Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
Enn þörf Sjúkra­trygg­ingar Íslands, sem Sigurður Helgi Helgason stýrir, segja að enn sé þörf á að útvista aðgerðum gegn legs­límuflakki sam­kvæmt ráðu­neyti Willums Þór Þórs­sonar.

Sjúkra­trygg­ingar Íslands segja að átak vegna aðgerða gegn legs­límuflakki sem ráð­ist var í með aðkomu einka­að­ila eins og Klíník­ur­innar hafi skilað árangri fyrir þær konur sem glíma við þennan kvala­fulla sjúk­dóm. Þess vegna hafi verið ákveðið að ráð­ast í frek­ari útvistun á slíkum aðgerðum. Heim­ildin hefur fjallað um þessa fyr­ir­hug­uðu útvistun á aðgerð­unum og hafa Sjúkra­trygg­ingar Íslands nú sent blað­inu svör við spurn­ingum um þær. 

Læknar á Land­spít­al­anum eru sumir hverjir hugsi yfir þess­ari útvistun þar sem ekki séu biðlistar eftir legs­límuflakks­að­gerðum nú um stundir. Þar af leið­andi spyrja þeir sig að því af hverju þurfi að útvista aðgerð­unum til einka­að­ila eins og Klíník­ur­innar. Í svörum Sjúkra­trygg­inga Íslands kemur fram að vegna þess­arar gagn­rýni frá Land­spít­al­anum ætli stofn­unin að kanna hana sér­stak­lega áður en gengið verður til samn­inga við eink­að­ila um frek­ari aðgerðir. 

Svör Sjúkra­trygg­inga við spurn­ingum Heim­ild­ar­innar eru birt í heild sinni hér fyrir neðan. 

„Mat heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins bendir enn til þess að tals­verð þörf sé fyrir fram­kvæmd aðgerð­anna utan heil­brigð­is­stofn­ana rík­is­ins.“

Enn þörf fyrir aðgerðum einkaaðila

Í svörum Sjúkra­trygg­inga Íslands við spurn­ingum um útvist­un­ina kemur fram að það sé mat heil­brigð­is­yf­ir­valda að ennþá sé þörf fyrir því að einka­að­ilar geri aðgerðir gegn legs­límuflakki. 

Stofn­unin segir: 

„Tilurð þess að fram­kvæmdar séu kvið­sjárað­gerðir vegna legs­límuflakks utan heil­brigð­is­stofn­ana rík­is­ins með greiðslu­þátt­töku var ríkt ákall um að aðgengi að slíkum aðgerðum yrði aukið. Í októ­ber 2022 fól heil­brigð­is­ráðu­neytið Sjúkra­trygg­ingum að semja um kvið­sjárað­gerðir til grein­ingar eða með­ferðar við sjúk­dómum sem heyra undir sér­svið kven­sjúk­dóma­lækna, þar á meðal aðgerðir vegna endó­metríósu. Samið var um að þau sem hefðu brýn­ustu þörf fyrir slíkar aðgerðir hefðu for­gang og var samið um tak­markað aðgerð­ar­magn við Klíník­ina Ármúla á grund­velli fjár­veit­ingar. Þó að ekki hafi verið til staðar mið­lægur biðlisti á þeim tíma var engu að síður tals­verður skortur á aðgengi að þjón­ustu og gat bið­tími verið langur. Þá höfðu ein­hver þegar leitað til Sjúkra­trygg­inga og fengið synjun um greiðslu­þátt­töku.

Að mati Sjúkra­trygg­inga hefur átakið skilað árangri í því að auka aðgengi að nauð­syn­legri þjón­ustu en ljóst er að enn kann að vera ein­hver þörf fyrir slíkar aðgerðir. Mat heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins bendir enn til þess að tals­verð þörf sé fyrir fram­kvæmd aðgerð­anna utan heil­brigð­is­stofn­ana rík­is­ins. Hins vegar gefa athuga­semdir yfir­lækna heil­brigð­is­stofn­ana ástæðu til þess að greina bið­tíma eftir slíkum aðgerðum nánar og að kanna ástæður þess að lítil bið sé eftir slíkum aðgerðum á Land­spít­al­anum. Verður það gert í aðdrag­anda samn­ings­gerðar.

Árétta verður einnig að þó að ekki sé til staðar mið­lægur biðlisti þá miðar texti aug­lýs­ing­ar­innar að öllum lýð­heilsu­tengdum aðgerðum, óháð því hvort að mið­lægur biðlisti sé til staðar. Fyr­ir­sögn aug­lýs­ing­ar­innar er ekki síst hugsuð með það að sjón­ar­miði að ná til sem flestra veit­enda heil­brigð­is­þjón­ustu til að fá sem besta mynd af fram­boði í þeim aðgerð­ar­flokkum sem stefnt er að því að gera samn­inga um.

Það liggur fyrir þegar samið verður til lengri tíma að nauð­syn­legt er að eiga sam­tal um þver­fag­lega veit­ingu slíkrar heil­brigð­is­þjón­ustu. Hafa Sjúkra­trygg­ingar þegar fundað með starfs­fólki Land­spít­ala um biðlista­mál og hefur stofn­unin eins mót­t­tekið erindi frá yfir­læknum heil­brigð­is­stofn­ana með sjón­ar­miðum um veit­ingu þjón­ust­unnar. Sjúkra­trygg­ingar munu meta þau sjón­ar­mið og verður tekið til­lit til þeirra við samn­ings­gerð­ina.

Fjár­veit­ing til þess­ara aðgerða var tryggð í fjár­lögum árs­ins 2023 og í fjár­lögum árs­ins 2024 var gert ráð fyrir að sam­tals 1 ma.kr. yrði varið til að stytta biðlista eftir til­teknum skurð­að­gerðum, þar sem endó­metríósu­að­gerðir voru sér­stak­lega til­greindar. Þá liggja fyrir fyr­ir­mæli heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um aðgerð­ar­flokka sem aug­lýsa á sem lýð­heilsu­tengdar aðgerðir á grund­velli þeirrar fjár­veit­ingar.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á
Viðskipti

Lóð keypt af hjúkr­un­ar­heim­il­inu fyrir fimmt­ung af því sem hún seld­ist á

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún var notað til að veita dótt­ur­fé­lagi þess selj­enda­lán árið 2014 til að kaupa lóð af því. Verðið sem hjúkr­un­ar­heim­ilið seldi lóð­ina á nam ein­ungis tæp­lega 1/5 hluta af því sem lóðin var á end­anum seld á árið 2022. Með þessu móti mynd­að­ist hagn­að­ur­inn af sölu lóð­ar­innar í öðru félagi en hjúkr­un­ar­heim­il­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár