Stjórnarmaður í Arnarlaxi á fyrirtæki sem selur dýrafóður úr dauðfiski

Kjartan Ólafsson ,fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Arnarlax, er hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu Arctic Protein sem býr til dýra­fóður úr eld­is­löxum úr íslensku sjó­kvía­eldi sem ekki er hægt að nota til mann­eldis. Bæði er um að ræða dauð­fisk og eins fisk sem þarf að farga.

Stjórnarmaður í Arnarlaxi á fyrirtæki sem selur dýrafóður úr dauðfiski
Á næstum helm­ing í Arctic Protein Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­maður í Arn­ar­laxi og einn helsti tals­maður sjó­kvía­eldis hér við land, á 49 pró­senta hlut í félag­inu Arctic Protein sem býr til dýra­fóður

Kjartan Ólafsson, hlut­hafi og stjórn­ar­maður í Arn­ar­laxi um margra ára skeið, á fyr­ir­tæki sem vinnur og selur dýra­fóður úr þeim dauð­fiski, fiski sem þarf að farga sem og afskurði og slógi sem fellur til í íslensku sjó­kvía­eldi. Með dauð­fiski er átt við eld­is­lax sem drepst í sjó­kvíum hér við land vegna slysa eins og vetr­ar­sára, fiski­sjúk­dóma og annað slíkt. Eftir því sem sjó­kvía­eldið verður umsvifa­meira hér á landi verður hlut­falls­lega meira af eld­is­laxi sem drepst eða þarf að farga og koma þarf í verð með öðrum hætti en til mann­eldis.

Þessi þróun sést ber­sýni­lega í árs­reikn­ingi fyr­ir­tækis Kjartans, Arctic Protein ehf., sem fjár­fest­ing­ar­fé­lag hans á með norska félag­inu Pelagia sem á skip sem safna saman dauð­fiski í sjó­kvíum og vinna úr honum meltu, dýra­fóður. Fyr­ir­tæki í eigu Kjartans, Berg fjár­fest­ing, á 49 pró­senta hlut í Arctic Protein á móti 51 pró­senti norska …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnlaugur H. Jónsson skrifaði
    Ekki fréttnæmt að fiskur sem ekki er hæfur til manneldis fari í dýrafóður. Starfaði í þrjú sumur í Sílarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði. Síld sem ekki var hæf til manneldis fór þar í bræðslu og afurðirnar, mjólk og lýsi var selt í dýrafóður. Síðasta árið 1964 var síldin horfin frá Norðurlandi og var flutt af Austfjarðarmiðum með togurum og flutningaskipum til Siglufjarðar. Fyrir flutning var hún varin með rotvarnarefnum🧐
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.
Umhverfistofnun telur bæði ótímabundinn kvóta og veðsetningu hans umdeilanlegar breytingar
FréttirLaxeldi

Umhverfi­stofnun telur bæði ótíma­bund­inn kvóta og veð­setn­ingu hans umdeil­an­legar breyt­ingar

Rík­is­stofn­unin Umhverf­is­stofnun gerir athuga­semdir við tíma­lengd rekstr­ar­leyfa í sjó­kvía­eldi hér á landi. Nu þegar hafa borist 54 umsagnir við frum­varpið um lagar­eldi eftir að það var lagt fram á Alþingi í lok apríl. Frum­varpið er afar umdeilt og hefur umræða um það verið hluti af kosn­inga­bar­átt­unni til emb­ættis for­seta Íslands.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár