætti sem félagið vildi gera árið 2019 myndi leiða til þess að félagið ætti að vera metið á 1058 millj­ónir í við­skipt­unum við Vátrygg­inga­fé­lag Íslands. Ekki tæp­lega 4500 millj­ónir.  Munurinn er rúm­lega fjór­faldur. 

Fossar vildu kaupa út starfsmenn út frá bókfærðu virði

Í dóms­mál­inu kemur fram að Fossar hafi upp­haf­lega boðið þeim Þorbirni Atla og Gunnari að kaupa af þeim hluta­bréfin á sem 2,73 pró­sentum af bók­færðu eigin fé Fossa. Í þeirra til­fellum voru þetta rúm­lega 8 milj­ónir króna á mann. Þeir vildu hins vegar að Fossar myndu greiða um 30 millj­ónir króna til hvors um sig fyrir hluta­bréfin. Munurinn var 3,75 faldur og því lægri en sá munur sem er verð­mati Fossa á sjálfu sér í dag og því hvernig fyr­ir­tækið taldi að ætti að verð­meta það árið 2019. 

Ekki liggur fyrir á hvaða verði Fossar keyptu hluta­bréf Þor­björns Atla og Gunnars Þórs á að lokum þar sem þetta kemur ekki fram í dóms­skjöl­unum. Mikið skildi hins vegar á milli aðila. Líklega má ætla að gerður hafi verið ein­hvers konar samn­ingur á milli aðila sem trún­aður gildir um. 

Fossar endurómuðu áhyggjur lífeyrissjóðs

Athygli vekur að í dóms­skjöl­unum í mál­inu þá færa Fossar rök fyrir því að eiga verð­mat fyr­ir­tæk­is­ins við bók­fært virði eig­in­fjár þess sem svipar til þeirra raka sem Davíð Rúd­olfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis, leggur fram þegar hann ræðir um af hverju verð­mæti Fossa er ofmetið. 

Í mála­ferlunum sagði lög­mað­ur­inn fyrir hönd Fossa:  „Starf­semi sókn­ar­að­ila grund­vall­ist í meg­in­dráttum á þókn­unum sem greiddar séu fyrir  milli­göngu  um  verð­bréfa­við­skipti.  Ekki  sé  um  föst  við­skipti  eða  fastar  tekjur  að  ræða  og  af  þeim sökum sé ekki hægt að finna mark­aðs­verð á hlut­unum byggt á marg­földun á væntum fram­tíð­ar­tekjum eða hagn­aði.  Þá  sé  starf­semi  sókn­ar­að­ila  við­kvæm  fyrir  manna­breyt­ingum  þar  sem  tekjur  bygg­ist  að  miklu leyti  á  per­sónu­legum  tengslum  starfs­manna  við  við­skipta­vini  og  vinnu  þeirra  hverju  sinni.  [...] Sókn­ar­að­ili sé fámennt félag með um 13 starfs­menn og því geti breyt­ingar í starfs­manna­hópi haft veru­leg áhrif á rekstr­ar­nið­ur­stöðu hverju sinni. Í ljósi þess­arar áhættu sem rekstri mats­beið­anda fylgi sé óvar­legt að byggja verð­mat á áætl­unum um fjár­flæði og væntum fram­tíð­ar­tekjum.“

Þrátt fyrir að Fossar hafi sagt þetta um eigið hluta­bréfa­verð fyrir nokkrum árum þá er kom allt annað hljóð í strokk­inn nú: Verð­matið á Fossum byggir einmitt á áætl­unum um fjár­flæði og fram­tíð­ar­tekjum. 

Munurinn á afstöðu Fossa má mögu­lega rekja til þess að í deil­unni við starfs­menn­ina þjón­aði það hags­munum hlut­haf­anna að virði Fossa væri sem minnst til að hluta­bréfin yrðu keypt af þeim Gunnari og Þorbirni Atla á sem lægstu verði. Í dag þjónar það hins vegar hags­munum hlut­hafa Fossa að félagið sé verð­metið á eins háu verði og mögu­legt er það sem þýðir hærra verð fyrir þá þegar þeir selja Fossa inn í VÍS. 

*Upp­haf­lega  byggði fréttin á þeim for­sendum að hlut­hafar Fossa myndu fá greitt fyrir sinn hlut með 260 milljón hlutum í VÍS eða 13,3 pró­senta hlut. Þetta var upp­haf­lega hug­myndin í febr­úar 2023. Síðan þá hefur vænt­an­legt sölu­verð verið lækkað í 245 milljón hluti eða 12,62 pró­senta hlut í VÍS. 

-
hluti í sókn­ar­að­ila. Ágrein­ingur sé á milli aðila um ve
rðmæti umræddra hluta.
Í mats­beiðni sókn­ar­að­ila kemur fram að 19. júní sl. hafi sókn­ar­að­ili sent varn­ar­að­ilum kauptil­boð í A
-
hluta­bréf þeirra að fjár­hæð 8.218.771 kr. sem hafi verið byggt á hlut­deild varn­ar­að­ila í bók­færðu eigin fé
sókn­ar­að­ila miðað við en
dur­skoð­aðan árs­reikn­ing sókn­ar­að­ila fyrir árið 201. Við starfs­lok hafi hvor þeirra um sig átt 2.684.419 A
-
hluti í sókn­ar­að­ila. Ágrein­ingur sé á milli aðila um ve
rðmæti umræddra hluta.
Í mats­beiðni sókn­ar­að­ila kemur fram að 19. júní sl. hafi sókn­ar­að­ili sent varn­ar­að­ilum kauptil­boð í A
-
hluta­bréf þeirra að fjár­hæð 8.218.771 kr. sem hafi verið byggt á hlut­deild varn­ar­að­ila í bók­færðu eigin fé
sókn­ar­að­ila miðað við en
dur­skoð­aðan árs­reikn­ing sókn­ar­að­ila fyrir árið 20Starf­semi sókn­ar­að­ila grund­vall­ist í meg­in­dráttum á þókn­unum sem
greiddar séu
fyrir  milli­göngu  um  verð­bréfa­við­skipti.  Ekki  sé  um  föst  við­skipti  eða  fastar  tekjur  að  ræða  og  af  þeim
sökum sé ekki hægt að finna mark­aðs­verð á hlut­unum byggt á marg­földun á væntum fram­tíð­ar­tekjum eða
hagn­aði.  Þá  sé  starf­semi  sókn­ar­að­ila  við
kvæm  fyrir  manna­breyt­ingum  þar  sem  tekjur  bygg­ist  að  miklu
leyti  á  per­sónu­legum  tengslum  starfs­manna  við  við­skipta­vini  og  vinnu  þeirra  hverju  sinni.  Þannig  hafi
upp­sagnir  starfs­manna  á  fyrri  hluta  árs  2018  skilað  sér  í  veru­legri  lækkun  rekstr­ar­tekna  á  árin
u  2018.
Sókn­ar­að­ili sé fámennt félag með um 13 starfs­menn og því geti breyt­ingar í starfs­manna­hópi haft veru­leg
áhrif á rekstr­ar­nið­ur­stöðu hverju sinni. Í ljósi þess­arar áhættu sem rekstri mats­beið­anda fylgi sé óvar­legt
að byggja verð­mat á áætl­unum um fjár
flæði og væntum fram­tíð­ar­tekjum
Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“
FréttirSameining VÍS og Fossa

Birta um kaup VÍS á Fossum: „Kannski verið hægt að semja betur við þá“

Kaup Vátrygg­inga­fé­lags Íslands á Fossum í fyrra voru umdeild og lögð­ust þrír líf­eyr­is­sjóðir í hlut­hafa­hópnum gegn þeim. Árs­reikn­ingur Fossa fyrir árið 2023 sýnir félag í rekstr­ar­vanda. Ólafur Sig­urðs­son hjá Birtu segir að árs­reikn­ing­ur­inn sýni að mögu­lega hefði hægt að semja betur við Fossa en að of snemmt sé að dæma við­skiptin sem mis­tök.
VÍS borgaði 2,7 milljarða króna yfirverð fyrir Fossa vegna vörumerkis og viðskiptavildar
GreiningSameining VÍS og Fossa

VÍS borg­aði 2,7 millj­arða króna yfir­verð fyrir Fossa vegna vöru­merkis og við­skipta­vildar

Eitt af stóru trygg­inga­fé­lögum lands­ins, VÍS, keypti fjár­fest­inga­bank­ann Fossa í fyrra fyrir alls 4,7 millj­arða króna í fyrra. End­an­lega verðið var nokkuð frá því sem áður hafði verið í umræð­unni og í nýbirtum árs­reikn­ingi kemur fram að stærsti hluti kaup­verðs­ins hafi verið svo­kallað yfir­verð. Verð sem greitt var fyrir eitt­hvað annað en virði eigna Fossa. Í þessu til­felli vöru­merki og við­skipta­vild.
Gildi telur verðmæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félaginu að óbreyttu
FréttirSameining VÍS og Fossa

Gildi telur verð­mæti Fossa ofmetið og styður ekki kaup VÍS á félag­inu að óbreyttu

Á mið­viku­dag­inn tekur hlut­hafa­fundur trygg­inga­fé­lags­ins VÍS afstöðu til þess hvort kaupa eigi fjár­fest­ing­ar­bank­ann Fossa fyrir um 4,2 millj­arða. Davíð Rúd­olfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis, seg­ist ekk­ert botna í verð­mati félags­ins. Verð fjár­fest­ing­ar­bank­ans Fossa er einnig ofmetið sam­kvæmt grein­ingu banda­ríska fjár­fest­ing­ar­bank­ans Goldman Sachs á sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum. VÍS er í meiri­hluta­eigu líf­eyr­is­sjóða og þar með almenn­ings.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár