„Það er ekkert svo ógeðslegt og hryllilegt að það sé ekki til“

„Það er her úti í hinum stóra heimi, óskipu­lagður og skipu­lagður sem vinnur við það að reyna að búa til nú fórn­ar­lömb og þeir svífast bók­staf­lega einskis,“ segir Hallur Hallsson rann­sókn­ar­lög­reglu­maður. Hann vinnur í deild sem sér­hæfir sig í að mynd­greina barn­a­níðs­efni. Í þátt­unum Á vett­vangi fylgist Jóhannes Kr. Krist­jáns­son með störfum kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar.

„Það er ekkert svo ógeðslegt og hryllilegt að það sé ekki til“
Yfirfara myndefni Bylgja lög­reglu­full­trúi og Hallur rann­sókn­ar­lög­reglu­maður segja að það séu ekki allir í kyn­ferð­is­brota­deild­inni sem treysti sér til að mynd­greina barn­a­níðs­efni. Þau trúa því og vona að þeirra vinna verði til þess að minnka eft­ir­spurn og brot gegn börnum. Mynd: Jóhannes Kr.

Lög­reglan hand­tók mann fyrr á þessu ári vegna gruns um hafa barn­a­níðs­efni undir hönd­unum. Lög­reglu­menn­irnir fram­kvæmdu hús­leit og gerðu tölvu­búnað upp­tækan í íbúð manns­ins. Í fórum hans fund­ust myndir af drengjum á aldr­inum fimm til 14 ára. Mynd­irnar voru af ýmsum toga, allt frá því að sýna þá á nær­bux­unum yfir í það að sýna þá í kyn­ferð­is­legum athöfnum. Þar að auki var ein og ein mynd af full­orðnum mönnum að nauðga börnum. Gagna­magnið í þessu eina máli er vel á annað hund­rað tera­bæti. 

Þetta kemur fram í öðrum þætti hlað­varpss­er­í­unnar Á vett­vangi. Blaða­mað­ur­inn Jóhannes Kr. Krist­jáns­son fékk að fylgj­ast með störfum kyn­ferð­is­brota­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að störfum við grein­ingu á barn­a­níðs­efni. 

Hægt er að hlusta á þátt­inn með því að smella á tengil hér til hliðar. Sér­stak­lega er varað við þætt­inum þar sem hann verður óþægi­legur fyrir hlust­endur að hlusta á og efni þátt­ar­ins er ekki ætlað ungum börnum.

„Ef þér dettur það í hug þá er það til“

„Það er her úti í hinum stóra heimi, óskipu­lagður og skipu­lagður sem vinnur við það að reyna að búa til ný fórn­ar­lömb og þeir svífast bók­staf­lega einskis. Og þetta veldur því að líf fólks eyði­leggst og ekki bara barn­anna heldur allra í kringum þau,“ segir Hallur Hallsson, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður á kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í þætt­inum. Hann er annar tveggja rann­sókn­ar­lög­reglu­manna á deild­inni sem eru sér­hæfð í mynd­grein­ingu á barn­a­níðs­efni. Hann þarf því að skoða bæði ljós­myndir og mynd­bönd sem sýna gróft kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum. 

„Það er ekk­ert svo ógeðs­legt og hrylli­legt að það sé ekki til. Það er mín  „rule 34“: ef þér dettur það í hug þá er það til,“ segir Hallur. „Án þess að fara út í ógeðs­legar lýs­ingar, þá eru lim­lest­ingar og morð til. Og lim­lest­ingar og morð á börnum í kyn­ferð­is­legum til­gangi er til og það kannski segir allt sem segja þarf.“ Hallur segir þetta vera „botn­laust hyl­dýpi“ þar sem hann segir þau ekki vera búin að sjá það versta þar sem ef „ein­hver gerir það versta þá er ein­hver þarna úti sem sér það og hugsar með sér: „ég get gert verr.““ 

Einu barni var bjargað úr aðstæðum

Tveir Íslend­ingar voru hand­teknir hér á landi vegna nið­ur­hals á barn­a­níðs­efni í sam­eig­in­legri rann­sókn lög­reglu­emb­ætta í 27 löndum Evrópu, en rann­sóknin naut stuðn­ings frá Europol og lauk í mars. Alls voru 57 karl­menn á aldr­inum 23 til 72 ára hand­teknir í aðgerð­unum.

Einu barni var bjargað úr aðstæðum þar sem það var beitt ofbeldi, en nokkrir mann­anna höfðu beinan aðgang að börnum og tíu þeirra áttu sjálfir börn. Í tölvu­bún­aði mann­anna fund­ust við fyrstu leit yfir hund­rað þús­und skrár sem inni­héldu barn­a­níðs­efni en búist er við að magnið sé tífalt meira eða yfir milljón skrár sem inni­halda bæði ljós­myndir og mynd­bönd sem sýna kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum.

Menn­irnir koma úr öllum stigum sam­fé­lags­ins en fjórir þeirra störf­uðu sem kenn­arar og einn með með þroska­skertum börnum. Europol skil­greinir menn sem eiga eða dreifa barn­a­níðs­efni og eiga þar að auki hand­bækur sem lýsa aðferðum til að lokka og beita börn ofbeldi sem mjög lík­lega til að brjóta gegn börnum. Þetta mat Europol er í takt við áhyggjur norsku lög­regl­unnar sem telur að þeir sem sæki sér barn­a­níðs­efni í gegnum netið séu lík­legir til fara úr skoðun á efn­inu í netheimum yfir í mann­heima til að lokka börn til sín og brjóta gegn þeim.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Það er ekki auðvelt að trúa á algóðan almáttugum guð eftir að lesa um þessa helför lítilla ókynþroska barna sem fullorðið fólk kaupir til að fremja glæpi sína á.. Fórnarlömb slíks kynferðis og lostaofbeldis úrkynjaðra kallnauðgara sem geta og vilja og gera þeim svo þetta líka að bera svona skaða ævilangt ættu þá ekki að þurfa framar að vera þá skilin eftir berskjölduð heldur geta treyst yfirvöldum til að sjá um öryggisgæslu þar sem þau eru skylduð til að eyða tíma sínum. Að minnsta kosti. Skólar og tómstundir utan heimilis verða að vera örugg. Karlkyns Kennurum og Kirkjunar mönnum ætti að banna alfarið að vera einir sér með börnum nema í fylgd. Leikskólar sömuleiðis og allir staðir þar sem börn eru að fylgja fullorðnum utan heimilis. Þvílíkur óskaplegur hryllingur sem við mennirnir gerum gegn minnimáttar, fötluðum börnum jafnvel og mállausum dýrum. Kannski er best að við hverfum bara út úr alheiminum með eitrinu sem við dreifum um allar grundir og höf og himinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár