Halla Tómasdóttir býður sig fram til forseta

Halla Tóm­as­dóttir ætlar að gefa kost á sér í emb­ætti for­seta Íslands í sumar. Halla bauð sig einnig fram árið 2016 og hlaut þá næst flest atkvæði. „Ég þekki mátt þess að leiða gott fólk saman til góðra verka.“

Halla Tómasdóttir býður sig fram til forseta
For­seta­fram­bjóð­andi Halla Tóm­as­dóttir ætlar að bjóða sig fram til for­seta í for­seta­kosn­ing­unum sem fram fara 1. júní. Mynd: Aðsend

„Kæru vinir og kæru Íslend­ingar. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í kjöri til for­seta Íslands þann 1. júní næst­kom­andi. Og nú átta árum síðar þarf ég gler­augu til að sjá erindið,“ sagði Halla Tóm­as­dóttir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur og for­stjóri B Team, þegar hún til­kynnti um for­seta­fram­boð sitt á blaða­manna­fundi í Grósku í hádeg­inu, sem var vel mjög vel sóttur. Áður hafði hún sagst vera að íhuga alvar­lega að bjóða sig fram. Sá und­ir­bún­ingur er nú form­lega haf­inn en frestur til að skila inn fram­boði rennur út 26. apríl. 

Halla bauð sig fram til for­seta árið 2016 og hlaut þá næst flest atkvæði, tæp 28 pró­sent. Guðni Th. Jóhann­es­son var kjör­inn for­seti með 39 pró­sent atkvæða. Hann til­kynnti, nokkuð óvænt, á nýárs­dag að hann hygð­ist ekki sækj­ast eftir því að gegna emb­ætt­inu áfram.  Halla hefur verið for­stjóri B Team síð­ustu sex ár. „Það eru sam­tök alþjóð­lgra leið­toga sem beita sér fyrir ábyrgri for­ystu, bættu sið­ferði og vel­ferð fólks og umhverfis,“ sagði Halla í fram­boðs­ræðu sinni og bætti við: „Ég þekki mátt þess að leiða gott fólk saman til góðra verka.“ 

FramboðFundur Höllu í Grósku þar sem hún til­kynnti fram­boð var vel sóttur.

Samkvæmt könnun sem Valgeir Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri TBWA/Norway betur þekktur sem Valli sport, lét fram­kvæma nýlega er 35 pró­sent Íslend­inga jákvæðir gagn­vart því að Halla verði næsti for­seti lýð­veld­is­ins. Af þeim 35% svar­enda sem eru jákvæðir í garð Höllu eru hlut­falls­lega flestir sem segj­ast kjósa Viðreisn. Þar á eftir koma  kjós­endur Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar. Kjós­endur Mið­flokks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins eru nei­kvæð­astir í garð Höllu. Af þeim sem eru jákvæðir gagn­vart því að Halla Tóm­as­dóttir verði næsti for­seti Íslands voru tals­vert fleiri konur en karlar. 

Í könn­un­inni var við­horf kjós­enda til Ólafs Jóhanns Ólafs­sonar, rit­höf­undar, og Baldurs Þór­halls­sonar einnig kannað og eru 40 pró­sent jákvæðir gagn­vart fram­boði Ólafs Jóhanns, sem hefur gefið út að hann ætli ekki að sækj­ast eftir emb­ætt­inu, og 53 pró­sent eru jákvæðir gagn­vart fram­boði Baldurs. 

Baldur er „að hlusta á raddir fólks­ins“ en hópur fólks hefur skorað á hann að bjóða sig fram á stuðn­ings­síðu á Facebook. Fleiri eru undir feldi og má þar sem dæmi nefna Jón Gnarr, grínista og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, Ölmu Möller land­lækni og Helgu Þór­is­dóttur, for­stjóra Per­sónu­verndar.     

Fimm hafa til­kynnt um for­seta­fram­boð en öllu fleiri hafa stofnað til­með­mæla­söfn­unar á island.is, eða 22. 

Frestur til að skila inn með­mæla­söfnun fyrir for­seta­fram­boð er 26. apríl. For­seta­kosn­ingar fara fram 1. júní. 

Fram­boðs­ræðu Höllu má lesa í heild sinni hér að neðan: 

Kæru vinir - kæru Íslend­ingar,

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í kjöri til for­seta Íslands þann 1. júní nk.

Forseti Íslands gegnir mik­il­vægu hlut­verki. Farsælum for­seta þykir vænt um og skilur mik­il­vægi hverrar mann­eskju og hvers byggð­ar­lags okkar ein­stöku þjóðar – án til­lits til póli­tískra dæg­ur­mála. Forseti þekkir upp­runa okkar og rætur, minnir okkur á allt það sem sam­einar okkur og talar hvar­vetna fyrir grunn­gildum okkar. Forseti áttar sig líka á stöðu lands og þjóðar í alþjóð­legu sam­hengi og bæði sér og styður við þá mögu­leika sem fel­ast í styrk­leikum okkar og sér­stöðu.

Und­an­farin sex ár hef ég verið í krefj­andi og lær­dóms­ríku starfi á alþjóða­vett­vangi sem for­stjóri B Team, en það eru sam­tök alþjóð­legra leið­toga sem beita sér fyrir ábyrgri for­ystu, bættu sið­ferði (í við­skiptum), og vel­ferð fólks og umhverfis. Ég hef unnið með stjórn­endum fyr­ir­tækja, stjórn­völdum, og full­trúum ungra kyn­slóða að úrlausnum stórra áskor­ana. Ég þekki vel mátt þess að leiða gott fólk saman til góðra verka. Í okkar röðum eru fram­sýnir leið­togar, fólk sem setur mennsk­una í for­grunn, gengur á undan með góðu for­dæmi og hvetur stjórn­völd jafn­framt til að tryggja að leik­reglur við­skipta­lífs og sam­fé­lags séu rétt­látar.

Ég hef notið hverrar mín­útu í núver­andi starfi og því hefur ákvörð­unin um for­seta­fram­boð ekki verið ein­föld. En ég trúi því ein­lægt að Ísland standi frammi fyrir spenn­andi tæki­færum í heimi sem leitar nú lausna á sviði friðar, jafn­réttis og sjálf­bærni. Á þessum sviðum getum við verið til fyr­ir­myndar og í virkjun þess­ara styrk­leika fel­ast sókn­ar­færi til verð­mæta­sköp­unar og jákvæðrar fram­þró­unar fyrir okkar sam­fé­lag. Ég veit að á þessum sviðum get ég lagst á árar svo um munar. Þetta eru þau mál­efni sem ég brenn fyrir. Þau hafa verið mín leið­ar­ljós í lífi og starfi.

Brýnustu verk­efni hvers sam­fé­lags eru að standa vörð um heilsu og vellíðan fólks, sam­fé­lags­lega sátt og nátt­úr­una sem líf okkar allra og vel­megun byggja á. Á síð­ustu öld hefur Íslend­ingum lán­ast að nýta auð­lindir sínar, menntun og sköp­un­ar­kraft til for­dæma­lausra fram­fara á sviði atvinnu­lífs, menn­ingar og lista. En nátt­úru­öflin sýna sann­ar­lega þessa dag­ana og þessar stund­irnar að þau eru líka ógn­væn­leg. Þjóðin fylgist harmi slegin með ham­för­unum á Reykja­nesi. Enginn getur sett sig í spor þeirra sem verða fyrir svona áfalli. En við vitum að við eigum sam­taka­mátt. Það hefur reynt á hann áður og það reynir á hann nú. Með honum hjálp­umst við að og komumst í gegnum þessa erf­iðu tíma.

Við Íslend­ingar erum hug­rökk þjóð. Við vorum fyrst til að kjósa konu sem for­seta, státum af einu elsta þjóð­þingi ver­aldar, stöndum fremst í nýt­ingu jarð­varma, fram­ar­lega þegar kemur að hug­viti og umhverfi frum­kvöðla, erum sókndjörf og eigum fjöl­marga snill­inga sem hafa numið lönd, unnið til verð­launa og hlotið verð­skuld­aða við­ur­kenn­ingu fyrir afrek í listum og íþróttum, svo fátt eitt sé nefnt. Ég vona ein­læg­lega að okkur lán­ist að vera áfram hug­rökk þjóð sem tekst af æðru­leysi á við það sem að höndum ber og horfir jafn­framt fram á veg með hug­rekki í hjarta. Hugrekki er til alls fyrst og er ómissandi hreyfi­afl allra fram­fara, hvort sem við horfum til frið­sældar, jafn­réttis eða sjálf­bærni.

Elsku vinir og vanda­menn og kæru Íslend­ingar. Ég stend auð­mjúk frammi fyrir ykkur og býð fram krafta mína. Ef þið viljið for­seta sem vill láta til sín taka og trúir að með virkjun sköp­un­ar­gáfu okkar jafnt á sviði menn­ingar, lista og atvinnu­lífs séu okkur allir vegir færir, þá er ég reiðu­búin til að leggja mig fram til gagns og góðs. Ef þið viljið for­seta sem vill byggja brýr, hefur sam­hyggð og lífs­gleði og trúir að jafn­rétti sé lyk­ill­inn að enn sterkara sam­fé­lagi, þá er ég, og við hjónin, ein­lægt til­búin til að þjóna hags­munum okkar Íslend­inga af öllu hjarta.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    þá er klás schwabb hjá wef búinn að tefla fram sínum frambjóðanda . . . https://youtu.be/cxhRiHTKByA?si=f7kv0yQ9Rn8apM64
    0
  • trausti þórðarson skrifaði
    Vantar einmitt verðbréfasala á bessastaði.Áfram Ástþór
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár