Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún var notað til að veita dótt­ur­fé­lagi þess selj­enda­lán árið 2014 til að kaupa lóð af því. Verðið sem hjúkr­un­ar­heim­ilið seldi lóð­ina á nam ein­ungis tæp­lega 1/5 hluta af því sem lóðin var á end­anum seld á árið 2022. Með þessu móti mynd­að­ist hagn­að­ur­inn af sölu lóð­ar­innar í öðru félagi en hjúkr­un­ar­heim­il­inu.

Lóð keypt af hjúkrunarheimilinu fyrir fimmtung af því sem hún seldist á
Selj­enda­lán frá hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún veitti öðru félagi innan sam­stæðu þess selj­anda­lán til að kaupa lóð sem heim­ilið áttii. Svo var lóðin seld á 1300 millj­ónir, rúm­lega fimm­falt hærri upp­hæð en verðið sem Sóltún fékk fyrir hana. Þórir Kjart­ans­son og Arnar Þórisson eru stærstu eig­endur Sóltún en Halla Thorodd­sen er fram­kvæmda­stjóri félags­ins.

Eigendur Sóltúns seldu lóð við hlið þess út úr hjúkr­un­ar­heim­il­inu fyrir 1/5 af þeim 1.300 millj­ónum sem þeir fengu svo fyrir jörð­ina þegar þeir seldu hana til Mata-systk­in­anna svoköll­uðu árið 2022. Jörðin var seld inn í dótt­ur­fé­lag rekstr­ar­fé­lags hjúkr­un­ar­heim­il­is­ins, Öldungs ehf. Dótt­ur­fé­lagið heitir  Sóltún 4. ehf. Eigendur Sóltúns eru félög í eigu Þóris Kjart­ans­sonar, Arnars Þór­is­sonar og Önnu Birnu Jens­dóttur. 

Þá létu þeir hjúkr­un­ar­heim­ilið lána dótt­ur­fé­lagi þess fyrir kaup­verð­inu, 178 millj­ónir króna með víkj­andi láni. Slík lán eru stundum veitt á milli tengdra aðila og víkja þau fyrir kröfum ann­arra lán­ar­drottna ef svo ber undir. 

„Til­gangur með lán­veit­ing­unum að styðja við frek­ari upp­bygg­ingu á starf­semi félags­ins til fram­tíðar.“
Lánið útskýrt í árs­reikn­ingi Sóltúns

Forstjóri segir viðskiptin eðlileg

Þessi við­skipti áttu sér stað árið 2014 og átti hjúkr­un­ar­heim­ilið að fá lánið end­ur­greitt með vöxtum um haustið 2016. Þá var …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Þú vísar í grein í Morgunblaðinu sem aðeins er opin áskrifendum. Og síðan er þessi grein birt hér í Heimildinni sem líka er aðeins opin áskrifendum. Hvernig samræmist þetta opinni og heiðarlegri blaðamennsku og hvernig standa lesendur gagnvart svona mismunun?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár